Leið númer 5 á yfirlitsmynd.
Utarlega austan megin í Litlasandsdal, aftan við Þyril.
Leiðin er tvær fullar spannir. Fyrri spönnin er WI 4 (gæti hæglega orðið stífari í öðrum aðstæðum) og fer upp frekar langan kafla af samfelldu klifri. Þegar komið er upp langa samfellda haftið þarf að ganga talsvert inn á við til að komast að byrjuninni á næstu spönn. Næsta haft byrjar bratt, hægt að halda sig í miðjunni fyrir ca WI 4 eða fara aðeins til hægri fyrir WI 3+ ca 10m haft. Eftir þetta 10m haft heldur spönnin áfram með stutt en brött höft og endar á því að toppa út upp á Þyril.
Niðurferð
Niðurgöngugil er hægra megin (á hönd klifrara) við „Liquid Nitrogen“ (númer 7) – er þá haldið í suðvestur eftir að leiðin er toppuð og gengið út dalinn í átt að hátindi Þyrils. Í góðum snjó er gilið nokkuð þægilegt til niðurferðar. Einnig er hægt að síga niður upprunalegu leiðina á þræðingum.
FF: Freyr Ingi Björnsson og Styrmir Steingrímsson, 2012, WI 4 – 55m og WI 3+ – 60m
Klifursvæði |
Hvalfjörður
|
Svæði |
Litlasandsdalur |
Tegund |
Ice Climbing |