Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › Hvítasunnuhelgin
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
1. júní, 2004 at 11:54 #465072003793739Meðlimur
Jæja hvernig var Hvítasunnuhelgin hjá fólki?
Ég og Óli Raggi kíktum á mánudaginn í Skinnhúfukletta í Vatnsdal. Klifruðum þessar helstu leiðir í fínu veðri.
Prófuðum nýja leið sem Jökull og Gummi Tómasar boltuðu í fyrra sumar hægra megin í klettinum. Frábær og jöfn 5.9-5.10a leið sem við mælum með. Heitir hún ekki ,,léttasta 5.5 á landinu“?Stebbi Stóri, Gummi Nordalh og Valdi komu síðan í Vatnsdalinn eftir massa klifur fyrir norðan í Munkaþverá í sól og blíðu.
Kv.
Halli1. júní, 2004 at 14:53 #48747Siggi TommiParticipantVar á ferð með nokkrum úr HSSR (Robbi og Danni) og skátum úr Garðabæ og Reykjavík, 14 manns í það heila og vorum við með Akureyri sem miðstöð, gistum í skátaheimilinu og í Húsabrekku austan bæjarins.
Ég fór einmitt í Munkann á laugardeginum og það var algjör snilld. Við Elmar bröltum mest af fólkinu á staðnum, tókum Sófus og Stóru mistökin til að byrja með. Tókum svo á því í Vígaglúmi, Karlinum í brúnni og Sykurmola auk smá dótaklifurs vestar í gilinu. Er einhver með gráðu á Sykurmola? Byrjunin var fáránlega erfið og bailuðum við á henni en ég giska á að klifrið ofan við fyrsta bolta sé 5.9-10 ca.
Skelltum okkur svo í 5 manna brölt á Hraundranga á sunnudag og var það ekkert nema unaður, þó ekki hafi það verið mikið „kletta“ í því klifri frekar en fyrri daginn. Skyggni ágætt og rjómablíða allan tímann (pínu gustur á köflum á toppinum).
Ætlaði svo að fara aftur í Munkann á mánudaginn en Elmar bailaði á mér, því hann nennti ekki að vakna. Svona eru þessir plastklifrarar, þola ekki smá morgunsyfju… múhahha Fór því bara í sund í staðinn.
Góð helgi samt. Mæti hress á Hnappavelli eftir 2 vikur vonandi.
1. júní, 2004 at 16:34 #487480311783479MeðlimurFrábær helgi á Snæfellsjökli, rennslið var betra á lau. en veðrið var betra á sun.
Litum við í Gerðuberginu á leiðinni í bæinn í gær, gerði skýfall þegar ég var kominn þriðjung af leið rétt hjá frístandandi stuðlinum. Var þá lítið annað að gera en að veðja á búrgeisu í Borgarnesi og kljást við traffíkina í bæinn.
-kv.
Halli2. júní, 2004 at 16:40 #487492806763069MeðlimurSvaka stuð í Skaftó, skellti 44 borgandi kúnum á toppinn með dyggri aðstoð 5 annara núverandi og fyrirverandi Ísalp félaga. Mikið grín og þeir léttustu fuku til í rokinu uppi á topp.
Hvað er annars að frétta af Grænlandsleiðangrinum? Hlýtur að hafa verið stuð, amk brosa leiðsögumenn ÍFLM sem stjórnuðu leiðangir í Liverpool-land (grænlandi) allan hringinn og sömu leiðis ofurskíðakúnarnir sem voru með þeim.
2. júní, 2004 at 19:50 #487502401754289MeðlimurSaelar,
Leidin i Skinnhufuklett heitir „Erfidasta 5.5 i Heiminum“ og var boltud og klifrud af Jokli og Freon!!!
Annars var Hvitasunnuhelgin her uti bara eins og hver annar dagur, klifrad i sol og sumari!
Sjaumst fljotlega
Freon
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.