Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
2002773689Meðlimur
Maður heyrir að í hverju húsi sé verið að laumupúkast eitthvað með búninga. Allt að drukkna í púðri norðanheiða og bullandi stemning.
2002773689MeðlimurHelga og Óliver ætla að snæða
2002773689MeðlimurEr einhver möguleiki að myndin verði líka sýnd norðan heiða svo við landsbyggðalubbarnir missum ekki af stórviðburði sem þessum? Ef það vantar húsnæði get ég alveg skaffað hlöðu
2002773689MeðlimurVerð að taka undir orð Kristínar um eðalfærið í Hlíðarfjalli. Í gær dömpaði slatta og utanbrautaraðstæður eru að verða ansi krassandi á nýjan leik. Ekki sakar að hafa sem sverasta planka undir löppunum.
2002773689MeðlimurÞakka þér fyrir upplýsingarnar Skabbi.
Setti myndir af ísnum í gær á netið
því ég veit að ekki trúa allir þeim sem búa á Norðurlandi
2002773689MeðlimurÉg hef ekki séð spýjur á þessu svæði nýlega, í gær var kalt og snjórinn orðinn slatta unninn. Auk þess heftur grynnkað talsvert á snjónum. Veit að það fóru samt flóð víða um Eyjafjörð dagana fyrir helgi.
2002773689MeðlimurÞað er enn nægur ís á Norðurlandi. Horfði upp í klettana í Skíðadal í gær og þar er heiðblár, þykkur og fallegur ís víða, stærri leiðir í fínum aðstæðum. Bara mæta norður…..
2002773689MeðlimurÞað stefnir í stórhelgi og metþáttöku. Ég vil bara benda telemörkurum á að búningahönnuður Silvíu Nætur er að sjá um „outfittin“ á Olgunum í samstarfi við Puma. Megi aðrir því vara sig.
Sjáumst um helgina, Helga Björt2002773689MeðlimurSorrý Helga…muna að logga sig út
2002773689MeðlimurSæll,
Láttu Guðmund senda tölvupósta eða hringja í formenn Björgunarsveita til að falast eftir öxum.Fullt til af gömlum og góðum búnaði út um allt land. Sumt líklega enn í góðri notkun.
kv.
Bassi2002773689MeðlimurÁ Dalvík eru aðstæður þannig að frekar snjólétt er í fjallinu en þó alveg nóg til að renna sér án teljandi vandræða.
Snjóalög í neðri lyftu eru ekki spennandi, ein eða tvær ræmur til að fara niður. Hins vegar eru aðstæður í efri lyftunni (þessari brattari) miklu betri, þar er enn fullt af snjó í brautinni og t.d. í gær var svona júní-slush. Ekkert grjót að þvælast fyrir eða neitt þannig.Nú, Nonni sem er aðalkarlinn þarna á Dalvík vill allt fyrir telemarkara gera og er til í að þjóðnýta troðarann eins og best hentar. Hann kom með tillögu um að draga okkur áleiðis að toppnum svo hægt væri að renna sér niður norðan megin, það ku vera nokkuð bratt. Eins nefndi hann að draga mannskapinn upp Reykjaheiðina, eða annað, bara eftir aðstæðum.
Veðurstofan er enn að spá snjókomu, það þarf ekki mikið til að hægt sé að renna utanbrautar á Dalvík því fjallið þar er lyngi gróið og alls ekki grýtt.Heyrði í fólki frá Siglufirði í gær sem sagði að þar væru snjóalög svipuð og á Dalvík, neðsta lyfta snjólaus en uppi væri allt í lagi. Þar er víst meiri snjór utanbrautar en í Böggvisstaðafjalli. Siglufjörður og Dalvík eru s.s. í bestu aðstæðum allra skíðasvæða landsins núna.
Geri ekki ráð fyrir neinni púðurskíðun um helgina, ekki frekar en á festivalinu í fyrra. Aðstæður eru ekki „góðar“ en vel nýtanlegar og auðvitað hægt að skemmta sér vel á skíðum hér um helgina, hvet alla til að mæta.
Sjáumst!!!
2002773689MeðlimurÍ Skíðadal inn af Svarfaðardal eru fínar ísaðstæður og það þarf ansi hreint mikið til að ísinn hverfi. T.d. er um 4-5 stiga hiti að degi til núna en frýs um nætur og ísinn er fagurblár hér í fjallinu fyrir ofan.
Veit ekki hvort þú hefur séð þetta en það er svolítið Múlafjallsyfirbragð á þessu. Labb upp bratta brekku og svo einnar spannar leiðir og einhverjar lengri. Örugglega líka fínt í mixað klifur eins og staðan er núna.
Nú, svo má ég til með að benda á frábæran gististað í dalnum. Hús sem heitir Möðruvellir og er fínasti skáli, kostar bara 5000 kr nóttin og örugglega gaman fyrir ís- og fjallamennskuþurfandi hópa að dvelja í. Upplýsingar eru á þessari síðu http://www.isafold.de/diverses/modruvellir.htm
30. mars, 2004 at 22:22 in reply to: Er það bara gamli góði stórgripaleggurinn hennar Þuríðar formanns? #486502002773689MeðlimurHef heyrt sögusagnir um ákveðnar ungmeyjar sem eitt sinn bjuggu til svona þvagtól og notuðu þær tólið farsællega uns því var líklega stolið.
Við slíka föndurgerð hentar vel að fara í stórmarkað og finna aflangan brúsa eða flösku úr plasti. Sagnir herma að Hunts pizzasósuflaska sé einkar vel til þessa fallin miðað við uppbyggingu íslenskra kvenmanna að neðan en annars er sjálfsagt að máta hina ýmsu brúsa sem verslanirnar bjóða upp á. Athugaðu að flaskan verður að vera með nokkuð langan stút. Gættu þess þó að vera ekki of áberandi meðan á mátun stendur svo viðskiptavinum verslunarinnar verði ekki ofboðið og athugðu líka staðsetningu öryggismyndavéla því ekki er víst að allir hafi skilning á svona mátunarferli. Þegar heim er komið með brúsann þarf að tæma hann og hreinsa. Að því loknu er kjörið að draga fram dálk og skera hentugt gat á flöskuna þvera en það verður að vera sem fjærst stútnum. Nú, til að fullvissa sig um að tólið sé brúklegt er náttúrulega kjörið að reyna það á salernisskálinni heima áður en lagt er af stað í fjallaferð enda talsverð viðbrigði að athafna sig svona teinrétt og standandi.Gott gengi.
2002773689MeðlimurSiglufjörður tekur á móti okkur opnum örmum á sunnudaginn og ætlar að bjóða þelamerkursvingurum og áhangendum þeirra dagspassann í fjallið á litlar 350 kr.
Skíðafæri var gott bæði á Kaldbak og Siglufirði síðustu helgi.
Held að dagskráin verði nett skotheld, vei.
-
HöfundurSvör