Home › Umræður › Umræður › Skíði og bretti › Helstu úrslit og fréttir
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
13. mars, 2005 at 00:06 #455340704685149Meðlimur
Takk fyrir daginn öll sömul.
Þið sem sátuð heima eða eru að skíða erlendis, hér koma smá fréttir:Ákveði var að fresta stökkkeppninni til sunnudags.
Einnig var ákveðið að fara á skíðasvæðið á Sauðárkróki í Tindastóli og keppa þar í stökki í stað þess að fara á Siglufjörð. Þá er styttra fyrir þá sem keyra til Rvík að fara heim.Samhliðasvigið var æsispennandi og mjög skemmtilegt.
Sjá nánar lýsingu á stemmingunni áEn hér kemur listi yfir þa sem fengu aukaverðlaun.
Óli Nashyrningur – óvæntasti keppandi og framfarir frá því síðast
Hallgrímur Garðabæ- fór minnst fyrir honum í keppninni
Siggi Skarp TAT- Fyrir að tapa fyrir félaga sínum úr Team Árbær Óli Raggi TAT- Loðnasti í ,,Rauðhærðir á móti rest“
Steppó TAT- Fara lengst niður í telemarkbeygjunum
Kjarri TAT- Besta krassið í braut og að laga brautina eftir sig
Gunni TAT- Að taka ekki þátt í ,,Rauðhærðir á móti rest“
Guðmundur Helgi Rvík -Að bíða lengst eftir að fá að keppa
Eiríkur E. Garðabæ – Að slasast í ,,Rauðhærðir á móti rest“
Stefán Páll Rvík – fyrir að koma
Jón Haukur KÓP-Kvennlegasti keppandinn farandverðlaun frá TAT
Árni Alf. Eyfellinga- Þjóðlegasti keppandinn
Góli Garðabæ-snyrtilegasti keppandi lagaði bindishnútinn í braut
Adne TAT- Taka þyrlu á stökkpallinum ekki var keppt á.
Víðir Nashyrningur – Prúðasti keppandinn og líkjast Jóni Gauta
Heiðar KÓP- Efnilegasti nýliðinn
Arnar F KÓP- Fyrir saumaskap ársins
Hlynur KÓP- Óheppnasti keppandi á telemarkhátíðinni frá upphafi
Steinar TAT- Að vera alltaf í skugganum á bróður sínum
Jóhanna KÓP- Photogeníska fatasamsetningin
Sigfríð Garðabæ- Að tap með reisn og drekka sorgum sínum
Arnar TAT – Að berjast fyrir strýtusveiflunni og tuða mest.
Karl Eiríksson AKureyri- Að koma bara í matinn
Brynja AKureyri – Að safna öllum aukaverðlaunumTeam Árbær fékk verðlaun fyrir búningahönnun og heildar look
Garðabær fékk verðlaun fyrir misskildasta búninginn 2# árið í röðGleymi líklega einhverjum aukaverðlaunum.
En í Samhliðasvigi urðu úrslitin þessi:Kvennaflokkur
1. Berglind Kópavogi – Árs áskrift að Tímaritinu Útiveru og stafi frá Útilíf
2. Helga Möller Skíðadal – Sokka frá 66N
3 Brynja Englandi Sokka frá 66NKarlaflokkur
1. Sigurbjörn ( Böbbi ) Akureyri Árs áskrift að Tímaritinu Útiveru og stafi frá Útilíf
2. Tómas G. Júlíusson Reykjavík Sokka frá 66N
3. Jón Haukur Kópavogi Sokka frá 66NKveðja
Mótsnefnd13. mars, 2005 at 21:15 #495490704685149MeðlimurTakk fyrir daginn í dag.
Engin stökk-keppni var haldin, þar sem fólk var svo æst að skíða í nýföllnum snjó. Var skíðað að krafti frá kl. 11:00 til 15:00 þá fóru menn að huga að heimferð. Enda veðrið byrjað að rjúka upp í enn meiri norðanstrekking með héljum.
Færið var frábært í Tindastóli, en minna um skyggnið þó sólarglenna kæmi nokkrum sinnum. Þökkum við Skagfirðingum góðar móttökur. Stórkostlegt að geta keypt nýbakaða skúffuköku, kleinur og kanilsnúða í skíðaskálanum, almennilegt vöruúrval þar.
Umdeilt var hve púðrið var djúpt, menn mældu allt upp í 60 CM dýpt á nýsnævinu…jafnvel dýpra, allt eftir því hvernig maður hallaði skíðastafnum.
Nú fyrir stundu lá mótsnefnd í heitapottinum hjá KEA og ræddu hverjir ættu að verða valdir sem maður og kona mótsins. Enn hefur ekki verið komist að niðurstöðu. Mótsnefnd ætlar að sofa á því, það koma margir til greina fyrir ýmis afrek. Það verður kynnt fljótlega hér á vefnum. Mikils er að vinna, glæsilega bókagjöf frá Útiveru. Bókin: Gengið um óbyggðir eftir Jón Gauta Jónsson fjallamann með meiru eða fría áskrift að; Útiveru tímarit um útivist og ferðalög, í eitt ár.
Fljótlega birtist grein hér á vefnum um Telemarkhelgina eins og alltaf áður.
En á meðan skoðið fréttapistlana frá Árna Alf. á http://www.utivera.isÞau fyrirtæki sem styrktu okkur á einn eða annan hátt eru eftirfarandi:
Útivera
Útilíf
Vörður Vátryggingafélag
Síminn
66°N
Bakaríið við brúnna
Bókabúð Jónasar
Skíðaþjónustan
Útivist og sport
Abaco sólbaðsstofa
Sambíóin Akureyri
Medúlla hársnyrtistofa
Samkaup
GlófiÞeir sem lögðu okkur til hjálparhönd; Brynja, Sigfríð, Helga Björt, Kristín, Doddi, Valli, Jón Haukur, Kristín og margir aðrir, kærar þakkir.
Takk öll sömul fyrir helgina.
Sjáumst að ári.
Þá vonandi í mun meiri snjó sem á að vera hér á norðurlandi á þessum árstíma.Mótsnefnd.
13. mars, 2005 at 23:20 #495500801667969MeðlimurVil þakka fyrir mig og frábæra helgi. Sjáumst að ári.
Árni Alf.
14. mars, 2005 at 23:35 #495511709703309MeðlimurAllir sem fengu verðlaun eru vel að þeim komnir. Einnig ætti Skúli Magnússon, FBSR, að fá verðlaun fyrir að klikka á flugtíma og ná að rugla tvö félaga sína með sér. Skúli ákvað að vera eftir í Reykjavík en Óli Þór, FBSR og Víðir breyttu fluginu sínu og komu með vél klukkutíma síðar.
Skúli ætti nú að fá einhver verðlaun.
Með kveðju,
Stebbi -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.