Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
Freyr Ingi
ParticipantStyrmir og Freyr fóru Ýring í dag.
Slatti af snjó í gilinu gerir stuttu íshöftin styttri, sæmilegur ís.
Efsta haftið var alveg sílspikað af afbragðs ís, þurr og kaldur en ekki brothættur.
Gengum ofar í gilið til að skoða kertin fyrir ofan lokahaft Ýrings en snerum við vegna snjóflóðahættu en töluverður foksnjór var í skálinni efst í gilinu og greinilegur fleki sem hafði farið þar af stað.
Ekki ólíklegt að svipaðar aðstæður séu víðar.
Freyr Ingi
ParticipantJólaklifur
Freyr Ingi
Participant[quote=“Freyr Ingi Björnsson“ post=12520
Við tókum semsagt „Skabba“ á þetta í gær, allt pikkfrosið og fast, klifur upp á brún laga, til, síga niður aftur. festa línur aftur í kertadrasli, brjóta kertið losa línurnar aftur og síga niður á fast land.
[/quote]
Skabbi ekki illa meint á neinn hátt, bara tilviljun að þú hafir verið með greinargerð um nkl sömu mistök og við gerðum í gær.
Ég vona að greinargerðin um línuvesenið ykkar í Óríon verði til að fleiri svona reynslusögur dúkki hér upp á spjallinu því ég veit að fjölmargir hagnast á svona skrifum.
Hvort sem það er lærdómur eða upprifjun fyrir fólk þá er þetta bara sniðugt.Freyr Ingi
ParticipantFreysi og Stymmi fóru Skoruna í Paradísarheimt í gær.
Gott mót og sérelga skemmtilegur karakter af ísfossi að vera.
Frzmar í þessum þræði lýsir Siggi T. aðstæðum nokkuð vel og í raun er þar engu við að bæta að sinni nema hvað að við mælum með göngu niður… ekki sigi.Við tókum semsagt „Skabba“ á þetta í gær, allt pikkfrosið og fast, klifur upp á brún laga, til, síga niður aftur. festa línur aftur í kertadrasli, brjóta kertið losa línurnar aftur og síga niður á fast land.
Viðar og Guðjón Snær eru víst á þessum slóðum í dag.
Freyr Ingi
ParticipantAð sjálfsögðu eiga láta menn landeigendur vita.
– Öryggisventill að einhver viti af manni
– Góð ráð og upplýsingar frá heimamönnum
– Svalar forvitni heimamanna (setjið ykkur í þeirra spor að þurfa að giska á hvað fólkið sem lagði bílnum sínum inni á túni er eiginlega að aðhafast)Annars er líka sniðugt að skilja eftir miða í framrúðu bílsins.
Það er í raun og veru sniðug hefð sem ég tel að við ættum að koma okkur upp hér á landi.Freyr Ingi
ParticipantNákvæmlega, er ekki kominn fín leikföl í Botnssúlur?
Botnssúlur er tilvalið fjallaskíðaland sem hefur þann FRÁBÆRA kost að við (Ísalparar) eigum skála þar uppfrá.
Stutt frá Rvk + skáli + fjallalandslag sem hentar vel til rennslis og klifurs + vetur = GEBBAÐ STUÐ!
Freyr Ingi
ParticipantErtu að grínast Arnar!?
Freyr Ingi
ParticipantEkki málið!
Sendi nokkrar hressar á þig.
Freyr Ingi
ParticipantKökuspurning kannski?
Freyr Ingi
ParticipantTakk fyrir skemmtilega myndasýningu piltar.
Freyr Ingi
ParticipantFlott framtak að blása til slíkrar ferðar!
Endilega nýtið ykkur tækifærið, setjið ykkur í samband við Helgu Maríu og farið í ísklifurfrí.
Freyr Ingi
ParticipantSjitt maður þetta er fyndið!
Var ekki eitthvað svipað uppi á teningnum fyrir 10 árum síðan?
Freyr Ingi
ParticipantLagfært akkeri
Freyr Ingi
ParticipantTek undir þetta með Atla og klappa fyrir viðhaldsvinnunnu skálamannanna.
Freyr Ingi
ParticipantSiggi segðu okkur sögur
Freyr Ingi
ParticipantSkemmtilegt!
Sýnið endilega myndir af uppgöngunni og umhverfi.
Freyr Ingi
ParticipantFullt af krassandi slúðri Sveinn.
Þú verður kannski að skýra betur frá þessu öllu saman.Freyr Ingi
ParticipantSkemmtilegt myndband hjá þér!
Freyr Ingi
ParticipantAlgerlega er ég sammála þér þarna Björk!
Fólk verður að vera óhrætt við að viðurkenna reynsluleysi sitt þar sem það er beinlínis með líf annarra í lúkunum. Ef maður klúðrar í þessu sporti geta afleiðingarnar verið töluvert verri en sjálfsmark.
Freyr Ingi
ParticipantLeiðinlegt að heyra að gestabókin sé orðin lasleg. Það virðist ekki ætla að vera auðvelt að halda lífi í slíkri bók þarna uppi, mér skilst að þessi sé sem nú er uppi sé hin þriðja í röðinni.
Annars tek ég undir orð Sveinborgar skora á Olla að skila pelanum upp hið fyrsta eða í það minnsta skila honum til stjórnar svo næsti hópur sem hyggur á Hraundranga geti komið honum fyrir á sínum stað.
Freyr Ingi
ParticipantGaman að heyra af ykkur í góðum málum þarna drengir.
Stuðkveðjur!
Freyr Ingi
ParticipantNýliðaferð Ísalp í Valshamar um helgina hljómar eins og gott efni fyrir þetta project.
Kíkirðu ekki með þeim þangað og meikar mega plögg fyrir klúbbinn og sportið?!
Freyr Ingi
ParticipantÉg er einmitt í sömu sporum og Árni. Með hjartafólgna alstífaskó í höndunum sem mig langar til að endursóla. Nóg eftir af þeim held ég þó botn og einstakir saumar séu orðnir þreyttir.
Hef heyrt að menn séu að senda stífa skó til Þýskalands í endursólun.
Spurning um að smala saman skóm í sendingu til fagmannanna þar?
Ég býð mínum skóm alla vega í ferðalag ef þeir fá ferðafélaga.Freyr Ingi
ParticipantTúttur komnar til skila.
Freyr Ingi
ParticipantSpennandi dæmi, gangi ykkur vel.
-
HöfundurSvör