Akureyri
Svæðið í kringum Akureyri hentar einstaklega vel til útivistar. Akureyringar hafa príðis góða aðstöðu til að kíkja á skíði, fjallahjól og fjallgöngur. Einnig hafa þeir sportklifursvæðið Munkaþverá og steina til að stunda grjótglímu hingað og þangað í námunda við bæinn.
Í Kjarnaklettum eru nokkrar gamlar dótaklifurleiðir.
Eitthvað hefur verið ísklifrað í kringum bæinn og þá helst í Kjarnaskógi en líka í Munkaþverárgilinu, innar en sportklifurleiðirnar að sjálfsögðu. Svo aðal sectorar Akureyrar eru:
Kjarnaskógur
Þrjú áberandi klettabelti eru fyrir ofan tjaldsvæðið Hamra. Frá suðri til norðurs eru þetta Langiklettur, Arnarklettur og Krosklettur. Eitthvað er af dótaklifri í Arnarklettum, ber þar helst að nefna leiðina Indjánann sem hefur staðið til að bolta um einhvern tíma sökum þess hve illtryggjanleg hún er. Á veturna myndast ís á vissum stöðum í Langaklett sem heimamenn, sem og aðrir hafa nýtt til ís- og mixklifurs.
- Kaldi – M7
- Ónefnd – WI 4?
- Ónefnd – WI 3?
Glerárgljúfur
Langt og fjölbreytt gil. Mis djúpt en á nokkrum stöðum eru allt að 60m klettar. Mikilfenglegt og hrikalegt gjúlfur og mjög stutt frá bænum.
- Mellufær á Glerá – WI 5
Smábátahöfnin
Lágir klettar við smábátahöfnina inni á Akureyri. Oft verða klettarnir að samfelldu ísþili og því verður erfiðara að greina á milli leiða. Þetta svæði hentar einstaklega vel til ísklifuræfinga og kennslu auk þess að vera mjög aðgengilegt fyrir skottúr eftir vinnu.
- Bryggjuball – WI 2/3
- Duggi dugg – WI 2/3
- Hálfaaldan – WI 2/3
- Rúmsjór – WI 2/3
- Trausti – WI 2/3
- Bryggjupollinn – WI 2
Munkaþverá
Innst í Munkaþverárgilinu, ofan við brúna myndast einhver ís á veggjunum yfir áni. Hér hefur lítillega verið mixklifrað í toprope.
Vaðlaheiði
Ein leið skráð eins og er, Tönnin. Líklega leynast fleiri leiðir á Vaðlaheiðinni
- Tönnin – WI 3+
Leiðarlýsing
Frá Reykjavík er keyrt norður eftir þjóðvegi 1 í 4,5 klukkutíma.