Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
Jon Smari
ParticipantKlifraði Spora ásamt Stefán Ágúst í gær mánudaginn 25. mars. Ágætisaðstæður, ísinn nokkuð góður að mestu, en töluvert um regnhlífar og „snís“ efst.
Jon Smari
ParticipantVið Snæbjörn fórum í Tvíburagil fyrir um viku síðan. Frekar fátækt af tryggjanlegum ís, en skemmtilegur ís í kringum mix-leiðirnar.
Jon Smari
ParticipantSkunduðum tveir í Tvíburagil í gærdag (Jón Smári og Þórður Bergsson), líklegast óþarfi að segja frá því en aðstæður voru mjög góðar. Fórum leið sem ég kann ekki að nefna, en væri gaman að vita hvað heitir. Leiðin er innarlega og snýr niður gilið, hægra megin við boltaða mix-leið. Mikill snjór var/er upp á brúninni, þannig ómögulegt reyndist að finna akkerið. Sköpunargáfan fékk að njóta sín við þá smíð.
Kveðja,
Jón SmáriJon Smari
ParticipantÉg leit einmitt einnig við í turninum áðan og er sama sinnis. Ég hef engar töfralausnir. Er hinsvegar tilbúinn í að hjálpa til ef e-r kemur með góða/betri uppskrift af því að safna ís.
Kveðja,
Jón SmáriJon Smari
ParticipantTakk fyrir þetta! Ég er ekki viss að ég komist á laugardaginn þó glaður vildi. Vonandi verður enn frost í kortunum eftir helgi.
Jon Smari
ParticipantÉg mæti ef ég finn mér vængmann!
Jon Smari
ParticipantÞú getur rætt við Íslenskafjallaleiðsögumenn en þeir hafa verið að selja notuð TNF VE25 tjöld, sem er örugglega það sem þú ert að leita þér að. Ég keypti mér eitt um árið.
Kveðja,
Jón SmáriJon Smari
ParticipantNú hver andsk… hélt að basarinn yrði í FBSR.
Jon Smari
ParticipantHehehe… held ég gæti ekki boðið nógu hátt verð miðað við alla fyrirhöfnina hans að opna afmælisgjöfina!
Ég mæti klárlega á búnaðarbasarinn, enda á heimaslóðum.
Kveðja,
Jón SmáriJon Smari
ParticipantFrábært framtak!! Var einmitt að þreifa fyrir mér í ísklifri síðasta vetur og í sumar. Klárlega kominn tími til þess að breyta til í KH og prófa þurrtólun.
Kveðja,
Jón SmáriJon Smari
ParticipantSæll og kærar þakkir fyrir boðið. Vill svo til að ég fann notaðar BD Cobra í US. Ef þær skila sér ekki þá hef ég samband við þig.
Kveðja,
Jón SmáriJon Smari
ParticipantSælir, Skemmtileg umræða!
Ég hef verið að notast við poka frá Marmot (Helium Membrain) sem mér líkar mjög vel við. Hann er gefinn upp fyrir -9’C í Comfort og vegur aðeins 1050gr.
Kveðja,
Jón SmáriJon Smari
ParticipantKærar þakkir fyrir svörin!
Ég hef séð á erlendum spjallsvæðum að það virðist mest fjallað um Burton og Voile, en dómar virðast nokkuð jákvæðir varðandi svona útbúnað. Ég var nokkuð sannfærður í fyrstu að þetta myndi í raun aldrei virka, myndi kannski tolla saman á niðurleiðinni en myndi aldrei virka eins og gott bretti. En það er greinilega ekki eftir neinu að bíða en að reyna að verða sér út um slíkan búnað.
Kv, – JSJ
-
HöfundurSvör