Arni Stefan

Svör sem þú hefur skrifað

25 umræða - 26 til 50 (af 55)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: Hver hefur ekki lent í þessu? #57800
    Arni Stefan
    Keymaster

    Vá, aldrei tæpt…

    in reply to: BÍS mót í klifurhúsinu #57680
    Arni Stefan
    Keymaster

    Heyrst hefur að þetta verði alveg brjálað, hangandi ís og drumbar í loftinu og okkar eigin Elmar Orri mætir til að trylla lýðinn!

    in reply to: Ísaðstæður #57624
    Arni Stefan
    Keymaster

    Svona leit Eilífsdalur út frá Valshamri í dag.

    Sportklifursísonið er sömuleiðis formlega hafið…

    in reply to: Grigri vs Grigri 2 #57617
    Arni Stefan
    Keymaster

    Grigri er aðeins hannað fyrir 10-11mm línur. Ég hef þó notað það á talsvert grennri línur (niður í 9.1mm) og það virkar ágætlega EN það þýðir að maður verður að vera vel vakandi og vera viss um að það læsist.

    Ég notaði þennan búnað hjá ykkur á samæfingunni um daginn og það angraði mig mikið að það var ekkert handfang á græjunum (gott ef það var ekki grillonið). Í fyrsta lagi þá vissi ég ekki að þetta væri framleitt án handfangs og í öðru lagi fannst mér mjög óþægilegt að stilla mig af án þess. Það var mjög vandræðalegt að koma sér niður í stólana, maður þurfti eiginlega að draga nægan slaka í gegn og niðurklifra í stólinn. Það mætti auðveldlega spara tíma og óþægindi bæði fyrir björgunarmann og þá sem eru í stólnum ef hægt væri einfaldlega að síga niður.

    Þar fyrir utan er nýja grigri2 25% minna og 20% léttara auk þess sem bremsan er betur hönnuð og gefur betri stjórn. Það er líka hannað fyrir línur niður í 8.9mm.

    in reply to: Black diamond ísaxarblöð og fleira #57591
    Arni Stefan
    Keymaster

    Þeir hafa líka verið að gera hamra fyrir nomicinn, man reyndar ekki nákvæmlega að hvaða leiti þeir áttu að vera betri…

    in reply to: Ísfestival eða ekki? #57495
    Arni Stefan
    Keymaster

    Stefnir þetta í beil eða hvað?

    Það var samt nægur ís í Múlafjalli og Eilífsdalur var alhvítur seinasta laugardag. Eftir (nætur)frostið seinustu og næstu daga gæti það verið í príma aðstæðum. Það ætti að geta verið ágætis sárabót…

    in reply to: information #57434
    Arni Stefan
    Keymaster

    The route from Seljavellir is the most common one. It’s mostly a gentle slope all the way to the top, and supposed to be brilliant for skiing down (although I haven’t tried that myself).
    Another option is to start from Skógar, go up Fimmvörðuháls, there you can check out the new mountain witch was formed in the eruption just before the Eyjafjallajökull eruption. From there go west to the Eyjafjallajökull. It is considderably longer route but on the plus side there is a nice hut on Fimmvörðuháls (the one Útivist owns) where you could spend a night.

    in reply to: Munur á dyneema sling og Nylon #57380
    Arni Stefan
    Keymaster

    Það er ekki alveg sambærilegt. Slingurinn tapar helming af styrk sínum þarna í fullkomlega statísku kerfi sem verður fyrir höggi (shock load). Þar sem hann tognar ekkert og dregur þar með ekkert úr högginu. Í þeim tilfellum sem slingar eru notaðir í akkeri er línan hluti af kerfinu og þar með hellings dempun. Fyrir þetta tilfelli, þar sem mikil dempun er í kerfinu væri nærri lagi að prófa að slíta svona sling með hnút í tjakk (slow pull test). Ég hef ekki séð neinar slíkar mælingar, spurning hvað kæmi út úr því (væri mögulega hægt að prófa þetta uppí háskóla, þar er stór tjakkur).

    Ég er samt fullkomlega sammála niðurstöðunum úr vídjóinu, en ég er bara ekki viss um að þær eigi við í því tilfelli sem þú stilltir upp Robbi.

    in reply to: Munur á dyneema sling og Nylon #57366
    Arni Stefan
    Keymaster

    Klárlega eitthvað sem menn (og konur!) ættu að vita af.

    Annars er ég mjög hrifinn af því að nota prússellu til þess að festa mig í stans. Hún hefur þann kost að það er mjög auðvelt að stilla sig af og einnig minnkar hún höggið ef fall á sér stað þar sem prússikinn skrikar undir of miklu álagi.

    Síðan er hestahnúturinn alltaf möguleiki.

    in reply to: Ísaðstæður 2011-2012 #57321
    Arni Stefan
    Keymaster

    Ég, Helgi Egilsson og Rúna Thorarensen skelltum okkur í stutta ísklifur og gönguskíðaferð nú í vikunni.
    Við byrjuðum í Brynjudal þar sem allt var í brakandi aðstæðum (amk fyrir hláku) og klifruðum Þrándarstaðafossana. Þá var ferðinni heitið í Haukadalinn og vorum við líklega fyrstu klifrararnir þar á ferð þetta sísonið. Dalurinn er (eða amk var) fullur af ís og við klifruðum þar í tvo daga. Ef að sama er í gangi í Bíldudal eigum við vonandi feitt festival í vændum.
    Þá var ferðinni heitið á Lýsuhól á Snæfellsnesi þar sem planið var að skíða á gönguskíðum. Ferðin þangað var sérstaklega skemmtileg og tók litla 6,5 tíma, oft á tíðum vorum við Rúna á broddum að ýta við bílnum til þess að halda honum á veginum. Setjum kannski inn ferðasögu/myndir seinna.

    Hvernig er það annars með ísklifur á Snæfellsnesinu? Hefur mikið verið klifrað þar og ef já, þá bæði sunnan og norðan megin?

    in reply to: Ísaðstæður 2011-2012 #57239
    Arni Stefan
    Keymaster

    Við Jonni fórum í Tröllafossinn í dag. Hann er nánast alveg frosinn nema hvað að vinstra megin í honum sprautast út um stórt gat. Gilið er pakkað af snjó og sáum að það hafði verið eitthvað á hreyfingu þannig við sigum niður fossinn sjálfann og tókum nokkrar ferðir hvor í toprope.

    [attachment=363]Trllafoss19.12.11-12.jpg[/attachment]

    Fossinn er ekki nema um 10-15m og klifrið mjög þægilegt. Ef menn eru vel jeppaðir er hægt að keyra alla leið inn að fossinum en ég mæli þá amk með því að hafa skóflu í bílnum. Við gengum frá veginum sem liggur inn að Hrafnhólum, u.þ.b. 2km rölt.

    in reply to: Jólaklifur #57207
    Arni Stefan
    Keymaster

    Reikna með að mæta en fer kannski í fyrra fallinu.

    in reply to: Ísaðstæður 2011-2012 #57092
    Arni Stefan
    Keymaster

    Ég, Helgi og Rúna klifruðum Ýring í dag í frekar þunnum aðstæðum mikið af frauði og ennþá meira af snjó og á köflum tortryggður. Seinasta spönnin var mjög kertuð en svosem allveg slatti af ís þar, mun meira en neðar í leiðinni, klifruðum hana samt ekki.

    Annars er Brynjudalurinn allur að detta inn en þarf kannski nokkra daga en til að verða góður. Okkur sýndist Óríon vera byrjaður að myndast en sáum ekki hversu mikið. Renndum svo út að Múlafjalli, þar var eitthvað af ís en þarf líklega meiri tíma.

    in reply to: 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a #57008
    Arni Stefan
    Keymaster

    Til hamingju Valdi!

    in reply to: Saurgat Satans #56898
    Arni Stefan
    Keymaster

    Frábær dagur og frábær leið. Þetta er leið sem er hiklaust hægt að mæla með. Varðandi rönnátin þá finnst mér þau bara gefa þessu karakter og góð hvatning til að klifra alveg pottþétt vel alla leið.

    in reply to: Hnappavellir uppfært #56888
    Arni Stefan
    Keymaster

    Vel gert Valdi og miklar þakkir til allra sem stóðu að opnun nýrra leiða.
    Fékk Föðurlandið gráðu? 8b+?

    in reply to: Slys í Kverkfjöllum – staðsetningar? #56873
    Arni Stefan
    Keymaster

    Varðandi Sólheimajökul þá er enginn hellir þar, amk ekki neðarlega á honum. Hitt er svo annað mál að ferðamenn eru mjög duglegir við að rölta inn á jökulinn og sumir hverjir ansi langt.

    in reply to: Að byrja í ísklifri #56872
    Arni Stefan
    Keymaster

    Svo má benda á björgunarsveitirnar líka. Nýliðaþjálfunin hjá björgunarsveitunum getur verið mjög góð undirstaða til þess að byggja frekari útivist á. Þar eru haldin mörg námskeið sem nýtast vel s.s. fyrsta hjálp, rötun og fjallamennska. Þar ættir þú líka að geta kynnst einhverjum ísklifrurum og ekki skemmir fyrir að láta gott af sér leiða.

    in reply to: Tapað / fundið í Stardal #56774
    Arni Stefan
    Keymaster

    Líklega var þarna Leifur Örn frá Fjallaleiðsögumönnum á ferð, held að það séu meiri líkur á að ná í hann í leifur@mountainguides.is heldur en hér.

    Ég hreinsaði hins vegar heillega en ómerkta Black Diamond Rock Lock karabínu sem skilin var eftir í næst efsta boltanum í Sóley í Pöstunum. Ef einhver kannast þetta má viðkomandi láta vita…

    in reply to: Valshamar-nýliðaferð #56720
    Arni Stefan
    Keymaster

    Er stjórnin annars búin að plana þetta nánar, þ.e. kl hvað og hvaðan er farið? Er laugardagurinn on eða verður þetta sunnudagur?

    in reply to: Valshamar-nýliðaferð #56706
    Arni Stefan
    Keymaster

    Það er þægilegra að vera í sérstökum klifurskóm (klifurtúttum) en léttari leiðir er alveg hægt að klifra í gönguskóm. Varðandi annan búnað dugar að hafa belti. Klifurbelti er heppilegra en sigbelti virkar svosem líka. Að lokum minni ég á nesti og hlýja yfirhöfn ( ég hef t.d. dúnúlpuna alltaf með þó það sé fínt veður, manni kólnar fljótt við að tryggja).

    in reply to: banff #56673
    Arni Stefan
    Keymaster

    Trailerinn lúkkar mjög vel. Þetta verður fjör.

    in reply to: Scarpa eða La Sportiva #56650
    Arni Stefan
    Keymaster

    Hæhæ
    Ég er búinn að ganga á Nepal Extreme frá La Sportiva í u.þ.b. eitt og hálft ár núna. Þeir hafa reynst mér mjög vel en ég er búinn að nota þá bæði í stuttar göngur (bæði með og án brodda) ísklifur og lengri ferðir. Þar sem þeir eru úr leðri eru nægilega mjúkir til þess að hægt sé að ganga á þeim í sléttu og einföldu landslagi (reyndar alltaf pínu kjánalegt á malbiki eins og gefur að skilja), en þá reima ég þá bara aðeins lausar. Sem fullstífir skór eru þeir síðan frábærir í brattara og erfiðara landslag og klifur. Þeir taka mjög vel við broddum, hvort sem það eru ólabroddar eða smelltir broddar.
    Varðandi hvora skóna þú ættir að fá þér þá veit ég að þeir sem hafa átt báðar gerðir segja að þær eru mjög sambærilegar, Scarpa skórnir eru víst heldur breiðari. Þegar kemur að svona fjárfestingu skiptir meira máli hvor týpan hentar þínum fæti betur, ekki kaupa skó sem særa þig; þeir lagast eitthvað örlítið að fætinum þínum en svona skór eru það stífir að það er mjög lítið, þeir verða að passa.
    Að lokum varðandi Nepal Extreme á móti Nepal Evo. Evo skórinn er aðeins léttari (200g minnir mig), en þeir endast víst ekki jafn vel og Extreme útgáfan sem gæti skipt þig máli ef þú sérð fram á stórfellda notkun.

    in reply to: Aðstæður á Eyjafjallajökli #56596
    Arni Stefan
    Keymaster

    Glæsilegt. Þakka kærlega fyrir góð svör.

    in reply to: Fjallaskíði til sölu – NÝ #56507
    Arni Stefan
    Keymaster

    Verðhugmynd?

25 umræða - 26 til 50 (af 55)