Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
0808794749Meðlimur
Ekki seinna vænna en að grafa fram vidjóin og myndasjóin sem hafa verið sett saman undanfarin ár. Svona til að koma fólki í gírinn.
0808794749MeðlimurHi Siebert.
I think most people are staying here and there in town. At friends places or in union rental flats. But maybe some people are staying at Akureyri Backpackers. It’s a really nice hostel right downtown. Haven’t stayed there but the burgers and the beer is great.
If you have a hard time finding a lift, this is also an alternative.
http://www.samferda.net
See you there!0808794749MeðlimurAlltaf gaman af pistlunum þínum Árni.
Var í flubbaferð í Botnsúlum um helgina. Við horfðum frá Suðursúlu yfir á ljósin í Bláfjöllum í gær. Frekar flott.
Ef það væri komin samfelldari grunnþekja þá hefði verið geggjað púðurfæri í Botnsúlum í dag. Eftir þessa helgi þá eru ansi margir sem bíða spenntir eftir að koma aftur upp í Botnsúlur þegar Bratti verður kominn á sinn stað. Ekkert smá flott basecamp.0808794749MeðlimurÞað er búið að ræða svona fjallaskíðafestival í ansi mörg ár. Nú þarf bara að framkvæma hugmyndina.
Kiddi hvernig væri að þú virkjaðir einhverja fleiri snillinga með þér fyrir norðan í þetta dæmi?
Ég mæti!0808794749MeðlimurÉg á einn fastan punkt í skíðatilverunni og það er Telemarkfestival. Þá telemarka ég.
Þess utan renni ég mér með hvaða aðferð sem mér hugnast þann daginn, og með hverjum sem mér dettur í hug og hvar sem er.
En Telemarkfestival verður að vera einu sinni á ári, sama hvað er í tísku það árið.0808794749MeðlimurTakk fyrir að deila með okkur sögunni Sævar.
Bestu bata- og jólakveðjur til þín.0808794749MeðlimurSlysið um helgina er ekki það fyrsta tengt hálku/innanbæjarbroddum. Heyrði líka af svipuðum dæmum í fyrra. Þessir hálkubroddar eru klárlega ekki gerðir fyrir brekkur og ójöfnur, flestir festir með teygjum eða álika sem poppar af um leið og það kemur eitthvað átak á þetta.
Hef ekki prufað hálfbrodda eins og Björk vísar í en þeir eru þá allavegana strappaðir á skóinn og ættu ekki bara að poppa af.
Svo er ísöxin annar handleggur sem fólk er greinilega farið að skilja eftir heima!0808794749MeðlimurSnilldardagur!
Palli þú náðir alveg að fanga jólaklifurandann í þessu vidjói!0808794749MeðlimurJá sæll hvað þetta er töff timelapse. Jólaklifrið er klárlega selt!
0808794749MeðlimurSveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Freyr Ingi Björnsson
júní 2008Stjórnarmeðlimir í erindagjörðum sbr. umfjöllun á eftirfarandi slóð.
https://www.isalp.is/frettir/576-HraunDranginn.html
Og ryfjast þá upp sorglega stutt dvöl þessa fagra fleygs á toppnum. Hvar er Olli?
0808794749MeðlimurSkabbi með sagnfræðina á hreinu
Eitt af því besta en jafnframt líklega eitt af því heimskulegasta sem ég hef gert var að fara á hotpants og bikinitopp alla leið inn Glymsgil og nánast undir fossinn.
Á svona stað er yfirleitt frekar heimskulegt að vera á ferðinni (hvort sem er með hjálm eður ei), en upplifunin er kannski því magnaðri.0808794749MeðlimurHelgin var algjörlega epísk!
Takk Bassi og allir sem mættu til að gera þetta að snilldar eventi.0808794749MeðlimurÉg stóðst ekki mátið og gerði eins og Berglind.
Hér eru nokkrar svipmyndir frá festivölum 2007-2011.Njótið.
0808794749MeðlimurÉg náði þrælfínum beygjum utan brauta í Eldborgargili í kvöld.
Eitt skrýtnasta færi sem ég hef rennt mér í, helvíti fínt á bretti.
Ísnálalagið sem var örugglega hálfur cm á þykkt leit út eins og botnin á glermunum úr Ultima Thule línu Iittala…
Verður forvitnilegt að sjá hvernig það þróast þegar það snjóar ofan á þetta undarlega lag sem ég ætla kalla funky stuff.0808794749MeðlimurMér finnst alveg ótrúlega amatöra-legt að þessi pabbastrákur hafi ekki verið búinn að skilja eftir ferðaplan hjá safetravel.is , nú eða allavegana verið búinn að kynna sér símanúmerið 112…
http://mbl.is/frettir/innlent/2012/02/09/hringdi_i_pabba_sinn_eftir_hjalp/
0808794749MeðlimurSpes að þeir hafi verið að hringja í bresku strandgæsluna. Mér þætti áhugavert að vita hvort þeir hefðu skilið eftir ferðaplan hjá Landsbjörgu.
0808794749MeðlimurHæ. Ég komst því miður ekki á aðalfundinn.
Ég frétti hins vegar að það væri komnir nýjir aðilar inn í stjórn. Spennandi!
Á að deila því með okkur sem heima sátu hverjir þessir nýju stjórnarmenn eru?0808794749MeðlimurSnilld. Tveir töff atburðir sama kvöld. Eðall!
!
Orðið á götunni er að þetta ársrit sé svo þykkt og þungt að mælst sé til þess að lesendur hiti upp áður en þeir taki sér það upp. Nema kannski þeir sem eiga kort í Klifurhúsinu.
!0808794749MeðlimurMikið kann ég vel að meta innlegg fréttaritara ÍSALP í Bláfjöllum
0808794749MeðlimurBroddarnir eru seldir.
0808794749MeðlimurVar það ekki örugglega Kristján Guðni sem átti plast-sauna-myndina?
0808794749Meðlimurheihó. ég á eins brodda. Grivel 2f.
þeir hafa dugað mér vel í gegnum árin en óska nú eftir nýjum eiganda.
5000 kall gegn því að vera sóttir miðsvæðis í rvk.sveinborg (at) hotmail. com
0808794749MeðlimurKorputorg í aðstæðum!
Ekkert jafnast á við ísklifur á bílastæði í úthverfi borgarinnar.
Frábært æfingasvæði.
Munið eftir gettóblasternum.Kveðja.
0808794749MeðlimurTöff.
Það lítur út fyrir að hjólaferð inn Morsárdalinn sé orðinn standard eftir að ég, Heiða og Sædís gerðum atlögu að Þumlinum í vor.
Lentum í rigningu sem breyttist svo í snjókomu og náðum ekki takmarkinu.
Ég mun hinsvegar seint fara aftur gangandi inn Morsárdalinn í sömu erindagjörðum.
fyrir áhugasama:
http://sveinborg.smugmug.com/HikeSnowEtc/Hike/thumalsvidreynsla/17403221_RvVG6Zbæ.
0808794749MeðlimurFáránlega vel gert Valdi. Hlakka til að heyra og sjá eitthvað af þessari leið og uppferð þinni.
-
HöfundurSvör