- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
9. maí, 2011 at 12:10 #47602RobbiParticipant
Í dag legg ég ásamt Guðmundi Einari Halldórssyni af stað til Alaska. Ætlunin er að ganga á Denali 6194m, hæsta fjall norður ameríku. Við ætlum að hafa það fáránlega gott í þann mánuð sem við verðum úti, tíminn er nægur svo það er aldrei að vita að maður reyni ekki bara að skíða eitthvað skemmtilegt eða brölta eitthvað út frá 14000ft.
Styrktaraðilar ferðarinnar eru:
[ul]Fjallakofinn með Scarpa, Marmot, Julbo, Smartwool, Helsport og Black Diamond
Real Turmat
Kostur
Swiss Miss
Corny
Canon á Íslandi[/ul]9. maí, 2011 at 12:29 #56662SissiModeratorGlæsilegt, gangi ykkur vel piltar!
9. maí, 2011 at 12:36 #56663ÓlafurParticipantMay the Force be with you!
9. maí, 2011 at 14:48 #566641811843029MeðlimurFlottir strákar!
Gangi ykkur vel og komið heilir heim.
Endilega leyfið okkur hér á skerinu að fylgjast ef þið hafið færi á.
10. maí, 2011 at 12:12 #56666BjörkParticipantGangi ykkur vel, maður fær vonandi einhverjar fréttir af ykkur.
kv. Björk
10. maí, 2011 at 12:29 #566670206862359MeðlimurNæss, gangi ykkur vel.
10. maí, 2011 at 13:00 #566691908803629ParticipantLykkes
10. maí, 2011 at 13:06 #56670Freyr IngiParticipantSpennandi dæmi, gangi ykkur vel.
11. maí, 2011 at 09:36 #56677ABParticipantGóða ferð.
AB
12. maí, 2011 at 10:20 #566822301823299MeðlimurSnilld!
17. maí, 2011 at 10:43 #566900703784699MeðlimurBon voyage….hlakka til að sjá myndir og heyra af ferðum ykkar þegar heim er komið.
Himmi
24. maí, 2011 at 23:21 #56707BjörkParticipantHvað er að frétta?
25. maí, 2011 at 23:43 #56711RobbiParticipantHéðan er allt gott að frétta. Komnir í 14.000 fet, búnir að bíða af okkur mikla snjókomu í 4 daga en notuðum dagana til að renna okkur í fersku púðrinu. Ferðin búin að ganga annars glimrandi vel. Stefnum á að toppa á fimmtudag eða föstudag, fer svolítið eftir veðri.
Minni aftur á styrktaraðila ferðarinnar:Fjallakofinn með Scarpa, Marmot, Julbo, Smartwool, Helsport og Black Diamond
Real Turmat
Kostur
Swiss Miss
Corny
Canon á Íslandi26. maí, 2011 at 10:03 #56712Björgvin HilmarssonParticipantÞú lætur þetta hljóma eins og göngu í garðinum bara… taka smá púður ride fyrir hádegi, toppa svo eftir hádegi, ef veðrið er sæmó hehe.
Gangi ykkur vel og farið varlega. Hlakka til að heyra sögurnar og sjá myndirnar maulandi Corny og drekkandi Swiss Miss niðrí Skútuvogi
Já og farðu svo að tala í metrum drengur
26. maí, 2011 at 11:43 #56714Freyr IngiParticipantGaman að heyra af ykkur í góðum málum þarna drengir.
Stuðkveðjur!
27. maí, 2011 at 00:28 #567162401754289MeðlimurFarid varlega vinir
Var ad missa einn vin I snjoflodi rett hja ykkur
Fridjon27. maí, 2011 at 14:14 #56717SkabbiParticipantHæ
Tek undir með þeim sem skrifa hér að ofan, góða ferð strákar en farið varlega í snjónum.
Allez!
Skabbi
27. maí, 2011 at 14:35 #56718andrisvParticipantGóða ferð „frændi“
29. maí, 2011 at 22:36 #56722Gummi StParticipantlas á annari vefsíðu að þeir hafi toppað Denali
„Þeir toppuðu 6.194 metrar (20.320 fet) í gær kl. 15 í snjókomu og kulda.
Gistu í 17.200 fetum (High Camp) í nótt og ætla í 14.200 í dag.
Þeir biðja að heilsa öllum.“30. maí, 2011 at 00:35 #56723Björgvin HilmarssonParticipantNú jæja já… Ísalp síðan ekki nógu fín ha?
En ég segi bara til lukku félagar ef þið hafið toppað og góða ferð niður.
30. maí, 2011 at 10:44 #567250703784699Meðlimurannarri siður? og enginn linkur?
30. maí, 2011 at 12:50 #567262809774899MeðlimurTil lukku með áfangann drengir og gangi ykkur vel.
30. maí, 2011 at 19:43 #56728Gummi StParticipantGóð ábending Bjöggi, en þetta var trúlegast aðstandandi annars þeirra sem póstaði þessu á aðra síðu sem ég ætla ekki að nefna hér en síðasti stafurinn er acebook…
-GFJ
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.