Home › Umræður › Umræður › Skíði og bretti › Eyjafjallajökull
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
24. janúar, 2005 at 08:16 #46690Stefán ÖrnParticipant
Fórum sex vaskir piltar á Eyjafjallajökul á laugardaginn – Steppo, Siggi Skarp, Helgi Hall, Ådne hinn norski og bræðurnir Halli og Haukur. Snérum við í 1500 metrum enda veðrið orðið afar slæmt og A4 útsýni. Rennslið hið ágætasta og náðum að ljúga okkur alla leið niður í bíl án þess að taka af okkur skíðin. Jökullinn var mjög þægilegur yfirferðar og ekkert um sprungur nema nokkrar áberandi á helstu bungum.
Tek undir með Olla. Eyjafjöllin litu gríðarlega vel út. Spurning hvað það helst lengi í komandi hitatíð.
Steppo
24. janúar, 2005 at 09:09 #49364SissiModeratorBuhuhuhuhu
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Búist er við stormi á norðvestanverðu landinu síðdegis.Sunnan og suðvestan 10-18 m/s og rigning eða súld, en 5-13 og úrkomulítið um landið austanvert. Hvessir síðdegis, 18-25 norðvestantil síðdegis, annars hægari. Hiti 4 til 10 stig, en 0 til 4 stig austanlands í fyrstu. Suðvestan 5-10 á morgun og víða súld vestanlands, en skýjað með köflum og þurrt austantil.
Á miðvikudag og fimmtudag: Vestan og suðvestan 5-10 m/s og lítilsháttar súld eða rigning öðru hvoru vestantil, en léttskýjað austantil. Hiti 4 til 9 stig.
Á föstudag: Suðvestanátt, 8-13 m/s norðvestantil, en annars hægari. Rigning eða slydda sunnan- og vestantil, en annars skýjað með köflum. Hiti 1 til 6 stig.
Á laugardag og sunnudag: Suðvestanátt og súld eða rigning, en þurrt norðaustan- og austanlands. Hlýtt í veðri.
24. janúar, 2005 at 09:50 #49365Siggi TommiParticipantÞetta er nú meiri viðbjóðurinn.
Eins gott að leggja öxunum og skíðunum bara strax…
Stefnum á klettaklifurfestival um miðjan febrúar.24. janúar, 2005 at 10:54 #493662003793739MeðlimurÉg legg til að sem flestir fara bara og prófi nýju leiðirnar í Klifurhúsinu.
Fínar leiðir komnar upp eftir keppnina á sunnudaginn.
Takk fyrir frábært bouldermót.
Kv
Halli24. janúar, 2005 at 11:00 #49367SissiModeratorAhm – skipuleggjendur eiga heiður skilinn!
24. janúar, 2005 at 17:45 #49368Stefán ÖrnParticipantSett’inn nokkrar myndir frá ferðinni.
Þær eru hér=> http://gallery.askur.org/album290 -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.