Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
1001813049Meðlimur
Frábær hugmynd, Fjallafestival að vori. Þar gæti verið rennsli, hvort sem fólk ríði ösnum, hestum eða öðru. Hugsanlega væri hægt að troða inn einhverjum fyrirlestrum og skemmtiefni milli þess sem fólk rennir sér og er á after ski-inu. Boltinn er kominn á loft og aldrei að vita nema félögum Ísalp myndi fjölga eitthvað ef boðið væri uppá samkomu fyrir stækkandi hóp fjallageita (með fastan hæl).
1001813049MeðlimurHefur einhver mætt á Telemark-skíðum á Telemarkfestivalið síðastliðin 5 ár. Bara svona slá þessu fram, vill meina að Telemark festival sé tímaskekkja og fjallafestival væri nær lagi. Kv KM
1001813049MeðlimurSæll,
Er að spá í að hætta mér í þessa djúpu laug og segja hvað mér finnst.
Ég er sammála Himma og Palla um að það er gott að eiga fleiri en eitt par ég á sjálfur fleiri en eitt. En ég vill samt meina að þú ættir að geta fundið góð skíði sem geta flest en það verður svosem alltaf ákveðin málamiðlun.
Ég á bæði Hellbent 189 2011 (púður) og Obsethed 189 2009 (púður og harðfenni og allt þar á milli) bæði frábær skíði bæði með Marker Duke. Þetta eru bæði þung og öflug skíði en þannig vil ég hafa þau þó það sé ókostur á leiðinni upp þá fer ég bara upp til að fara niður en ekki öfugt.
Ég er mikill K2 sukker og þó ég viti ekkert um hvernig skíðamaður þú ert eða hvar þú villt skíða þá gæti ég trúað að K2 Kung Fujas gætu verið góð í allt. Vonandi verðuru einhvers vísari annars held ég að við ættum að hætta að eyða tíma okkar á þessu spjalli.
Óþarflega breið skíði eru ekki til en hins vegar ættu allir að komast af á 110mm mitti ef það er ekki nóg þá er eitthvað annað að. Ávinninur af 120mm er að þú rúlar á púðurdegi sem er besti dagur ársins og færð fullt af athygli í röðinni í Fjarkann
Kv KM1001813049MeðlimurHérna er annað flóð sem féll í mars í Noregi engin slasaðist eða lést en það má segja að hurða hafi skollið í hæla.
http://www.liveleak.com/view?i=0b9_1333579128
Kv. KM
1001813049MeðlimurMér finnst gott að fólk sé að benda á þegar það gerir kaup sem það er ánægt með öðrum til fróðleiks. Þetta gæti flokkast undir neytendavitund sem við erum ekkert sérstaklega öflug í hér á landi. Allar ábendingar um góða kaup, þjónustu og aðra góða díla eru alltaf vel þegnar hvort sem við erum að bera saman íslenskar búðir sem eða erlendar vefverslanir þá er mér alveg sama. Íslenskir söluaðilar hljóta að gera sér grein fyrir að þeir eru í samkeppni við erlendar vefverslanir.
Kv KM1001813049MeðlimurKristinn Magnússon wrote:Langaði að pitcha þessu hér á vefinn til áhugasamra.Tröllasport er innflutningsaðili fyrir Line, Full Tilt, Shred og Slytech vörur
http://is-is.facebook.com/pages/Tr%C3%B6llasport/208209692532305
http://lineskis.com/skis
http://fulltiltboots.com/ski-boots
http://www.shredoptics.com/products/
http://www.slytechprotection.com/products/Endilega tékkið á því.
1001813049MeðlimurSæll
ég á atomic tracker 130 og er mjög ánægður með þá. ef þú ert að sækjast eftir skóm sem eru frekar hugsaðir til niðurrennslis en í langar uppáferðir er þetta málið. Þétt passform ( að sjálfsögðu persónulegt ) og “quick respons“ í þessum skóm.
Kv KM
1001813049MeðlimurSæll
Ég skíðaði á miðvikudag í síðustu viku og sunnudag í þessari í Hlíðarfjalli það kom frekar mikil aska þangað en hefur eitthvað snjóað yfir hana aftur svo birtist hún þegar nýji snjórinn bráðnar hún hægir aðeins á manni þar. En staðir eins og Hvalvatnsfjörður held ég að hafi ekki fengið neitt af ösku og ættu að vera í góðu lagi annars eru þetta hlíðar sem eru hlémeginn sunnanáttarinnar sem eru verstar hvað varðar öskuna.
ég myndi einnig huga að hitastigi því að það er það kalt ennþá að snjórinn yfir 6-700m er frosinn nema þú lendir í góðri sólbráð.Kv KM
1001813049Meðlimursemsagt gríðarlega áberandi!!! hehehe
1001813049MeðlimurHérna er dæmi um frétt tengda þessu máli
http://vikudagur.is/?m=news&f=viewItem&id=7774
Þarna kemur fram að umferð snjósleða sé bönnuð um Öskjusvæðið eftir 1. maí sem snjósleða menn eru meðal annars ósáttir við.
Spurning hvernig þetta og fleira í þessum lögum kemur við fjallafólk sem þarf að komast að fjöllum til að skíða eða klifra á vorin og er á eigin vegum eins og flestir Ísalparar sennilega stunda sitt sport. Þarf ekki að setja nefnd í að kynna sér lögin og kanna hvort að hagsmunir og frelsi fjallafólks séu í hættu.
Kv KM
1001813049MeðlimurOg núna jafnvel í slowmo
1001813049Meðlimur1001813049MeðlimurGóðann daginn.
Eftir frekar leiðinlega tíð undanfarnar tvær vikur með viðbjóðs harðfennisfæri stefnir allt í rétta á núna. Í gær snjóaði 10-15 cm af lungamjúku ofan á harðfennið og von er á fleiri gusum fram eftir vikunni. Allir melar eru uppúr og ætti fólk að varast þá en gott grunnlag er annarsstaðar.Kv. Kristinn
1001813049MeðlimurSvona til að að ljúka spennusögunni: Já eftir miklar vangaveltur og mátanir endaðið ég í Scarpa Ladakh þeir passa vel á minn fót sem reyndar er ekki með nein afbrigðileg og útstæða aukahluti þannig að passform er yfirleitt ekki vandamál. Þakka öllum sem kommentuðu, spjallið á Ísalp er ekki dautt allavega þegar kemur að græjukaupum. Enda er hér örugglega gott samassafn af græjusjúkum einstæklingum þar sem aðeins það besta er nógu gott.
Kv. Kristinn
P.S. Uppgvötaði (er þetta rétt skrifað???) nýja búð á Akureyri, Veiðihornið (á móti Subway) fékk fína þjónustu þar og eru þeir með allskonar dót úr Fjallakofanum auk eins og nafnið gefur til kynna veiðidót.
1001813049MeðlimurSæll
Var í rennsli í gær og snjórinn er farinn að bindast eða pakkast aðeins þó hann sé nokkuð mjúkur ennþá. Jón Heiðar skíðalögga gerði prófíl í Norðurbakkanum í gær og væri forvitnilegt að heyra hans mat á því. Renndum okkur tvær ferðir í Kúlusúkkið/Reithólana og þar var aðeins mýkra. Óvísindalega myndi ég segja að snjóalög væru pínu grunnsamleg.
1001813049MeðlimurHef nú farið og mátað aðeins hérna á Akureyri, meðal annars Scarpa og sambærilega HanWag http://www.hanwag.de/schuh-detail.php?shoe_id=20
Pössuðu báðir nokkuð vel fannst Scarpa aðeins stífari en betra reimasystem á HanWag þeir þrýstu líka meira framan á ökklaliðinn þegar maður pressar fram í skóinn sem var ekki gott.
Hefur einhver einhverja reynslu af þessum HanWag skóm?
Hallast aðeins meira að Scarpa eftir þetta mátunarsession eins og allir hinir; )1001813049MeðlimurHérna er svo annar linkur um það sama:
1001813049MeðlimurSæl
Twintip er kannski bara spurning um hvort þú ætlir að renna þér aftur ábak eða ekki, það sem er frekar spurning er hvar og hvernig ertu að renna þér?
Utanbrautar er allavega betra aðhafa aðeins breiðari skíði en hefðbundin svigskíði kannski svona 80-100 mm undir fætinum og jafnvél enn breiðari og kannski aðeins mýkri en hefðbundið er sem á oftar en ekki einmitt við um twintip-skíði.Kv Kristinn
1001813049Meðlimurog meðan ég man: flott svör hérna
1001813049Meðlimurgreinilega er scarpa algengast og sennilega ekki að ástæðulausu. en er enginn þarna úti sem notar eitthvað annað og er þvílíkt ánægður með það???
1001813049MeðlimurÞakka góð svör. Líklegt að Scarpa sé eilítið ráðandi hér á landi og kannski líka annarsstaðar og sennilega ekki að ástæðulausu. Endilega haldið áfram að drita?
1001813049MeðlimurÞað er reyndar búið að leysa þetta vandamál
1001813049MeðlimurVeit ekki með ofurmennið, en ég var allavega þarna á sunnudaginn.
1001813049MeðlimurÉg virðist ekk vera nógu klár til að geta smellt inn mynd
1001813049MeðlimurGóðann daginn
Hér norðan heiða er allt miklu betra eins og þið vitið ; )
Rennsli á norðurlandi hefur farið vel af stað þetta sísonið.
Mest verið í kringum skíðasvæðið í Hlíðarfjalli þarsem klassikerar eins og Mannshryggurinn eru í fínum aðstæðum (hljómar eins ég sé að lýsa ísklifurleið) Einnig ætti að vera klárt að skella sér í Hlíðarskálina. Snjórinn er þurr og mjúkur fyrir ofan c.a. 500m.Kv KM
Myndin er frá sunnudeginum 21. nóv
-
HöfundurSvör