- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
10. febrúar, 2013 at 21:43 #470752506663659Participant
Eru einhver plön að fæðast?
Frétti af nægum ís á vestförðum. Varla mikið í Kinninni núna.
guðjón
10. febrúar, 2013 at 22:27 #58171Arni StefanKeymasterVið í stjórninni erum einmitt búin að vera að skoða málið.
Eins og staðan er núna er ólíklegt að farið verði í Kinnina. Höfum reynt að ná í Hlöðver, bóndann á Björgum, án árangurs, en viljum endilega heyra í honum áður en við sláum Kaldakinn út af borðinu.
Við höfum verið að horfa aðeins á Vestfirðina núna, annaðhvort Ísafjörð eða Bíldudal.
Hvað sem því líður viljum við eftir fremsta megni komast hjá einhverri frestun, enda líklega ekkert fengið með því að bíða eina viku.
Málið ætti vonandi að skýrast á morgun eða hinn.
10. febrúar, 2013 at 22:55 #581720304724629MeðlimurÞað er nægur ís hérna. Vorum að klifra í dag. Reyndar smá hlýindi en ennþá alveg bunkað. Við tékkuðum á hóteleigendunum á Núpi og þeir eru alveg til í dans með góð verð. Garðshvilft er í 5 mín akstursfjarlægð og fleira góðgæti. Sjá myndir frá því í fyrra. Svo er að koma lið frá Mountain Hardwear í vikunni.
rok
11. febrúar, 2013 at 08:41 #581732506663659ParticipantSpjallaði við þau á Hömrum á föstudaginn. Þá var bara ís í heimaklettunum. Ólíklegt að það nái að byggjast upp eitthvað að viti í vikunni.
12. febrúar, 2013 at 09:47 #58175Gummi StParticipantVið munum halda á Ísafjörð, stefnum á að gista á Gamla gistiheimilinu, berja ís yfir daginn og borða kjötsúpu á barnum hjá Rúnari og félögum á laugardagskvöld.
Hver og einn þarf að panta gistingu fyrir sig og best er að hringja eða senda tölvupóst á Gistihúsið sjá http://gistihus.is
Þar eru bæði til svefnpokapláss og uppábúin. Best er að hafa samband sem fyrst til að tryggja sér svefnpokapláss sem eru af eitthvað skornum skammti.Vonumst til að sjá sem flesta!
Stjórn13. febrúar, 2013 at 13:15 #581792109803509MeðlimurFrábært! Stefnir í góða stemningu á Ísafirði amk 15 manns búnir að skrá sig skv. https://www.isalp.is/component/eventlist/details/84-Ísfestival%202013.html
Veðurspáin er góð amk passlegt hitastig sýnist mér http://www.vedur.is/vedur/spar/thattaspar/vestfirdir/#teg=hiti
Ætlar fólk að fjölmenna á fimmtudag eða föstudag??! Ég stefni á fimmtudag og Arnar föstudag….
Sjáumst hress
13. febrúar, 2013 at 14:08 #58180Gummi StParticipantVið förum 3 á fimmtudagskvöld (Ég, Arnar og Óðinn) amk.. Getum varla unnið vegna spennings að komast loksins út að klifra!
13. febrúar, 2013 at 15:21 #581810304724629MeðlimurHljómar allt vel. Einn af þeim sem er að koma með Mountain Hardwear liðinu er Tim Emmett. Glerharður Breti. Hann er til í að vera með myndasýningu á laugardagskvöldinu í Bræðraborg. Er það ekki bara díll?
Annars fórum við Viðar í smá næturmissjón í gær á Óshlíðina. Bullandi norðurljós, logn og -2 gráður. Flott 50 metra 4gr. leið og brött alla leið. Lítið tekið af myndum. Og get ekki límt við mynd hér. Agalegt hvað það er oft mikið vesen að pósta með myndum.
13. febrúar, 2013 at 18:08 #58183Otto IngiParticipantVið erum nokkrir hjálparsveitarlúðar úr HSSR og HSSK sem ætla að taka þátt. Erum 6 og komum á föstudagskvöldið.
kv.
Ottó Ingi14. febrúar, 2013 at 15:55 #58186ÁrmannParticipantVið erum um þrír sem ætlum að kíkja frá Vestmannaeyjum og fylgjast eitthvað með. Leggjum af stað um 18.30 frá Þorlákshöfn svo við ættum að vera komnir einhverntíman í seinna lagi.
Erum með eitt laust sæti (tvö laus ef þið viljið sáttir sitja), en leggjum þó eitthvað seint af stað, líklega um 20:00 í seinasta lagi úr bænum þar sem Herjólfi seinkar. s. 698-2706.
14. febrúar, 2013 at 19:24 #581871207862969MeðlimurDagskrá laugardags:
19.00 – Kjötsúpa, Aðalstræti 22b, 400 Ísafirði. Flokkskírteinin á lofti! Í boði verður alvöru súpa úr alvöru lambakjöti (ekkert súpukjötsrugl) með óerfðabættu byggi, erfðabreyttu fjallagrasi og grænmeti. Tilboð á ÍS-lensku öli á barnum. (Utanfélagsmenn kaupa súpu m/ábót á 1.500 kr.)
20.30 – Myndasýning Tim Emmets í Bræðraborg
21:15-23.00 – Stanslaust stuð í Aðalstræti 22b. Höfuðvígi Borea Adventures.
23.00 – Flutningur stuðs yfir á vestfirskar knæpur.
03.00-07.00 – Krækja í píu/púka með ísöxunum og skrúfa viðkomandi heim með sér.
17. febrúar, 2013 at 22:40 #58193SissiModeratorHalló halló – er internetlaust á Ísafirði?
18. febrúar, 2013 at 00:32 #581940304724629MeðlimurNei, en menn og konur hafa bara verið að klifra en ekki hanga í tölvunni. Skýrsla fljótlega.
18. febrúar, 2013 at 20:19 #581953103833689MeðlimurTakk fyrir eðal helgi,ég náði tveimur góðumklifurdögum í frábærum félagsskap og fínu veðri.
Vel gert hjá Rúnari að taka af skarið, beina fólki vestur og taka svona hrikalega vel á móti því. Þakka Rúnari, Nanný og Búbba fyrir góða kjötsúpu og hlýjar móttökur á Bræðraborg.18. febrúar, 2013 at 23:19 #58196Arnar Þór EmilssonParticipantFrábær helgi og með betiri Festivölum. Takk fyrir mig.
Svo þurfa menn og konur að fara skrá allan þann fjölda leiða sem voru klifnar.19. febrúar, 2013 at 20:09 #5819719. febrúar, 2013 at 20:19 #58198Páll SveinssonParticipantSmá video frá mér og mínum.
http://www.youtube.com/watch?v=zuSHtdD6Ms8
kv.P21. febrúar, 2013 at 22:32 #58199Arnar Þór EmilssonParticipant23. febrúar, 2013 at 22:49 #58201Siggi TommiParticipant26. febrúar, 2013 at 12:32 #58205SissiModerator1. mars, 2013 at 13:16 #58209Arnar JónssonParticipantMyndir og ferðasaga kominn inná climbing.is frá festivalinu
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.