Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
1306795609Member
Tæknilega séð þarf ekki einu sinni 30° halla heldur sýnir sig að 28° halli dugar í sumum tilfellum.
Skíðalyftur og önnur mannvirki á skíðasvæðum á Íslandi hafa margoft orðið fyrir snjóflóðum. Skíðamenn og snjótroðarar hafa margoft sett af stað flóð og jafnvel grafist eða borist með þeim innan þeirra svæða sem skíðalyftur veita aðgang að (án þess að þurfi að ganga upp brekku). Eini skiðamaðurinn sem ég man eftir að hafi farist í snjóflóði í skemmtiferð (þ.e.a.s. að frátöldum fólki sem notaði skíði sem samgöngumáta hér áður og fyrr) fórst í Bláfjöllum, utan skíðasvæðisins reyndar. Brún Hlíðarfjalls og Hlíðarhryggurinn eru þekkt snjóflóðasvæði þar sem snjóflóð falla á hverjum vetri og er skemmst að minnast vélsleðamanns sem var grafin upp úr stóru snjóflóði á elleftu stundu rétt norðan skíðasvæðisins ekki alls fyrir löngu.
Snjóflóðahætta er óaðskiljanlegur hluti af útiveru í brattlendi að vetrarlagi og vilji maður sleppa við að hugsa um slíkt er til dæmis hægt að spila bridge. Meðvitundin um hættuna og aðgætni eru langöflugastu tólin til að koma manni heilum heim. Því finnst mér eiginlega mikilvægari fyrsta spurning hvort þetta „alls kyns fólk“ er búið að svo mikið sem leiða hugann að möguleikanum á snjóflóði…
Ein saga sem ég heyrði í heitum potti: 3-4 félagar voru á leið í klifur. Þeir voru með allan öryggisbúnað og höfðu setið mörg námskeið. Veður var ekki sem best og skyggni lítið vegna snjókomu og fjúks. Uppgangan var erfið því þeir óðu nýjan snjó í hné eða mið læri. Þeir tóku snjógryfju og lásu úr henni að ekki væru augljósir veikleikar í snjóþekjunni. Hvað gerist næst? Jú þeir grófust allir í meira eða minna í snjóflóði en sluppu þó fyrir mikla mildi. Hvaða púsl vantar þarna í myndina?
Ýlir, skófla og stöng eru auðvitað algjör grundvallar búnaður fyrir alla sem vilja fara ótroðnar slóðir. En þegar græjurnar eru annars vegar finnst mér margir hér á landi aðeins missa fókusinn. Þú þarft ekki öflugasta fjallabílinn til að komast upp í Bláfjöll. Hér hafa spunnist langir umræðuþræðir um hvaða ýlir af nýjustu kynslóð getur fundið hóp af fólki sem er grafið á mismunandi dýpi á mjög litlu svæði. Ég á klassískan Ortovox ýli sem ég treysti mjög vel eftir samanburð við nýrri ýla. Rafhlöðurnar endast mun betur. Ég klára leitaræfingar á svipuðum tíma og aðrir með tæknilegri ýla og það sem mér finnst umhugsunarvert að í einföldu prófi nam gamli ýlirinn merkið í meiri fjarlægð en þeir nýrri. Í Frakklandi þar sem ég þekki aðeins til bjóða búðir gjarnan upp á skóflu, stöng og ýli, allt af einfaldri gerð, saman í pakka á mjög viðráðanlegu verði. Þetta hef ég ekki séð í boði á Íslandi. Ég fer ekki á fjöll nema 5 daga á vetri. Ég þarf ekki besta ýlinn, ég þarf ekki fiber stöng og ég þarf ekki skóflu sem hægt er að keyra yfir á vörubíl. Ég þarf traustan og einfaldan búnað sem virkar, ég kann að beita og mun skipta sköpum ef ég stend frammi fyrir því að leita að félaga mínum í snjóflóði.
Vinnufélagar mínir á Veðurstofu Íslands vinna nú að snjóflóðahætttumati fyrir íslensk skíðasvæði. Markmiðið með þeirri vinnu er að tryggja að mæður geti óhræddar sent börn sín skipulögð skíðasvæði. En Utanbrautarbandamenn verða eftir sem áður að hugsa um sig sjálfir.
Góða vertíð,
Eiríkur
1306795609MemberÞað var lagið! Út með töflurnar.
1306795609MemberÉg er nýbúinn að pósta smá upplýsingum um Bíldudalinn á mínar síður (á sunnudegi, lofaði upp í ermina á mér í síðustu færslu).
1306795609MemberÉg gæti sett inn smá prófíl af svæðinu á mínum síðum í dag (föstudag). Þessar myndir sem við höfum fengið eru nú ekki efni í ársritið en gefa tóninn. Það er um að gera fyrir forvitna að rýna í myndir og kort. Auk google earth er hægt að kíkja á Mynd- og kortaskjái á http://www.lmi.is.
1306795609MemberJæja ekkert klifrað fyrir vestan um helgina (svo ég viti til) þrátt fyrir fínar aðstæður. En það er hægt að segja sögur fyrir því. Er búinn að setja upplýsingar um hinn dularfulla leynistað inn á mínar síður sjá: https://www.isalp.is/art.php?f=84 . Það er mín von að við dettum ekki úr taktinum núna og náum einhverjum leiðum í viðbót áður en vorar.
1306795609MemberKalli, eins og þú þekkir þá þyrfti nú varla að ráða nýjan starfsmann jafnvel þó við Rúnar myndum hætta báðir á sama tíma. Nýja starfið er aðalega til komið einmitt vegna þess að við verðum áfram…
1306795609MemberHef verið á ferð við Faxaflóann og fannst tilvalið að hnýta vináttuböndin með klifrurum á svæðinu enda veður og aðstæður með besta móti liðna daga. Það gekk sannarlega eftir því félagi og vinur minn Ragnar sló til undir eins og hugmyndin var viðruð en það eru liðin nokkur ár síðan við hnýttum okkur saman. Fyrirtaksaðstæður voru í Múlafjalli, í gær laugardag 29. des, og við höfðum gaman og gott af því að skælast upp það sem við teljum vera Rísanda og stuttan stromp nokkuð innan við Ísteið sem við kunnum ekki frekari deili á. Nú er bara að vona að hlákan fari mildum höndum um ísinn. Þeir sem vilja komast í samband við klifrara sem segir já þegar aðrir segja nei skyldu bæta Ragnari á listann.
1306795609MemberTakk fyrir það Palli ég þygg blöðin og set mig í samband við þig við tækifæri. Ég veit hvar þú át heima…
…nei ég hef raunar ekki hugmynd um það.
1306795609MemberÞakka Hauki, Snæbirni og Gimp gagnleg og skemmtileg svör. Við robba vil ég segja þetta: Það vantar allt http://www.reddumthvi.is í þig. Gamall gír er ekki vesen heldur lífstíll. Maður kaupir sér ekkert nýtt fyrr en það gamla rifnar eða brotnar og þá kaupir maður auðvitað nákvæmlega eins!
1306795609MemberEr kominn með hið langþráða ársrit í hendurnar. Þetta er glæsilegur gripur og vonandi að útgáfan sé komin í tempó á ný.
1306795609MemberGaman að það hafi tekist að skapa þessa stemmningu fyrir útgáfu ársritsins og komu vetrarins, greinilega hugur í liðinu. En sum okkar þurfa að lifa vonbrigði á hverjum degi þegar landpósturinn kemur…og ekkert ársrit. Smá áminning til félaganna að lokum, nú þurfa að gerast næg ævintýri á árinu til safna í næst blað.
1306795609Member“Einu ísleiðirnar”
Ívar, Ívar, Ívar, Ívar.
21. maí 2006 https://www.isalp.is/gallery.php?id=3349_637_1#p
Óshlíð, a subarctic adventure!
1306795609MemberVar að skoða alpaskíðamyndir á þínum síðum. Áttu leiðsögubók? (eða einhver annar)
Eiríkur – eirikgi@hi.is
1306795609MemberJá þetta var frábært númer hjá Hr. House og þvílíkur innblástur að mínu mati. Ég þakka aðstandendum því kærlega fyrir þetta. Ég verð þó að taka undir með Jóni Gauta með það að það var klippt full snarlega á manninn og sjálfsagt er fyrir skipuleggjendur svona atriða að “planta” 1-2 spurningum úti í sal til að fá umræðuna til að rúlla. Það hefði verið frábært að sjá Steve taka nokkrar slíkar.
En flott byrjun á nýju starfsári.
Sófakönnuðurinn
1306795609MemberLeiðin heitir Sónata og var farin 21 maí og hægt er að kynna sér málið nánar á “mínum síðum”
1306795609MemberSkíðafæri og veður á Heklu á sunnudag var eins og gerist best.
1306795609MemberHvaða sögu segja skrópagemsar? Hvernig virkaði fimmtudagurinn?
1306795609Member()
()
()
()
()
()
()
()
()
()
()
()
()
()
()
()
()
()
()
Hvernig væri að hafa áttukeppni á dagskránni í ár?1306795609Member„Greinilega eitthvað fámennara á sunnudag og öllu hlýrra, eða hvað?“
Nei það var ekki hlýrra á sunnudeginum svo neinu nemi, snjóaði þurrum snjó við Súlurnar og ekki bráðnun í gangi. Hins vegar rigndi niðri í dal og því virka klifrarnir frekar slæptir á sunnudagsmyndunum. Þessi Eilífsdalur er greinilega algert fyrirbæri, heimavöllur íssins. Takk fyrir helgina.
1306795609MemberÉg kem í grillið…(first thing first)
1306795609MemberÞað er stemmari.
1306795609MemberÞessu tengt: Ég á nokkrar myndir frá umræddu festivali og datt í hug að setja upp “mína síðu” um málið en ég er kvótalaus aumingi og póstur stílaður á editor@isalp.is virðist ekki skila sér. Hvar braskar maður með diskkvóta til að geta bætt við síðum?
1306795609MemberAxirnar komnar í nýtt verkefni.
yfir og út!
1306795609MemberHimmi skrifaði: “það er löngu búið að skipta út mannætufiskunum…..” Menn geta séð á heimsíðu þeirra bræðra, http://www.simond.com, að Piranha lifa góðu lífi enda er “alpinisme classique” í hávegum í Chamonix. Síðan hefur Amason/mannætuþemað endurfæðst í grimmustu öxinni í dag…
ANACONDA
1306795609MemberTil Kalla: Iss, efrilyftan á Seljalandsdal var einmitt 3°.
-
AuthorPosts