Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
0909862369Meðlimur
Freysi, lesa allan textann, ekki bara fyrirsagnirnar.
Þetta stendur svart á hvítu ef þú smellir á dagkskrárliðinn Dry-Tool mót hér til vinstri:
„BÍS (Boulder ís) mót í Klifurhúsinu laugardaginn 9. mars kl. 20:00Allir að mæta með axir og gott skap því það verður fjör frameftir kvöldi þegar mótinu lýkur.„
0909862369MeðlimurSælir félagar, nú er komið að póstinum sem allir hafa beðið eftir, jarfnmikið og beðið hefur verið eftir úldnum fiski og gómsætu kjöti sem fylgir þessum hátíðum víst líka.
Eins og margir vita lenti undirritaður í ákveðnu „óhappi“ í Múlafjalli á miðvikudaginn síðastliðinn, og er best að henda inn nokkrum línum um það, til að sefa fróðleiksfýsn ÍSALP-ara.
Ég var semsagt á ferð með tveimur Áborgurum á leið í ísklifur þennan miðvikudaginn. Veður var þokkalegt, nokkuð rok, og gerði ráð fyrir að hvessa. Eins var skrambi hlýtt, svo við hefðum líklega þurft að hafa varann betur á eftir frostakaflann á undan. Við tökum semsagt stefnuna nokkuð beint upp frá bílastæðinu og erum í raun aðeins utan aðalgönguleiðarinnar. (Enda í sveitinni erum við vanir að fara ótroðnar slóðir). Þegar við erum komnir rétt fyrir neðan fyrsta ís erum við komnir í smá brölt/klöngur milli stórra steina, eins og lög gera ráð fyrir þegar maður fer í fjallgöngur. Ég er fyrstur af okkur þremur og hinir strákarnir koma í humátt. Ég styð mig við stóran stein sem virðist vera órjúfanlegur hluti af fjallinu og vigtaði líklega einhver 150-200kg. Áður en ég veit af stend ég með steinkvikindið í fanginu og við á hraðri leið niður fjallið aftur. Ég er í raun ekki með nákvæmar mælingar á falli, en ég byrja aðeins á frjálsu falli og renn síðan örlítið niður hlíðina og enda um 10-15 metrum neðar með höfuðið vísandi upp í brekkuna. Við fallið lendi ég á hægri öxlinni og andlitinu og steinninn lendir skammt frá og mölbrotnar. Af því má leiða að ég hafi unnið þessa grjótglímu þar sem ég var eftir til frásagnar og lítið brotinn, meðan steinninn var skilinn eftir í brekunni, mölbrotinn.
Í framhaldinu tók við fyrsta skoðun og hryggáverkamat, og var niðurstaðan að við myndum bíða eftir frekari aðstoð, en annar klifurfélaginn er EMT-B og WFR, svo hann hoppaði auðveldlega úr „play-mode“ yfir í „rescue-mode“. Eftir um klukkutíma birtist fyrsti sjúkrabíll á bílastæðinu og korteri seinna voru fyrstu bjargir mættar og undanfarar á svæði 1 fóru að týnast upp í brekkuna. Sem betur fer ákvað áhöfnin á TF-LÍF (eða einhvar ákvað það fyrir þá) að þeirra kröftum væri betur varið í að bjarga óheppnum ísklifrara í Hvalfirði en leita að strokufanga við Eyrarbakka. Því var ánægjulegt að sjá þá dúkka upp, og nokkrum mínútum síðar var ég hífður um borð og flogið rakleiðis niður í Fossvog.Af mér er það helst að frétta að ég slapp betur en á horfðist. Ég braut upphandleggsbein hægrameginn og þess sem ég bort kinnbein, augnbotn og gagnauga hægra meginn. Annað óbrotið, en töluvert mar og bólgur á hægri fæti. Allt það mikilvægasta slapp. Ég fór í 5 klst skurðaðgerð á fimmtudaginn og kom til baka með tvær plötur í andliti, einn nagla og fjórar skrúfur í handlegg. Kom síðan heim í gær og er allur að skríða saman. Ætla ekki að setja nein markmið fyrir ísklifurseasonið, en stefni á að vera kominn a.m.k. í gang fyrir klettana í sumar.
Annars held ég að það sé litlu við þetta að bæta nema, verum með hjálm þegar við förum í fjallgöngur, þó við séum ekki byrjuð að klifra. Hann amk bjargaði mér meira á hausnum heldur en danglandi utan á pokanum.
Með kveðju úr Hveragerði
Sævar Logi0909862369MeðlimurNafn: Vindmyllan WI 3+/4-
Tvær spannir, um 100m
Frumfarin 1. desember: Sævar Logi Ólafsson, Einar Bjarnason og Egill Halldór GunnarssonÁberandi lína Norðaustan í Vörðufelli í Biskupstungum fyrir ofan sumarbústaðina í landi Iðu. Gilið heitir líklega Gunnugil og aðkoman þægileg. Um 10 mínútna ganga frá sumarbústöðunum.
Fyrri spönn, ca 55-60m
Byrjuðum fyrir neðan neðsta haftið sem var 5-6m 3 gráða, síðan tók við 2 gráðu tenging yfir í aðal haftið sem var 10-15m 3+/4-.Seinni spönn ca 40-45m
Byrjaði á góðu hafti sem var örlítið kertað og hressandi 3+/4- Síðan tók við þægileg þriðja gráða upp 1-2 góð höft í viðbót.Sigum efri spönnina á V-þræðingu, en mjög auðvelt er að komast úr fossinum milli hafta og ganga niður.
0909862369MeðlimurFór ásamt tveimur Gnúpverjum í NA hluta Vörðufells í Biskupstungum þar sem við fórum mjög greinilega línu sem sét vel frá veginum. Gilið gæti heitið Tæpastígsgil eða Gunnugil (samkvæmt korti) En spurningin er hafa menn verið að brölta þetta áður, ef svo er hvaða nafn ber þá þessi leið og hvað var hún gráðuð?
Við tókum þetta í tveimur spönnum, fyrri spönnin tæpir 60m og sú seinni milli 40m og 50m. Hressandi höft inni á milli (WI3+/WI4- ?), en annars þægilegt klifur.
En hvað segja vitrir menn, ber þessi leið ekki eitthvað nafn?
[attachment=504]Vordufell.jpg[/attachment]0909862369MeðlimurBýr einhver yfir upplýsingum yfir þær leiðir sem hafa verið boltaðar í sumar í Valshamri og á Hnappavöllum?
0909862369MeðlimurVar á Eyjafjallajökli á sunnudaginn í 6 manna hóp. Fórum upp Skerin,kíktum á Goðastein, upp á Hámund og niður Seljavallaleiðina. Skíðafærið hreint ekki það skemtilegasta, jökullinn glerharður en töluvert þyngra færi eftir því sem neðar dró. Samt mun skárra en að þramma á skósólunum upp og niður. Hittum einnig franskt par sem fór Skerjaleiðina upp og niður.
0909862369MeðlimurFórum fimm á Syðstu-Súlu í dag. Algjörlega frábært veður og fínt færi. Þurftum að ganga 2km að snjó og síðan bara hamingja eftir það.
Góður dagur á fjöllum.0909862369MeðlimurVar í sjömanna hóp í Tindfjöllum um helgina í ÍSALP skálanum. Fórum þrír í kvöldmission á föstudagskvöldið á Haka. Komum á toppinn í ljósaskiptunum og svo var skíðað með ennisljósin niður. Leiðinlega hart færi, en slapp alveg til. á Laugardaginn fórum við á Ými í þokkalegu færi, þokan var ansi þykk upp í 1100m en eftir það skánaði útsýnið til muna. Alveg ágætis dagur á fjöllum.
https://picasaweb.google.com/107849265394061351531/Tindfjoll3031Mars?authuser=0&feat=directlink
SLÓ
0909862369MeðlimurEr ekkert væntanleg einhver hetjusaga (eða í það minnsta ferðasaga) frá jólaskíðuninni? Fóruð þið á Eyjafjallajökul? Hversu margir fóru? Hvernig var færið o.s.frv.
0909862369MeðlimurSteinar Sigurðsson wrote:Quote:Og hinir tveir hanga enn.Ætli það sé ekki ástæðan fyrir því að hinir tveir hafa ekki verið nefndir á nafn ennþá?
0909862369MeðlimurLangleiðin hljómaði bara svo miklu flottara
Aldrei láta góða sögu gjalda sannleikans, var það ekki eitthvað máltæki?0909862369MeðlimurFórum ekki nema í einhverja tæpa 600m, en það virkaði mun strembnara á sunnudaginn, heldur en núna þegar maður skoðar þetta svona á tölvunni, en hérna er mynd af trackinu og hæðarferlinum.
0909862369MeðlimurRobbi, hérna eru nokkrar myndir af Gígjöklinum, hvorki margar né frábærar, en við skulum taka viljann fyrir verkið
https://picasaweb.google.com/slo.lighting/Gigjokull27Nov2011
0909862369MeðlimurFór ásamt fríðu föruneyti af svæði 3 í „alpaferð“ langleiðina upp Gígjökulinn og niður aftur og náðum við að hitta á að fara úr bíl í bíl í björtu.
Vitið þið um marga sem hafa brölt upp allan jökulinn eftir gos?
0909862369MeðlimurÉg er farinn að halda að Atli hafi verið að tala um eitthvað annað „annaðkvöld“ en við héldum. Spurning hvort hann meinti að dagsetningin kæmist ekki á hreint á því kvöldi sem hann kommentaði, heldur bara eitthvað annað kvöld
0909862369MeðlimurÉg var í Valshamri á laugardaginn og vorum við uppfrá til 17:30 og urðum ekki vör við neitt belti uppfrá sem við könnuðumst ekki við. Annaðhvort hefuru falið beltið, hópar sem komu á undan okkur hafi tekið það með, þú hefur verið uppfrá á eftir okkur eða beltið er bara djúpt ofan í bakpokanum hjá þér
—
SLÓ0909862369MeðlimurFór ásamt nokkrum fleirum í Stiftamt í gær og fundum við þar tvær boltaðar leiðir hlið við hlið (ca 3-5m á milli). Er ekki klár á hvernig maður skilgreinir staðsetninguna á þeim, en læt mynd fylgja með, til að sérfræðingarnir geti vonandi upplýst mig um nöfn og gráður þessara tveggja leiða. (Getur verið að það hafi verið auka toppakkeri á milli leiðanna?)
—
SLÓ0909862369MeðlimurStórskemtilegt video. Gott að sjá að einhverjir sjái um að taka öskutékk þarna fyrir norðan
0909862369MeðlimurÞað er staðfest, Palli Sveins er algjörlega með þetta! Stórskemtilegt video…
SLÓ
0909862369MeðlimurEru Hnappavellir orðnir sæmilega öskuhreinir eða þarf maður að mæta með handryksuguna með sér þegar maður er á ferðinni?
0909862369MeðlimurMagnað vídjó. Til lukku með þetta
0909862369MeðlimurScarpa Ladakh, en það er nú kannski bara ég (eða kannski líka flestir sem hafa nú þegar kommentað , en eins og Freysi segir, þá er þetta einstaklingsbundið og eina vitið að máta þessar týpur sem fólk er að mæla með og velja það sem hentar þér best.
0909862369MeðlimurSnilldar vídjó, frábærlega unnið. Two thumbs up…
—
SLÓ0909862369MeðlimurHvort er þetta 35 eða 45 lítra poki?
0909862369MeðlimurHvernig er aðkoman í Stiftamt? er löng ganga frá bílum og í veggina?
Spyr sá sem ekki veit
-
HöfundurSvör