Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Þurrtólun í RVK › Re: svar: Þurrtólun í RVK
Þú ættir að prófa Leirvogsgil. Það er fínt að æfa sig þar, traust berg en nokkuð erfiðar leiðir. Einhverjir boltar eru í berginu en þær gætu reynst varasamir enda nokkuð komnir til ára sinna. Hægt er að koma upp ofanvað á þægilegan hátt. Þarna fer enginn lengur til að klettaklifra svo líklega er þetta besti kosturinn í grennd við borgina.
Góða skemmtun!
AB
P.s.
Ef ske kynni að þú vitir ekki hvernig finna á svæðið þá er það í stuttu máli svona. Keyra Vesturlandsveg, beygja til hægri og keyra eftir malarvegi í austurátt meðfram suðurhlið Kistufells, Leirvogsgil er þá á hægri hönd. Eftir um 2 mínútna og 13 sekúnda akstur skal bifreið stöðvuð. Ganga niður gilið og leita að 7 m háu heillegu klettabelti.
Ekki er mögulegt að gefa nákvæmari leiðbeiningar, þessi lýsing er algjörlega fullkomin. Óje.