Jæja það hafa borist góðar ísfréttir að austan og er því LOKSINS komið að festivalinu!
Ég hef heyrt á nokkrum að þeim vanti far austur á fimmtudag og jafnvel föstudag. Trúi ekki öðru en að það séu nokkrir sem eiga laust pláss í bílnum sínum.
Væri því sniðugt að þeir sem eiga laust pláss og þeim sem vantar far reyni að koma sér saman, og til þess er þessi þráður stofnaður..
Reynum að koma sem flestum austur á festivalið auk þess sem það er umhverfisvænt og sparsamt að keyra með hvert sæti skipað!
Svo hverjum vantar far og hver á laust sæti austur?