Hæ
Það er allt að gerast hjá klúbbnum. Það vita þeir 50-60 sem mættu á ísklifurmyndasýningu og búnaðarbazar í seinustu viku.
Ágúst rúllaði myndasýningunni upp og ég held að Leifur Örn sé ókrýndur sölukóngur kvöldsins!
Ég var annars að bæta inn jólaklifrinu á dagskránna, 15 des. Ef snjóalög og stemmning leyfa þá verður líka boðið upp á jólaskíðun. Ekki missa af því.
Og ekki heldur missa af mögnuðu tækifæri sem gefst til þess að mixklifra inni í Klifurhúsi! Í kjölfarið verður smá hóf haldið sameiginlega með Klifurhúsgenginu. Einnig á dagskránni.
Sakar ekki að skrá sig þó það sé engin skylda.
Sjáumst á næsta viðburði!