Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Grafarfoss…
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
26. desember, 2004 at 20:04 #46499ABParticipant
Við Steppo klifruðum Grafarfossinn í gær. Aðstæður alveg þolanlegar, en ísinn lélegur á köflum, sérstaklega í efri hluta. Annars fínasta jóladagsklifur og báðir komnir tímanlega heim fyrir hangiketið.
Kveðja,
Andri27. desember, 2004 at 14:03 #49240Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantÉg og Róbert fórum í gær, sunnudag, í Grafarfoss. Lenntum í rigningu og hættum við eftir ömurlegustu, blautustu og ómerkilegustu spönn sem ég hef klifrað. Líkara væri að lýsa þessu sem klifur í lóðréttum krapa heldur ísfossi.
27. desember, 2004 at 14:04 #49241Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantSamt ennþá meira en nóg af ís.
27. desember, 2004 at 17:25 #492421704704009MeðlimurVanilluís?
28. desember, 2004 at 17:33 #49243Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantMeira svona eins og krabinn sem maður kaupir úti í sjoppu og drekkur í gegnum rör.
29. desember, 2004 at 10:22 #49244Siggi TommiParticipantVar á Akureyrinni í jólafríi með frúnni.
Skellti mér við þriðja mann að klöngast í ís að Munkaþverá. Flottu leiðirnar norðan og austan megin í gilinu voru ekki í aðstæðum en styttri (<10m) og léttari leiðir voru þokkalegar að sunnan.
Kíkti upp í Vaðlaheiði og þar var Tönnin í þokkalegum gír sýndist mér (gafst ekki tími í að fara upp að henni) og Ís með dýfu var skítþokkalegur en þó þynnri en tönnin. Viðmælendur mínir höfðu ekki fregnir af aðstæðum í Köldukinn.
Ísboulderaði í Glerárgili í góðum ís í stuttum leiðum.
Sá töluvert af vel þykkum línum í Hörgárdal og Öxnadal á leiðinni suður þannig að þetta er mest allt komið í góðan gír á Norðurlandinu…29. desember, 2004 at 18:31 #49245Freyr IngiParticipantKaldakinn í góðum gír eins venjulega.
Stekkjastaur náði niður og leiðirnar sunnan hans voru flottar.
Kíkti ekki lengra út fyrir enda fótgangandi, lækurinn og skaflarnir frá Björgum reyndust afajeppa ofviða.
Væntanlega lítið mál fyrir blöðrubíla.
Freysi -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.