Home › Umræður › Umræður › Skíði og bretti › Eyjafjallajökull
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
18. apríl, 2007 at 10:46 #464530808794749Meðlimur
Veðurspáin fyrir morgundaginn lítur vel út. Einhver til í rölt og rennsli á Eyjafjallajökul?
19. apríl, 2007 at 20:49 #51367Freyr IngiParticipantHeyrði í Sveinborgu áðan og ekki vantaði lýsigarorðin yfir rennslisferð hennar og Tinnu niður Eyjó. Þær stöllur vantaði heldur ekki félagsskap þar sem þær hittu 8 aðra í svipuðum erindagjörðum í sumarblíðunni á jöklinum.
Hverjir gerðu hvað í dag, sumardaginn besta (so far)
Freyr
20. apríl, 2007 at 12:10 #513682303842159MeðlimurÉg og Viðar fórum leiðina Austurrif upp á Skarðshornið.
Klassa leið á klassa degi!
Nokkrar myndir á:
20. apríl, 2007 at 13:28 #51369SissiModeratorDjöfull er þetta töff, glæsilegt hjá ykkur!
Ég var samt duglegur í gær, drakk 2 latté með vanillusýrópi Í RÖÐ í góða veðrinu! Geri aðrir betur.
Siz
20. apríl, 2007 at 13:49 #513702008633059MeðlimurVirkilega flottar myndir! Væri þægilegt ef hægt er að setja linka á öll svona myndasöfn á einn stað á ÍSALP vefnum. Svo er bara að kýla á hugmyndina sem Friðjón kom með um (árleg?) ÍSALP-verðlaun fyrir bestu fjalla/klifurmyndirnar sem félagar senda inn. Mætti t.d. nota bestu myndina á forsíðu ársritsins, hafa myndasýningu í tengslum við Banff o.s.frv.
21. apríl, 2007 at 08:39 #513712806763069MeðlimurÞetta hljómar vel. Ísalp ætti að áskilja sér rétt til að nota allar myndirnar á síðunni. Þannig kæmi meiri fjölbreytileiki hér á vefinn (þó þetta séu allt frábærar myndir sem Helgi hefur valið hingað til).
Skemmtilegast væri ef hægt væri að hafa mismunandi flokka t.d.
Náttúra
Ísklifur
Fjallamennska
Klettaklifur
Skíði
Almenn útivera.Og svo sú besta.
Þeir sem gefa verðlaun gætu svo fengið að nota þær myndir sem hljóta verðlaun. Annars ætti nú að vera hægt að gera þetta áhugavert án þess að um sé að ræða einhverjar ógurlegar fjárhæðir í verðlaunum (enda er slíkt heljar bögg fyrir þá sem að keppninni standa).
Annars greinilega frábær dagur á fjöllum hjá Hauki og Viðari. Fjallagleðin skín út úr hverri mynd. Um að gera fyrir sem flesta að nýta nú tækifærið og skella sér í Skarðsheiðina.
Í góðum ísaðstæðum eru þessir veggir (þekki nú reyndar bara Skessuhornið sjálfur) frábær staður til að stíga fyrstu skrefin í alvöru fjölspanna klifri.
Svo eru þetta líka bara snildar klifur sem maður fær aldrei leið á, eins og sést á þeim Hauki og Viðari.Kv. Sófacore
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.