Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
BjörkParticipant
er ekki þetta ísfall/brot það sama og í banff tísernum? Sammála væri gaman að sjá 10 sek meira!
BjörkParticipantvá takk fyrir þetta, ótrúlega flottar myndir.
Alveg rétt margt hægt að gera á Íslandi og hægt að taka sér gott vetrarfrí og skíða og klifra fullt.
Enda eru Íslendingar alveg eitthvað að fara í ferðir veturna og vorin til að skíða og klifra á Íslandi. Frábært alveg.
BjörkParticipanthæhæ
það var umræða um þetta fyrr í vetur, hér er þráðurinn. Þar komu fram fullt af góðum ráðumhttp://isalp.is/umraedur/5-almennt/8561-viegereir-a-skel-te-vind-og-vatnsheldum-fatnaei.html
kv. Björk
BjörkParticipantMinni aftur á styrkumsókn.
BjörkParticipantjá hvenær hættir boulder að vera boulder
flott myndband.
BjörkParticipantJá næsta verkefni hjá Ísalp er að ákveða hvað skal gera með Bratta.
Ég held að fyrsta skrefið sé að meta hvað þarf nákvæmlega að gera. Er hægt að laga hann á staðnum eða er þetta annað Tindfjallaverkefni.
Hér eru myndir sem ég tók af skálanum í vetur. http://picasaweb.google.com/bjorkh/Bratti#
Nú tala ég bara fyrir mig í stjórninni en ég held alveg örugglega að það sé vilji hjá stórninni að Brattavinafélagið sé stofnað og gerð áætlun.
Held að Grænlandsfarar stjórnarinnar séu væntanlegir á skerið og fljótlega hægt að hafa fullmannaðan stjórnarfund.
kv. Björk
BjörkParticipantJá Halli hann stoppaði og fékk sér pizzu.
En skálinn er kominn á sinn stað – það var unnið mikið uppí Tindjföllum um helgina í rigningu.
hér koma myndir frá helginni.
http://picasaweb.google.com/bjorkh/FlutningurTindfjallaskala#
BjörkParticipantGillið heppnaðist mjög vel og ótrúlega gaman að sjá margar gamlar kempur mæta á svæðið
En um 60 manns létu sjá sig.
Hefði verið gaman að sjá fleiri af yngri kynslóðinni, en þau eru vonandi þar sem þau eiga að vera – á fjöllum!
Setti inn myndir undir fréttir.
kv. Björk
BjörkParticipanttja jú það er einhverjar nokkrar gamlar spítur enn;) Annars er næstum allt nýtt.
Reisugilli kannski ekki rétta orðið, en hvað um það. vonandi mæta Ísalparar á þriðjudaginn.
kv. Björk
BjörkParticipantvá hefur enginn lent í því að koma að leiðinni á sama tíma og þurft að slást til að útkljá hver fær að klifra
Frábært!
BjörkParticipantég skil ekki?
BjörkParticipantjá eru ekki allir að senda inn sumarlegar nýjar myndir á vefnefndina?
BjörkParticipantjei gaman að prófa nýtt spjall!
Já það hefði verið gaman að sjá fleiri ísalpara.
Skabbi grillaði ljúffengar pulsur ofaní hópinn og gaman að hitta fólk frá jöklarannsóknarfélaginu.
BjörkParticipantJamm m.a. Berglind, Arnar og norðanmenn/konur.
BjörkParticipantÉg meikaði varla að horfa á þetta lið í Kanada hoppa ofaní þessa hyli í Cliff Notes, ég þurfti að halda fyrir augun.
Fannst bouldermyndin skemmtileg, The Sharp End: Lisa Rands.
BjörkParticipantÞað var frábært í Gerðubergi. Gaman að sprunguklifra.
myndir: http://picasaweb.google.com/bjorkh/GerUberg#
Frábær dagur.
BjörkParticipantMá ég spyrja að einu?
Hef held ég bara 2x gist í snjóhúsi og bæði skiptin á námskeiðum og leið bara vel.
Þegar maður leggst á koddann (úlpu) í snjóhúsi byrjar maður að hugsa…. er engin hætta að þakið pompi ofaná mann?
BjörkParticipantfrábært, gaman að geta fylgst með þessu
BjörkParticipantjá maður þarf klárlega að kíkja norður í, þar virðist ekki vanta snjóinn og brekkurnar.
labbaði annars uppá Eyjafjallajökul á laugardaginn, enn hægt að skíða þar niður í svona 600 metra.
BjörkParticipantmunum væntanlega á endanum horfa til veðurs.
En stefnan er sett á norðurland, enda er þar að finna endalaust margar brekkur í ótrúlega flottum fjöllum og síðast en ekki síst nægur snjór!
BjörkParticipantSæll Guðjón. Það eru til fullt af góðum klifursögum og þær má m.a. finna í spjallinu hér og í öllum gömlu ársritum Ísalp.
Yfirlit ársrita má sjá hér http://isalp.is/art.php?f=2&p=1 og ef þú sérð eitthvað sem þú gætir hugsað þér að nota þá get ég reddað þér gömlu ársriti.Það er líka eitthvað efni hægt að finna á Mínum síðum sem er hægt að klikka á hérna neðst á síðunni.
Hægt að finna fullt af flottum klifurmyndum.
kv. Björk, bjorkh[hjá]gmail.com
BjörkParticipantég ætla að mæta í mat.
BjörkParticipantTja Hlynur veit ekki með það, reynslan segir mér að þegar maður vinnur í útlegð Buskanum þá er það fyrsta sem maður gerir í vaktafríum er að koma sér í burtu!
Hlynur og Halli þetta er bókað, það verður gaman að fá ykkur á næsta festivali.
Sissi nenniru að segja okkur söguna um lárétta snúningsásinn hans Robba, held að sumir hafi ekki heyrt hana!
BjörkParticipantjá ég og Ísfirðingarnir Örvar Dóri, Eiríkur og Ragnar leggjum af stað – uppúr 15 væntanlega.
Gaman að fá svona rapport Gummi, þetta verður stuð – hlakka til
BjörkParticipantok.
8 manns fara í dag með bíl frá HSSR, sá bíll er fullur.Gulli, Skabbi, Bjöggi og Sissi fara á morgun á einum bíl.
Ég, Ragnar og Eiríkur förum einnig á morgun, veit ekki betur en að það sé laust pláss þar.
Hef heyrt að ansi margir séu að hætta við. Það væri ágætt ef að fólk lætur vita. Stjórn er búin að redda gistingu og kaupa mat og það er allt saman miðað við þann fjölda sem er skráður.
-
HöfundurSvör