Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › Valshamar og Bensínbor › Re: svar: Valshamar og Bensínbor
Gekk frá toppakkeri fyrir nýju leiðina í gærkvöldi og bætti við einum bolta í Eilíf. Það voru nokkrir sem prófuðu leiðina og gráðan er ca 5.7 – 5.8.
Varðandi umræðuna um borvélar, þá er stærsti gallinn við batterísvélar að viðhalda lífinu í batteríinu, það kemur svo yfirleitt á daginn að batteríin eru dýrari en vélarnar þegar á svo að endurnýja. Bensínvél er sennilegar öruggari í rekstri fyrir félagasamtök þar sem að margir ganga um vélarnar.
jh
ps. Athugasemd til Helga varðandi kostnað á blaðinu, þá er prentunin mjög sambærilegu verði og þegar það var svart hvítt, auk þess sem 2 ára budget ætti að duga fyrir því sem auglýsingarnar dekka ekki, þannig að ekki kenna blaðinu um slappa fjárhagsstöðu.