Ég vil bara minna alla á að fara EKKI á nýju Batman myndina sem er verið að frumsýna um þessar mundir. Eins og flestir vita voru nokkrir klifrarar stöðvaðir af starfsmönnum myndarinnar við Svínafellsjökul í fyrravor og meinaður aðgangur að jöklinum. Ég var í þeim hópi og vorum við frekar ósáttir. Leggjumst nú öll saman á eitt og hunsum þennan skríl. Og HANANÚ!!!!!
Já, hvernig væri það?
Svo er bannað leyfa vinum og ættingjum að fara.
Ef þið viljið endilega horfa á hana þá verðið þið að sækja hana á netið…
Bannað að borga þessum fasistum!
Áhugaverðust þykja mér þó mótmæli gönguhóps rannsóknarlögreglunnar sem segist nú bara ganga þar sem þeir vilja þar sem Clintarinn ætlar að loka uppáhaldsgöngulandinu þeirra.