- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
18. ágúst, 2005 at 08:42 #457870311783479Meðlimur
Fínasti pistill Örlygur!
Gaman að heyra að FÍ geymi lyklana að Tindfjallaskála, þegar það er fólk í fullri vinnu við að afhenda lykla hingað og þangað um landið, þá er mun líklegra að gestir verði skilvísari.
Ég hafði lengi spökulerað í því áður en honum var læst, venjulega við lestur gestbókarinnar þar upp frá, að heilu stórfylkin frá björgunarsveitum á SV-horninu hafi haldið nýliðanámskeið og stútfyllt skálatetrið án þessi að nokkur nýkróna kæmi fyrir.
Vonandi verða innheimtur miklar, þetta er einföld talnaspeki: meira í kassa = meira hægt að halda honum við!
kv.
Halli18. ágúst, 2005 at 10:35 #49915Stefán ÖrnParticipantVissara að menn greiði í nýkrónum!
18. ágúst, 2005 at 11:19 #499160311783479MeðlimurMenn hafa lengi stundað það greiða fyrir gistingu í Tindfjöllum með gömlu krónunni, þe. fyrir myntbreytingu. Hefur oft valdið gjaldkeri ísalp erfiðleikum og orsakað andvöku nætur.
Vonandi taka menn nú við sér og greið með réttri mynt (ath. stefán mynt en ekki minntu)!
-h
19. ágúst, 2005 at 16:41 #499171705655689MeðlimurSamkvæmt því sem ég hef skrifað hjá mér hefur varalykillinn sem geymdur er hjá mér (á Selfossi) verið fenginn 7 sinnum frá des 2004 og fram í júnií 2005. Reyndar týndu eitt af þessum gengjum lykklinum en nýr var fenginn í hans stað. Líklega hafa fleiri fengið hann lánaðann. Svo er bara að vona að þessir aðilar hafi greitt fyrir afnotinn.
kveðja Bárður.
PS það vantar gas og fleira þarna uppeftir ásamt því að laga þarf nauðsynlega stromp og gluggann við eldavélina. Ef einhver fer uppeftir bráðlega þá væri vel þegið að sá sami tæki eldiviðarkubba hjá mér. (miðtún 9 Selfossi)19. ágúst, 2005 at 17:12 #49918SissiModeratorEru flubbarnir ekki að setja niður einhvern ægilega fínan skála þarna núna?
22. ágúst, 2005 at 13:30 #499191704704009MeðlimurGott væri að nýta næstu ferð í Tindfjöll til að kippa með gaskút og steinolíubrúsa. Væntanlegir leiðangursmenn eða -konur eða þeir sem vita af leiðangri hafi samb við mig. 8214481.
Annars ætti að vera nóg af eldivið eftir birgðaferð í sumar.
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.