Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
2502614709Participant
fær maður ekki eintak – borgaði að vísu seint en…..
2502614709ParticipantJá í búð er það 2.490 m. vsk. ef skattur sér ekki þennan póst þá gætum við verið að tala um 15-1600 ískrónur
2502614709ParticipantHeyrðu já hún verður sýnd í Borgarbíó kl 18 á fimmtudaginn 1000 kall inn . Kl 19 í kvöld er hún í Regnboganum fyrir Iksa meðlimi v. Eddunnar það lið mætir aldrei þannig að fólki er óhætt að fjölmenna no questions asked og ókeypis….
Myndin kemur svo bráðlega út á mynddiski (dvd)….Til að bæta við þá verður hún sýnd á fjallamyndah. í Torlló (með yfirtali á Katalónsku) rétt hjá Barcelona þ. 18 og í Kendal á Englandi 23 nóv. Þar verðum við Simon viðstaddir.
2502614709Participantjá ég sendi meil á stjórnina hvort þeir væru ekki til í að taka þetta upp á sína löngu arma – ræða á félagsfundi o.s.frv. Svona verður aldrei óumdeild og endanlegt . Það verður líka gaman að sjá topp 10 ísklifurleiðirnar og kletta- hvað segja jaxlarnir á ekki að deila þessu með okkur……
2502614709ParticipantFlest erum við með einhvern lista í kollinum fjöll sem við ætlum að klifra/ganga á. Esjan er fín en kemst ekki á listann þetta á að vera smá áskorun. og já helst tæknilegt – hér eftir fer ég aldrei línulaus á Hvannadalshnjúk t.d. eins og maður gerði í „gamla Daga“. Hraundrangi og Þumall eru meira brölt en klifur og þurfa að vera á listanum – þetta er ekki ferðafélagið heldur Ísalp. Ég held að einfaldasta skilgreining ætti að vera 10 erfiðustu tindar á landinu – topp 10. Kannski er bara bull að vera að standa í þessu! En ég held samt þetta geti verið fínt ef við tökum því ekki of alvarlega – spennandi að sjá t.d. topp 10 klifur og ísklifurleiðirnar – jafnvel 10 byggingar í Reykjavík fái að fljóta með…
2502614709ParticipantJá þetta er búið að vera fínt- var samt að vonast eftir breiðari umræðu og von um að einhverjir gamlingjar kæmu með eitthvað … Skaraðtindur niche fletti þessu upp en skildi það samt ekki. Fékk í magann yfir leiðinni sem Ívar fór – svo er einhver lengri leið til ….Gaman að hafa erfitt allir þurfa ekki að geta Allt. En Snæfell ætti að vera þarna – kannski taka Tindfjöll út? Annars er ekkert endanlegt í þessu og svona er náttúrulega til skemmtunar en ekki einhver endanlegur sannleikur. Hvað með Kirkjufell? … 9 Snæfell 10 Kirkjufell…
2502614709ParticipantJá það eru fleiri en ein leið uppá flest af þessu – Skarðatindur t.d. líklega það erfiðasta á listanum – menn velja bara leið eftir getu.
En þetta þarf að vera „Challenge“. Líklega ætti Snæfell að vera þarna – hæsta fjall utan jökla o.s.frv. Ég setti Dyrfjöll þarna af því að ég veit hann er „torkleifur“. Í raun ætti þetta að vera 10 erfiðustu fjöllin. Annars hef ég nú bara farið helminginn af þessu…2502614709ParticipantÞetta er bjútí- hardcore- skemmtikeppni. Klúbburinn hefur staðið fyrir ferðum á Þverártindsegg, Hrútsfjallstinda, Tindfjöll, Þumal, Hraundranga og Skessuhorn. Þannig að það hefur verið til vísir að þessu. Spurning hvort það sé hægt að búa til topp 10 lista eitthvað sem allir ættu að reyna að stefna á ? Eitthvað sem væri hægt að kalla klassík og hafa það á einum lista til að hvetja menn til dáða.
2502614709Participant1. Hvannadalshnjúkur
2. Hrútsfjallstindar
3. Þverártindsegg
4. Skarðatindur
5. Herðubreið
6. Þumall
7. Hraundrangi
8. Skessuhorn
9. Tindfjöll
10. DyrfjöllKannski ætti frekar að vera eitthvað fyrir westan í staðinn fyrir Tindfjöll eða Dýjafjallshnúkur. Mér finnst þetta vera glæsilegur listi. Flestum finnst ganga á Snæfell tilkomumeiri en Herðubreiðarganga en þarf drottningin ekki að vera þarna… En gaman fullt af góðum fjöllum nefnt. Þetta er náttúrulega til gamans gert og hverjum þykir sinn fugl fagur en því fleiri sem leggja e-h til málanna því betri niður- og samstaða….. Ívari fannst Skarðatindur of erfitt en það er unnt að fara mismunandi leiðir og þetta á að vera áskorun……
2502614709ParticipantJá það vantar meira fyrir norðan og austan, ítreka að Þverfellshorn átti að vera Þverártindsegg… ég vil fá fleiri ábendingar og vonandi samstöðu um topp 10. Ég veit ekki með Eyjafjallajökul – frekar Tindfjöll er það ekki… Eitthvað á Vestfjörðum? ef þetta á að vera hvatning. Hvað með Búrfellshyrnu (Ormapartý, ofl) ?
2502614709ParticipantSorry risastór mistök nr. 3 á að vera Þverártindsegg. Greinilega ekki nógu andvaka!
2502614709ParticipantSamkvæmt leiðbeiningum fór ég í Byko og keypti 3 metra af stálvír til að setja um toppinn – hefði þurft að vera 5-6 metrar.
Línan á toppnum lýtur reynar ágætlega út en svona vír er samt málið. Helvíti gaman að fara þarna upp, þótt þetta væri eins og vinnuferð þar sem 7 af 12 höfðu aldrei séð karabínu! Með góðri skipulagningu gekk þetta hins vegar frábærlega og sýnir að þetta er á allra færi…..Vona þú hafir það gott á ríveríunni – ég skal koma með og skila pelanum….2502614709ParticipantÉg vil leyfa mér að setja stórt spurningarmerki við þessa þróun gsm kerfisins, það tekur allan sjarma af óbyggðarferðum þegar ring ring heyrist og maður hættir að geta verið utan þjónustusvæðis. Öll þessi möstur eru lýti á náttúrunni, það er merkilegt að hér hefur engin umræða farið fram um þetta. Víða annars staðar s.s. í Skotlandi eru stór svæði sambandslaus af prinsipp ástæðum. (Ekki kemur til greina að setja upp möstur og menn vilja halda í „óbyggðirnar“) Öll þessi tæki eins og t.d. þetta tæki ætti að duga til að uppfylla öryggiskröfur.
Þeir sem ekki geta verið án gemsans ættu að kaupa hjólhýsi með 37″ flatskjá og halda sig við hringveginn.kk
2502614709ParticipantStórmyndirnar eru að flækjast fyrir – þeir buðu sýningar laugardag og sunnudag kl. 3:30 en ég vildi frekar 6 sýningu í næstu viku. Verður ákveðið á föstudaginn held ég – svo þarf bara að smala.
2502614709ParticipantVerður sýnd á Akureyri líklega í næstu viku – aðeins ein sýning.
Svo verður hún líklega á Rúv – og DvD með aukaefni. En auðvitað er skemmtilegast að sjá þetta á stóru tjaldi.
Þakka öllum fyrir góðan stuðning.kk
ingvar2502614709ParticipantTakk kærlega fyrir mig – ekki veitir af stuðningnum. Vegna góðrar aðsóknar verður myndin sýnd áfram. Netið er frábært tæki fyrir góðan boðskap t.d. hægt að senda póst á alla í vinnunni o.s.frv.!
Nýjasti Íslandsvinurinn Simon Yates er í ham – var í Skaftafelli í síðustu viku og Snæfellsnesi um helgina. Fyrirlestur um fjallaferðir og annað fallegt land í kvöld.takk
ingvarp.s. er að vinna í þessu fyrir norðan – væntanlega sýnd þar eftir helgi.
2502614709ParticipantÞað er stefnan að koma myndinni sem víðast. Um leið og ég er búinn að fyrirgefa formanninum fyrir að kalla myndina „myndband“! reyni ég að gera eitthvað…
Þakka kærlega fyrir stuðninginn og hvet alla í bíó2502614709ParticipantÞakka ábendinguna – það getur haft áhrif að sem flestir sendi inn athugsemdir .
Það er fullt af geggjuðu fólki í landinu sem vill virkja allt sem unnt er til að bjarga heiminum frá frekari mengun! Og telur að það sé siðferðileg skylda okkar að byggja fleiri álver. (Sic).2502614709ParticipantÉg var þarna 16 jan og þá vantaði dulítið uppá 23 hafði minnkað – en nú hlýtur þetta að vera komið. Þetta fraus einu sinni í fyrra og hitteðfyrra – sællar minningar. Það er eitthvað að þegar manni finnst of kalt! En þarna hlýtur að vera Paradís um helgina.
kk
2502614709ParticipantÞað var bara margfalt ódýrar að vera áskrifandi að þessum blöðum….
2502614709ParticipantJá ég var að mæta á klakann – datt í hug að skreppa í Grafarfossinn? á morgun en finn engann félaga … 8957008.
Þetta er svona leti klifur alltílagi að leggja af stað 12:002502614709ParticipantHva, ég hélt það væri frost á Fróni – bókmenntir og saga. en það skiptir víst ekki máli fyrir suma. Endilega ekki hætta aðskrifa reyndar væri gaman að fá einn mola á hverjum degi. Þetta verður allt bráðnað fyrir jólin sorrý Ívar…..
Kveðja frá hinu flatlenda Hollandi – en við höfum þó special brownies til stytta stundirnar….2502614709ParticipantÉg ætlaði að mæta á þennan fund en kemst því miður ekki. Ég held að þessir skálar séu ómetanlegir eða þ.e.a.s. rétturinn til að hafa þá á þessum stöðum. Eftir því sem Jakobarnir eyðileggja meira af landinu verða þessir skálar sem búið er að byggja verðmætari. Hugsum bara nokkur ár fram í tímann og eigum þetta. Ég á hamar. Hvað eru margir félagar í FÍ 5000?…!
2502614709ParticipantFí mun sjá til þess að skálanum verði viðhaldið,betra að hafa aðgang að góðum skála en eignarhald á ónýtum.Það hefur sýnt sig að sjálfboðavinna við skála Ísalp hefur ekki verið vinsæl meðal félagsmanna,allavega ekki síðari ár.Hæpið að einstaklingar myndu vilja eiga skálann með þeim skilyrðum sem fylgja sölunni.
Kv Viðar
2502614709ParticipantAuglýsi eftir nýjum klifurfélaga…….
-
HöfundurSvör