2806763069

Svör sem þú hefur skrifað

25 umræða - 301 til 325 (af 528)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: Mikilvæg lesning……. #50831
    2806763069
    Meðlimur

    Jebb! Kannski maður fari bara út í búð og kaupi sér eins og 30m af rauðu snæri og dragi það svo alltaf á eftir sér. Það messar engin segull við það!

    in reply to: Surf á Íslandi #50820
    2806763069
    Meðlimur

    M.f!
    Gore tex galli til sölu!

    Ætli fast and light Dr. Doom viti af þessu?

    Og nennirðu að fá Húskallinn til að koma við í Köben, ég gæti farið með hann í Tívolí!?

    in reply to: Áhugaverð síða #50817
    2806763069
    Meðlimur

    Já og svo var það þetta hérna líka:

    http://video.google.com/videoplay?docid=507732229697832036

    Klikkað atriðið! Líklega eitt það flottasta sem gert hefur verið, ever!

    in reply to: Áhugaverð síða #50816
    2806763069
    Meðlimur

    Horfði á myndbandið með Steve House sem bent er á á síðunni. Alger snild, lærði nokkra nothæfa hluti sem ég kem aldrei til með að nota, því ég er kelling (nema þetta með að snú gaskútnum á hvolf) !

    Svona Alpinism Fast and Light video.
    Hér er það:

    http://video.google.com/videoplay?docid=6682751795170095622&q=climb

    Svo er kallinn líka með húmor-eins og kemur fram í lokin!

    in reply to: Gott sprell í Stíganda #50805
    2806763069
    Meðlimur

    Stelpur að klifra, vetur á íslandi og engar ólar á öxunum. Ég verð að segja að það er bara allt á uppleið!

    in reply to: Kannast einhver við kauða? #50799
    2806763069
    Meðlimur

    Þar sem ég þekki Himma lítillega geri ég fastlega ráð fyrir að hann sé ekki að spyrja til að auka fróðleik sinn á klifursögunni. Enda við því að búast að Himmi sé í reglulegum samskiptum við Húskallinn sem og aðra þá núlifandi sem náð hafa að stimpla sig inn í klifursöguna.

    Mín spurning er því hvað liggur að baki Himmi, búinn að bóka hann í fyrirlestrarröð um austfirði og Húsavík? Eða voruð þið að djúsa saman í Sviss?

    in reply to: Junior Nordisk #50778
    2806763069
    Meðlimur

    Djöf… massalingar! Frábær árangur, glæsileg framistaða og björt framtíð!

    Treystum á ykkur til að bæta upp fyrir þetta 14:2 fíaskó, og allt annað sem þessir skandinavar hafa gert á okkar hlut í gegnum aldirnar!

    in reply to: Helgargrobbið #50792
    2806763069
    Meðlimur

    Maður fær nú bara viðar af svona lýsingum!

    in reply to: Tilkynningar um ísklifur … #50786
    2806763069
    Meðlimur

    Rétt hjá þér Olli og margir félaga þinna eru einnig mikið að koma til. Ég held að það sé sérstaklega mikilvægt að þeir sem hafa meiri reynslu séu duglegir að miðla upplýsingum og aðstæðum til yngri kynslóða. Það er jú sorgleg staðreynd að þeir sem eru að byrja núna hafa ekki sömu tækifæri til og við höfðum fyrir 10 árum (en það er nú bætt aðeins upp með KH og flottara dóti). Það er því enn mikilvægara en áður að menn miðli upplýsingum og hvatningu.

    En ekki gleyma heldur að við sem höfum verið í bransanum eitthvað lengur getum líka notast við upplýsingar og því ættu sem flestir að láta í sér heyra, sama hversu erfitt eða merkilegt klifrið hefur verið. Og ekki síst þegar menn grípa í tómt!

    Hitt er svo annað mál að heilbrigð samkeppni milli manna er bara góð – eins og var í þá gömlu góðu daga!

    Ekki satt Olli?

    Stærsta + frá mér þessa dagana fá strákarnir í Fjalla Teiminu sem hafa það að leiðarljósi að myndir segja meira en mörg orð! Vel gert drengir – skál!

    in reply to: Tilkynningar um ísklifur … #50784
    2806763069
    Meðlimur

    Sveittur yfir bókunum hér í Köben.

    in reply to: Tilkynningar um ísklifur … #50782
    2806763069
    Meðlimur

    Já, það er alltaf sama litla gula hænan syndromið hér.

    Þau eru ófá skiptin sem ég hef farið að klifra og kanna aðstæður, gripið í tómt og síðar frétt að einhver annar hafi verið á sama stað stuttu áður (eða séð spor óþekkta og þögla klifrarans) en ekki séð ástæðu til að láta vita um ástandið .
    Ansi oft held ég að þeir sömu hafa hagnast á upplýsingum sem ég hef sett á vefinn.

    Staðreyndin er sú að það eru ekki alltof margir góðir dagar á íslandi og menn ættu að vinna sem mest saman til að nýta þá!

    Þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem ég lýsi þessari skoðun minni! En batnandi mönnum er best að lifa, og ný kynslóð klifrara þjáist töluvert minn af lyklaborðs-hræðslu en sumir gömlu refirnir. Þetta er mikil framför, sérstaklega fyrir okkur sófaklifrara.

    Það hvílir álíka leynd yfir klifurferðum sumra og keppnisferðum Sportklifurfélagsins. Og þá er nú mikið sagt!

    in reply to: Hvernig fer? #50759
    2806763069
    Meðlimur

    Ekki ónýtt Bárður, Hvet alla til að kynna sér þessa fossa sem eru í mjög þægilegu aðgengi. Sérstaklega er sá sem er fyrir ofan Hveragerði (eða Gervahverfi eins og við hnakkarnir köllum það) skemmtilegur. Hann er svona 3 gr. og líklega um 50m. Ef ég man rétt er hægt að komast að honum með því að aka upp að garðyrkjuskólanum og labba svo nánast beint upp hlíðina. Stór skemmtilegur foss sem er tilvalinn að takka að kvöldi til. Líklega tekur ekki meira en 20mín að labba upp að honum og ljósin frá bænum gefa smá týru. Þeir sem vilja svo meira geta gangið aðeins lengra inn dalinn eftir að hafa klifrað þann fyrri og þar er 10-12m kerti sem getur verið punkturinn yfir i-ið. Þessi foss er svona eins og Scots-leið í Stardal, maður vill ekki að hann endi!

    Hvernig er annars með fossana Sogs-megin Bárður, þeir eru nú ansi reffilegir og hafa líklega aðeins einusinni verið klifraðir?

    Njótið meðan á nefinu stendur!

    kv.
    Softarinn

    in reply to: Kortaútsala LMÍ #50728
    2806763069
    Meðlimur

    Auk þess er hvergi talað um að LMÍ hætti útgáfu korta heldur einungis að stofnunin hætti sölu vegna hagsmunaárekstra við einkaaðila.

    Þannig að það þarf ekki að fjárfesta í fartölvubakpoka með ísaxarfestingum alveg strax!

    Við skulum vona að LMÍ haldi eitthvað áfram að gefa út kort. Kortin frá M&M eru í það minnsta stundum dálítið vafasöm. Sem dæmi komu tveir túrhestar til mín í sumar og voru mikið að furða sig á að hafa ekki fundið stíginn sem liggur upp á Hrútafjallstinda um austanvert Hafrafjallið. Gönguleiðin er merkt með rauðu á korti M&M og því ekki úr vegi að álykta sem svo að hún sé nokkuð auð fundin (og feli ekki í sér töluvert af príli í lausum skriðum eins og raunin er).

    Gaman væri samt að fá nýjan kortagrunn í svona 1:50.000 með UTM. En mér skilst að LMÍ stefni ekki á UTM af einhverjum óskiljanlegum ástæðum. Líklega því GPS er eins og internetið, bara tískubóla sem á eftir að springa!

    Tekur því reyndar ekki að gefa út kort þessa dagana, það verður bara að endurnýja þau strax aftur. Ef hopandi jöklar eru ekki vandamálið þá er næsta víst að það verður komið uppistöðulón sem þarf að bæta inn. Hægt væri að leysa þetta vandamál að hluta til með því að selja bara öll kort af hálendinu með bláum túss. Menn gætu þá sjálfir teiknað inn lónin!

    in reply to: Fyrirlestrar #50722
    2806763069
    Meðlimur

    Já, markaðssetninginn var víst ekki upp á marga fiska fyrir þessa sýningu.

    En Himmi þetta veltur nú allt á þér þar sem þú stendur í reglulegum bréfaskriftum við öll stóru nöfnin í bransanum!

    Annars fór ég á myndasýningu hér í baunalandi á dögunum. Ansi ríflegt hús sem þeir heiga hérna í Down Town Köben bræður okkar í danska fjallakúbbnum (líklega nefndur eftir Himmelbjerget, og því ekki alpaklúbbur).

    Í öllu falli var sýningin nokkuð áhugaverð (veit reyndar ekki hvað var verið að tala um, helv. danska). Það voru hinsvegar mikil vonbrigði að bjórinn var seldur. Þætti slík hegðun líklega hreinasta hneyksli í okkar ágæta klúbbi! Reyndar var verðinu líklega still eitthvað í hóf eins og telst til siðs í þessu landi. Ég veit hinsvegar ekki hvað það var, ég var of móðgaður til að láta bjóða mér upp á að borga fyrir bjórinn, þó þetta sjá bjerg- en ekki alpa-klúbbur.

    Myndasýningin fjallaði hinsvegar um ferð 4 dana til Kína, um miðjan vetur til að klifra ís. (einhverjir kunna að minnast greinar í Climbing um sama svæði). Danirnir skemmtu sér vel. En eins og fyrverandi (umdeilanlega)Elitu hr…gikk sæmir gat ég ekki látið hjá líða að dæma aðeins klifurtaktana. Ég er ansi hræddur um að danirnir vinni okkur líka í ísklifrinu ef eitthvað var að dæma myndirnar, en reyndar bara í kvennaflokki (hjúkk!).

    Skrambi góðir samt, miðað við að hæðsti punkturinn í landinu er brú!

    Annars skemmtileg stemming í klúbbnum. Þetta var eins og að fara aftur um nokkur ár og vera kominn á Grensásinn. Nokkrir Pallar, Ollar og Kallar spígsporuðu um og sögðu sögur. Og svo var þarna líka hægt að sjá ófáar Önnu Lárur (þá fyrri). Ívarar og Hjaltar grúfðu sig yfir klifurblöðinn og Einhverjir Spánverjar af yngri kynnslóðinni hlupu um klæddir í Prana og LaSportiva.
    Gaman að svona kúbbastemmingu! Er ekki annars bráðavaktin í sjónvarpinu á miðvikudögum?

    Kv. Softarinn (mýkri og mýkri)

    in reply to: Fréttir #50538
    2806763069
    Meðlimur

    Takk fyrir þennan pistil, tek það sem svo að menn hafi nóg annað að gera en að hanga á Cy-bar og skoða isalp.is. Það lofar góðu!

    in reply to: Netbúðir í Þýskalandi #50536
    2806763069
    Meðlimur

    Einhverntíman fannst mér þessi áhugaverð, held að það hafi verið verðið!

    http://www.bergfuchs.at/

    Annars ætti þetta að ganga nokkuð smurt fyrir sig frá spánverjunum sem allir panta venjulega frá, allt innan EU

    in reply to: Þurrtólun í RVK #50526
    2806763069
    Meðlimur

    Einhverstaðar verða vondir að vera. Límdu gripin í leirvogsgili eru einmitt frábær til að nota axirnar á. Og hvaða saga, valla nokkur maður komið þarna!

    Sportklifrarar og Hnappavallalöggur verða líka að læra á málamiðlanir!

    Ekki það að einhver ástæða sé til að bograst með axirnar um mitt sumar.

    in reply to: Furðuleg frétt #50503
    2806763069
    Meðlimur

    Snjó hlébarði þýðir ekki að sá látni hafi verið hlébarði. Það þýðir einfaldlega að hann var langt frá því að vera grænn bakvið eyrun og ávann sér þessa nafnbót fyrir klifurafrek á tímum Sovétríkjana.

    kv.
    Softarinn með ört stækkandi læri, minkandi upphandleggi og þvottabjarnar sólbrúnku (rauðku)!

    in reply to: Flennifæri og snjóflóðahætta #50488
    2806763069
    Meðlimur

    Ekki illa meint Árni, hefði hvort eð er ekki komist á skíði.

    in reply to: var að berast – fundin ísexi #50494
    2806763069
    Meðlimur

    Nei Vikisjökullinn er fínn. Það er bara auðveldara að fara Sandfellið. Svo var búið að snjóa gríðalega og ég hafði áhyggjur af snjóflóðahættu (sem var reyndar ekki rauninn).

    Ívar

    in reply to: var að berast – fundin ísexi #50492
    2806763069
    Meðlimur

    Hér er komið blátt hjól. Kannast einhver við það. Númerið á lásnum er inn, út, inn, inn, út.

    Var þetta ekki einmitt líka á Akureyri?

    kv. Dúddi Hardcore.

    P.s. Djöfull var góður skíðasnjór á Hnjúknum (verst að vera ekki á skíðum). Nægur snjór niður í 700m á Sandfellsleiðinni.

    in reply to: Flennifæri og snjóflóðahætta #50486
    2806763069
    Meðlimur

    Takk fyrir að láta okkur vita núna.

    in reply to: Klifurræktin #50450
    2806763069
    Meðlimur

    Ýringur var í topp aðstæðum, sjaldan klifrað betri ís! Fór ásamt Atla Þór. Fór í fyrsta skipti líka efsta haftið (upp á brún) sem einnig er hægt að mæla með, fyrir þá sem hafa verið að taka vítamínin sín og gera upphífingarnar!

    Annars virðist meira og minna allt sem snýr í norður vera í topp aðstæðum og því ástæðulaust að fara norður á skíði um páskana!

    Hvernig lítur annars Skarðsheiðin út, þeir sem fóru í Haukadalinn fyrir viku ættu að geta sagt okkur það? Einhverjar áberandi hvítar línur?

    Svo hlakka ég til að heyra af afrekum amk tveggja gengja á Hrútafellstindum um helgina.

    Að lokum tips dagsins; skellið hnetusetti í tryggingapakkann. Þegar engin snjór er fyrir er ótrúlega algengt að maður geti skellti inn hnetur hér og þar!

    Kveðja,
    Softarinn

    in reply to: Orion í aðstæðum #50440
    2806763069
    Meðlimur

    Spjallaði við Jón Heiðar í gær. Hann og Davíð fóru þessa leið veturinn ´99.

    Jón vildi meina að Jökull og Helgi hafi líka klifið leiðina en vissi ekki hver var fyrri til.

    kv.
    Ívar

    in reply to: Orion í aðstæðum #50439
    2806763069
    Meðlimur

    Fyrir því að lítið sést á mínum síðum frá mér eru nokkrar ástæður.
    #1 ég hef verið að reyna að draga úr nettjáningu minni
    #2 ég er aðeins ný bryjaður að taka myndir á stæfrænt
    #3 vinur minn Hardcore á það til að skrifa fyrir mig á netið og hann er ótalegur vitleysingur
    #4 of flókið fyrir vitleysing eins og mig.

    Ísinn var annars fínn og ekki laust við að strákurinn væri brosandi í lok dags!

25 umræða - 301 til 325 (af 528)