Ég er með plan að fara á Hrútfellstinda um næstu helgi(ef verður leyfir). Ætlunin er að fara á alla 4 toppana í sömu ferðinni. Ef einhverjir eru áhugasamir að koma með, endilega hafa samband í síma 824-7195 eða senda tölvupóst á:olli@vistor.is
Fjallakveðja olli
Sumardaginn fyrsta ætla ég og tveir aðrir að fara upp Hvannadalshrygginn(gömul Ísalp leið), þaðan ætlum við að reyna við Neðri Dyrhamar(sennilega 2. uppganga nema aðrir viti betur) og svo á að fara á Tindaborgina(Kirkjuna) og svo Svínshausinn. Ég var bara að vona að það gæfi á hann um helgina þannig að maður gæti náð sér niður við að fara upp á alla tinda Hrútfjalls með viðkomu á Jökulbaki.
Olli