Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Góða veðrið í dag
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
27. nóvember, 2011 at 20:42 #47413gulliParticipant
Skelltum okkur á Kistufell í dag, ég, Sissi og Skabbi. Hef aldrei gert þetta áður og fannst þetta bara assgoti gaman. Vonandi fóru fleiri og léku sér í blíðunni.
Nokkrar myndir og „ferðasaga“ hér:
http://gulli.smugmug.com/2011/Kistufell/20295850_CKhJfC#1604728104_VVh2Vfd
[attachment=330]kallarnir.jpg[/attachment]
27. nóvember, 2011 at 20:49 #57071Gummi StParticipantFlott hjá ykkur og gaman hvað myndirnar koma vel út í svona low-angle sól!
Við ætluðum að skokka uppá Botnsúlur í dag en hættum við þar sem þokan var helvíti þétt, tókum bara góða æfingu hér í Reykjavík þess í stað.
Það hvarflaði reyndar að okkur að fara á Kistufellið, enda búið að vera á stefnuskránni lengi.27. nóvember, 2011 at 22:16 #57072SissiModeratorJá, eins og Gulli segir þá var þetta hreint út sagt alveg æðislegur dagur. Þessi hryggur er alveg stórskemmtilegur og er búinn að vera á listanum lengi. Við Skabbi fórum Kistufellshornið um árið (gilið) en mér finnst þessi nú skemmtilegri.
[attachment=331]kallarnir2.JPG[/attachment]
28. nóvember, 2011 at 09:57 #57074SkabbiParticipantTakk fyrir daginn drengir og myndirnar!
Það var hreint magnað hvað hafði snjóað á skömmum tíma, við óðum snjó upp að hnjám lengi vel. Ef e-ð bætir í verður Esjan fljótlega vel skíðafær.
Allez!
Skabbi
1. desember, 2011 at 15:47 #570830909862369MeðlimurFór ásamt fríðu föruneyti af svæði 3 í „alpaferð“ langleiðina upp Gígjökulinn og niður aftur og náðum við að hitta á að fara úr bíl í bíl í björtu.
Vitið þið um marga sem hafa brölt upp allan jökulinn eftir gos?
1. desember, 2011 at 17:09 #570810412805069MeðlimurSævar Logi Ólafsson wrote:Fór ásamt fríðu föruneyti af svæði 3 í „alpaferð“ langleiðina upp Gígjökulinn og niður aftur og náðum við að hitta á að fara úr bíl í bíl í björtu.Vitið þið um marga sem hafa brölt upp allan jökulinn eftir gos?
Ertu með einhverja frekari leiðarlýsingu, myndir og jafnvel GPs trakk?
kv.
BO
1. desember, 2011 at 21:11 #57093RobbiParticipantDjöfulsins snilld !
Ég keyri reglulega þarna inneftir og er búinn að horfa á jökulinn frá gosi og alltaf langað að skella mér þarna upp. Eru þið með einhverja myndasíðu til að skoða?
Gaman að sjá að það eru ekki allir bara að selja dótið sitt…það eru einhverjir að nota það líka
Tveir þumlar fyrir þessu !
Robbi
2. desember, 2011 at 10:14 #570980909862369MeðlimurRobbi, hérna eru nokkrar myndir af Gígjöklinum, hvorki margar né frábærar, en við skulum taka viljann fyrir verkið
https://picasaweb.google.com/slo.lighting/Gigjokull27Nov2011
2. desember, 2011 at 10:34 #570990412805069MeðlimurSævar Logi Ólafsson wrote:Robbi, hérna eru nokkrar myndir af Gígjöklinum, hvorki margar né frábærar, en við skulum taka viljann fyrir verkiðhttps://picasaweb.google.com/slo.lighting/Gigjokull27Nov2011
Hversu hátt fóruð þið? Hæðarlína, kennileiti?
2. desember, 2011 at 10:57 #571010909862369MeðlimurFórum ekki nema í einhverja tæpa 600m, en það virkaði mun strembnara á sunnudaginn, heldur en núna þegar maður skoðar þetta svona á tölvunni, en hérna er mynd af trackinu og hæðarferlinum.
2. desember, 2011 at 11:49 #57102Egill HalldorMeðlimurSammála Sævari. Þetta virkar ekki mjög erfitt svona á mynd og í raun heldur ekki þegar maður kemur að jöklinum. En hann kom á óvart. Hefði verið til í að fara lengra ef um Laugardag hefði verið að ræða og tjald með í för en ekki bara bívac
2. desember, 2011 at 13:22 #571030412805069Meðlimur[attachment=342]IMG_3016Large.JPG[/attachment]
Ágúst 2011Sævar Logi Ólafsson wrote:Fórum ekki nema í einhverja tæpa 600m, en það virkaði mun strembnara á sunnudaginn, heldur en núna þegar maður skoðar þetta svona á tölvunni, en hérna er mynd af trackinu og hæðarferlinum.Takk fyrir þetta. Ég var spenntur að sjá hversu hátt þið fóruð þar sem þú nefndir að þið hefðuð farið „langleiðina“ upp Gígjökul. Þið hafið sem sagt rétt farið um 20-25% skv trakkinu. Annars flott og það verður að gaman að sjá þegar einhver heldur áfram með þetta verkefni.+
[attachment=343]IMG_3309Large.JPG[/attachment]
Ágúst 2011
–
Jökullinn er sprunginn í drasl þarna, svo það er úm að gera að nýta tímann rétt eftir massífa snjókomu (en þá leynast hætturnar betur.)[attachment=344]2010-04-21BO49Large.jpg[/attachment]
Apríl 2010Tveir þumlar upp
2. desember, 2011 at 13:37 #571040909862369MeðlimurLangleiðin hljómaði bara svo miklu flottara
Aldrei láta góða sögu gjalda sannleikans, var það ekki eitthvað máltæki?2. desember, 2011 at 16:04 #57106Steinar Sig.MeðlimurFór um það bil þessa sömu „langleið“ upp jökulinn rétt fyrir gos. Skemmtilegt bröllt, sambland af jöklaplampi og ágætu ísklifri. Jökullinn virðist ótrúlega lítið breyttur síðan þá, amk í þessari hæð. Það er samt full ástæða til þess að hafa auga með því sem er fyrir ofan mann. Virkilega stór stykki sem geta farið af stað þarna. Hér eru myndir síðan þá: http://www.flickr.com/photos/steinarsig/sets/72157622866298077/detail/
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.