Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
Arnar JónssonParticipant
Stundum þegar lítið er að finna af ís Múlafjalli og Brynjudal en þó búið að vera ágætis frost svona snemma veturs er oft vel þess virði að trítla inn að Glymsgili. Hef nokkrum sinnum fundið nóg af ís þar þegar lítið er að finna af honum í nágreninu.
En þar sem þú náttúrulega sérð ekkert frá veginum inní gilið þá er það alltaf nokkur áhætta
P.s. Hvað er að frétta af Eilífsdal? Sáum að hann var allur að koma til síðustu helgi.
Kv.
ArnarArnar JónssonParticipantKlárlega flottir báðir tveir þarna Undir 3 tímum, ansi gott það.
Kv.
ArnarArnar JónssonParticipantEf það að geta stundað þetta reglulega án þess að borga svífandi háar upphæðir fyrir væri mögulegt, þá mundi ég ekki láta mig vanta og flestir sem eru í þessu klúbb væntalega ekki heldur.
Þar sem við flest vitum að það er ansi erfit að æfa ísklifur örðuvísi en að klifra ís, þó aðstæður til að æfa drytool innandyra sem utan hefur hljálpað töluvert í þeim efnum.
Aðstaða þar sem hægt sé að æfa og stunda ísklifur allan ársins hring mundi svo sannlega vera snilldar fyrirbæri fyrir okkur ísalpara.
Þó yrði sennilega erfit að reka slíkt batterí, þar sem húsnæði og kostnaður að kælikerfi o.s.f.v. yrði sennilega mikill.Kv.
ArnarArnar JónssonParticipantFrábært framtak. Hlakka til að heyra meira. Gangi ykkur vel!
Kv.
ArnarArnar JónssonParticipantVið Gummi og Óðinn kíktum uppá Eggina á laugadaginn í glimrandi sól og hita. Eftir það skelltum við okkur á hnappavelli þar sem veður var ágæt. Myndir frá eggunnu má sjá á síðunni okkar.
Kv.
ArnarArnar JónssonParticipantÍ kvöld mun kvenhetja láta ljós sitt skína í hinni áhugaverðu Rowing the Atlantic þar sem breski súper kvenmaðurinn Roz Savage fer alveg alein í róðra bát þvert yfir Atlantshafið í yfir 3000 mílna róðri.
Svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af skorti á kvennhetjum þetta árið á Banff Björk mín, þó vissulega mættu þær vera fleirri
Sjáumst öll í kvöld!
Kv.
ArnarArnar JónssonParticipantTalandi um myndir..
Rakst á þessa skemmtilegu mynd. Því að fara útá land þegar þú getur klifrað heima hjá þér?
Btw. Fínar myndir hjá þér Bjöggi. Gaman að sjá myndir af flugferðum
Kv.
ArnarArnar JónssonParticipantHeld að þið hefðuð átt að kíkja í Glymsgil. Það voru svipaðar aðstæður fyrr í vetur þar sem Múlinn, Eilífsdalur og Brynjudalurinn voru mjög íslitlir og ekki neitt sérlega fýsilegir til klifurs. En í Glymsgili var hinsvegar mun meiri ís en þetta er alltaf svo breytilegt.
Sjáumst fyrir austan,
ArnarArnar JónssonParticipantHvernig er það annars með turnin í Grafarvogi, datt engum í huga að kveikja á honum í þessum flotta frostakafla sem er búin að vera?
Kv.
ArnarArnar JónssonParticipantLike Skabbi said, the weather has been total crap (dam you global warming) these last weeks, and the promise of frost in the weather charts has like so often always been a disappointment.
But there might still be a possibility that we will go out and do some dry tooling or go to Sólheimajökull, tomorrow or on Sunday like we discussed in Klifurhúsið the other day. You have my number and you can call me later to day, then I should have some more info.
Best regards,
ArnarArnar JónssonParticipantHérna er önnur mynd sem ég fann..
Arnar JónssonParticipantEitt enn.. Það eru líka fullt að stuttum skemmtilegum myndum inná http://www.reelrocktour.com/ undir filmmakers compotition sem alveg vert að skoða og brosa yfir.
Kv.
ArnarArnar JónssonParticipantÉg á við svipað vandamál að stríða eins og Palli. Lappirnar mínar eru frekar breiðar þannig að ítalskir skór líkt og La Sportiva og Scarpa eru báðir fyrir frekar grennri fætur. Besta leiðin til að laga það er bara að kaupa leður skó vegna þess að þá geturu farið með þá til skósmiðs og látið hann víkka hann fyrir þig með því að setja þvingu inní skóinn og geyma yfir nótt. Það virkar að ég held bara mjög vel (hef samt ekki beina reynslu af því).
Annars hef ég heyrt betri hluti um La Sportiva skónna þessa dagana en Freney, auk þess sem hann er leður skór svo að það ætti að vera létta að víkka þá. Gummi stóri á annars báðar týpurnar og hefur notast við þær báðar svolítið. Ég held að hann geti svarað þér betur um hvað honum líki betur við.Kv.
ArnarArnar JónssonParticipantHeld að mér hafi þót mest gaman af Sharp End og Patagonian Winter, Andy klikkar ekki þrátt fyrir að hafa ekki gert neitt
Annars var báðar skíðamyndirnar bara nokkuð skemmtilegar þá frekar þessi með UFO drazlinu.. hafði alveg húmor fyrir þvíKv.
ArnarArnar JónssonParticipantSælir,
Þeir Siggi Tommi var svo góðir að setja Topo af þessum svæðum á netið. Hérna er linkur á þau.
http://www.rds.is/siggi/klifur/topo/index.htm
Kv.
ArnarArnar JónssonParticipantSæl,
Eins og Ívar sagði þá er það rétt að upplásnar dýnur eru bestar, þær eru oft merktar sem 3 season eða 4 season, náttúrulega eru 4 season dýnurnar málið. Þó kosta þær frekar mikið, ódýrari kostur eru einangrunar dýnur og það eru til mjög góðar dýnur sem kosta lítið (sem sagt riflaðar dýnur). En þær taka mikið pláss og hafa ekki eins mikla einangrun, en eru hinsvegar léttari en þær uppblásnu.
Til þess að bæta uppá svefnpokan er það fínt að fá sér flís poka eins og Doddi mælti með (hægt að kaupa sér eða búa til) og ef ég man rétt þá á það að hækka (þar að segja lækka ) þæginda mörkin í pokanum um ca. 8°, en þetta er frekar þungt og mikið um sig. Annar kostur eru silki pokar sem eru mun léttari og taka nánast ekkert pláss.. og þeir eiga að hækka (lækka) þægindamörk pokans um ca. 6° og ef ég man rétt þá kosta þeir ekkert það mikið.
Varðandi tjald, þá eru vel þétt tjöld eins og jöklatjöld (4 season) hlýrri heldur en léttari sumar tjöld (2-3 season) en mun dýrari augljóslega. Auk þess sem stærð tjaldsins skiptir máli og fjöldi fólks sem sefur í því Því fleirri því betra, því minna svefnrými því hlýrra.
Þó veit ég ekki alveg með áfengið þar sem það víkar æðarnar í líkamanum sem gerir hann viðkvæmari fyrir kulda og eykur líkur á ofkælingu.. en svín virkar hinsvegar þegar engin hætta er á því
Skál í botn !!
Kv.
Arnar
Arnar JónssonParticipantTil hamingju með þessa leið Andri, flott að þú náðir að klára þetta núna. Þú varst alveg skuggalega nálægt því síðast
Kv.
ArnarArnar JónssonParticipantÉg mundi halda að þú átt alls ekki að klippa línum í byrjun þar sem þá missiru (allavegna minnkaru) einn aðal factorinn í að hafa tvær línur sem er það að geta haft þær sem minnst zikk-zakk með að klippa eina til hægri og hina til vinstri. Þetta minnkar ropedrag eins og við öll vitum vegna þess að ísleiðir eru oftast ekki bara beint upp. Því held ég að það sé rangt að klippa línunum inn báðum í fystu akkerinn því það getur komið í veg fyrir það að þú getir haldið línunum nokkuð aðskildum seinna meir.
Kv.
ArnarArnar JónssonParticipanthttp://www.imdb.com/title/tt0072926/
réttur linkur
Arnar JónssonParticipantVíst að við erum á „old school“ buxunum, þá rakst ég á lista yfir bestu klifurmyndir (Holliwood myndir) og var þar efst á blaði æsi thrillerinn með íslands vininum Clint Eastwood. The Eiger Sanction frá 1975. Ég mæli eindregið með að fólk kíkji á hana ef það er í „old school“ fíling
Arnar JónssonParticipantArnar JónssonParticipantJá ég næ ekki að breyta heimilisfanginu hjá mér hér á vefnum en allavegna þá má endilega senda þetta á Öldugötu 15, 220 Hafnaf.
Kv.
ArnarArnar JónssonParticipantJú.. ég borgaði daginn eftir að þessu var dreift fyrr 3-4 mánuðurðm og hef ekkert eintak né skírteini fengið
Kv.
ArnarArnar JónssonParticipantKom svipað fyrir mig um daginn í múlanum, algjör bömmer.. nema það var bara einfaldlega það að það var ekkert kort í vélinni og ónefndur aðili *hóst Óðinn.. var ekki ýkja hrifinn.
Kv.
ArnarArnar JónssonParticipantLoksins loksins komu myndirnar frá ferð okkar Gumma, Sigga, Gunna og Marianne í Eilífsdal þar síðasta sunnudag auk mynda frá ferð okkar í kjósina þriðjudagin þar á eftir.
http://www.climbing.is/lesa_frett.php?id=117
Kv.
Arnar -
HöfundurSvör