Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
2003793739Meðlimur
Af hverju setja menn ekki bara þessa auka línu utan um stein á toppnum, nóg af þeim í Stardal?
Kv.Halli
2003793739MeðlimurÓtrúlega kúl.
Kv.
Halli2003793739MeðlimurÞað var enginn áritaður fleygur í kassanum en hann sést á myndunum hans Jón Gunnars.
Olli veit örugglega eitthvað um málið því enginn fór upp á drangann í vikunni.Kv
H2003793739MeðlimurTil hamingju með þetta frændi, vona að þetta eigi eftir að ganga allt saman vel.
Kv.
Halli2003793739MeðlimurEr þetta Hvítárvatn?
2003793739MeðlimurGlæsilegt
Kv.
Halli2003793739MeðlimurTil hamingju með þetta.
Þetta á eftir að vera góð saga til að segja komandi kynslóðum í ellinni.
Kv.
Halli2003793739MeðlimurJá ég man ég eftir þessu.
Þessu var sleppt þegar við Arnar og Rafn sögðum mæðrum okkar ferðasöguna, hehe.
Við vorum með 2 línur sem náðu alla leið niður og notuðum aðra alltaf sem öryggi. Það þarf að ganga vel frá þeim í toppnum því þær hreyfast mikið þegar menn eru að júmma sig upp.
Við eigum svo einn frænda sem seig einn niður í Þríhjúkahellinn. Hann var eitthvað tæpur á línum en náði að síga alla leið niður. Síðan þegar hann klippti sig úr þá fór teyjan úr línunum og endinn danglaði nokkra metri fyrir ofan, úpps.
Þeir sem hafa komið þarna niður vita í botninum er risa stór grjóthrúga sem maður endar á. Hann reyndi að hækka hana um nokkra metra en það var ekki nóg. Það endaði með því að hann fór úr gönguskónum, batt þá saman, stóð á hrúgunni og henti þeim síðan utan um línuna til þyngja hana og þá náði hann í endann.
Önnur saga er af einum (man ekki hver það var) sem var að jumma sig upp úr hellinum og kápan utan af línunni fór í sundur. Eftir að hafa fallið nokkra metra þá stoppaði sá þegar kápan hafði krumpast nógu mikið fyrir neðan.
Endilega hafa varan á þegar farið er þarna niður.
Kv.
Halli2003793739MeðlimurHimmi,er lítið að gera í vinnunni?
2003793739MeðlimurÞetta er svaka nagli…
En þetta gengur ekki alveg upp, mikið klipp saman og greinilega ekki allt tekið á Íslandi.
Samt góð landkynning.Kv.
Halli2003793739MeðlimurGlæsilegt!
2003793739MeðlimurGlæsilegt framtak.
Kv.
Halli2003793739MeðlimurGlæsilegt hjá þér frændi og Berglind.
Hlakka til að sjá myndir.Kv.
Halli2003793739MeðlimurIss.
Nóg af snjó í Danmörku í síðustu viku, samfélagið lamaðist í 2 daga.
Kveðjur frá DK, Halli2003793739MeðlimurÉg hef alltaf tekið hringinn af við klifur, það er bara regla.
Kv.
Halli2003793739MeðlimurSigurlín Eydal það var nú helv. skemmtilegt, hehe.
2003793739MeðlimurJæja Siggi.
Það voru engin plön svikin um helgina.Við Arnar frændi og Haukur bróðir tókum daginn snemma á laugardaginn of fórum í Munkan. Það var þrusað upp 3 leiðir og síðan kíkt aðeins á „Karlinn í Brúnni“ í lokin. Við vorum komnir inn á Akureyri aftur um hádegið á þá var brunað á ættarmót á Grenivík.
Varðandi Kerlingareldinn þá kíktum við Arnar í hann í fyrra 2005. Við lentum í rigningu í stansinum milli 2 og 3 spannar og urðum frá að hverfa. Snilldar leið sem við mælum með, muna bara eftir hjálminum því þetta er ansi laust á köflum.
Kv
Halli2003793739MeðlimurGaman heyra frá ykkur félögum í Frakklandi.
Ætli maður kíki ekki í Munkann um helgina… en það er nú ekkert til að segja frá.Hvernig hefur gengið að klifra? Eru Huber-bræðurnir ekki komnir í góðan gír?
Kv
Halli2003793739MeðlimurHvenær kemur ársritið út?
Var það ekki alveg að verða tilbúið?2003793739MeðlimurJá Kalli
Hallgrímur þessi stundar nám í Danmörku og hefur sumarvinnu í Kárahnjúkum!
Ætli flestum sé ekki slétt sama um það hvar einstaka félagar Ísalp búa eða við hvað þeir eru að vinna?Samkv. lögum Íslenska Alpaklúbbsins er í 1.grein:
Markmið félagsins er að efla áhuga manna á fjallamennsku.Allir yfir 16.ára aldri geta skráð sig í klúbbinn og tekið þá í starfinu sem þar fer fram.
Þeir geta haft mismunandi skoðanir, verið hinir hörðustu umhverfissinnar eða stuðningsmenn stóriðju.Mér finnst bara ekki rétt að klúbburinn með öllum sínum félögum sé með eða á móti stóriðju á Íslandi.
Þess vegna segi ég að þeir sem vilja hafa skoðun og berjast á móti þessari stóriðjustefju þá endilega skráið ykkur á http://www.framtidarlandid.is.
Ég ætla mér að gera það.Kveðja
Halli2003793739MeðlimurMér finnst að Ísalp ætti ekki að blanda sér í þessi mál.
Fínt að framtíðarlandið sjái um það.Kv
Halli2003793739MeðlimurÉg fór nú einhverntíma bara uppí hraunsprungurnar í Heiðmörk.
Kv
Halli2003793739MeðlimurSammála
2003793739MeðlimurEru menn alveg hættir að leita á bókasöfnum borgarinnar. Það er búið að gefa út helling af bókum og pistla um hella.
Ef ekkert finnst við það að googla þá gefst ,,Cocopuffs kynslóðin“ upp…
Kv
Halli2003793739MeðlimurÞetta er nú skítt og ekki í fyrsta skipti sem svona gerist.
Öllara kveðja frá DK.
Halli
-
HöfundurSvör