Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Festivalið
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
14. febrúar, 2008 at 17:00 #45981
Skabbi
ParticipantHæ
Það dregur nær festivalinu í Berufirði og Breiðdal. Okkar maður fyrir austan átti leið um svæðið um síðustu helgi og leist vel á aðstæður. Mikill fjölbreytileiki er á svæðinu, bæði hægt að sækja hátt og lágt, allt eftir hitastigi og aðstæðum.
Samkvæmt veðurspá gerir hlákuskot fram að helgi og í fyrri hluta næstu viku. Suðausturlandið kemur einna best út úr þessu tímabili, hitinn þar rétt skríður uppfyrir frostmark og úrkoma er lítil.
Á þriðjudaginn kemur er reiknað með að hitastig á landinu falli aftur vel niðurfyrir frostmark. Við vonum að sjálfsögðu að það haldist framyfir helgina.Það er því engin ástæða til að örvænta, stefnan er enn sett á suðaustur hornið. Ég hvet alla sem eru að hugsa um að skella sér með okkur að skrá sig, það auðveldar okkur í stjórninni að panta gistingu og aðra skipulagningu.
Allez!
Skabbi
14. febrúar, 2008 at 19:56 #52444Smári
ParticipantHvet alla til ad skrá sig hvort sem menn eru med félaga eda ekki. tad reddast á stadnum.
Ég er t.d. enn án félaga….
Smári
15. febrúar, 2008 at 03:45 #524451108755689
MeðlimurGott pepp strákar. Er búinn að skrá mig. Auglýsi her með eftir plássi í bíl fyrir kassavanann karlmann á besta aldri. Er feykimyndarlegur, þéttur á velli með hörfandi hárlínu og kímnigáfu í meðallagi góða. Verð einn á ferð (sem er ótrúlegt miðað vð lýsinguna hér að ofan) svo mig vantar einnig klifurfélaga.
Bragi
15. febrúar, 2008 at 09:14 #52446Siggi Tommi
ParticipantFer með þó ég sé ekki að safna enni eins og Bragi…
15. febrúar, 2008 at 11:17 #524471108755689
Meðlimurp.s. hægt að ná í mig í s. 825-5034 og bragifreyr(hja)gmail(punktur)com
15. febrúar, 2008 at 13:22 #52448Robbi
ParticipantHvað með alla gömlu kallana?
Ætlar enginn af þeim að mæta, hvar er Jón Haukur, Palli, Guðmundur Helgi og allir hinir ?Ekki ætliði að láta ykkur vanta á annað festivalið í röð…eru þið kanski hræddir við fetlalausu kynslóðina ?
Robbi
15. febrúar, 2008 at 15:39 #52449Skabbi
ParticipantÞað er naumast gorgeirinn! Klifrar eina leið undir Eyjafjöllum og veður svo uppi með derring og dónaskap!
Ég er sko ekkert hræddur við þig, ef þú verður með svona stæla fer ég ekki í ríkið fyrir þig.
Skabbi
sem er illt í mjöðminni…15. febrúar, 2008 at 15:45 #52450Anonymous
InactivePalli , Olli og Guðjón Snær ætla að mæta
Olli17. febrúar, 2008 at 12:14 #524512506663659
ParticipantOg erum óhræddir
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.