Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
Freyr IngiParticipant
Grafarfoss í flottum aðstæðum.
Freyr IngiParticipantGrafarfoss er í fínum aðstæðum.
Freyr IngiParticipantJú mikið rétt, það var einnig klifrað í Brynjudal í gær.
Ági, Hulda og ég fórum upp ísleið vestan Flugugils.
Freyr IngiParticipantGrafarfoss var í fínum gír í gær.
Orginalinn bauð upp á sérdeilis prýðilega skemmtun. Talsvert landslag alveg í kverkinni eftir hlákuskotið.Freyr IngiParticipantTvö teymi reyndu fyrir sér í Áslák í Kjós í gær.
Fossinn er í afbragðsaðstæðum þó hann sé ennþá blautur hægra megin.
Skemmtilegt.Freyr IngiParticipantFórum í gær og fundum ís inni í Múlafjalli. Þessi síðastliðna hláka hefur að sjálfsögðu tekið sinn toll af ísum landsins en náði þó ekki að sigra allt, allsstaðar.
Sá ís sem eftir lifði virðist þannig bera merki um baráttuna og gæti verið þunnur, stökkur, slípaður og regnhlífaður. En svo er líka að hlaðast upp aftur og þar er hann mjúkur og slössí.Við fórum amk. upp Rísanda og fundum allskonar útgáfur af ís.
Eilífsdalur og Óríon virtust fjarskalega fagrir.
- This reply was modified 7 years síðan by Freyr Ingi.
Attachments:
Freyr IngiParticipantVið Eyþór fórum í Tvíburagil í dag.
Klifum ís og klett, klipptum í bolta og héngum í ofanvað. Gott mót eftir geggjað fertugsafmæli í gær. ;o)
Takk Ísalp, fyrir gott partý og allt hitt.
En já, það er semsagt ekki kominn ísskrúfu tryggjanlegur ís á þessum slóðum enn.Freyr IngiParticipantHeilbrigð umræða um málið virðist vera farin af stað.
Ég tek undir það að fundur til kynningar fyrir félaga um miðjan júlí er ekki vænlegur kostur og seinni tillagan um fund eftir verslunarmannahelgi er því mun betri kostur.
Er það þá ekki slegið?
Reikna með að stjórn boði á fundinn með formlegum hætti hvenær sem hann svo verður.Þetta mál er ekki ósvipað Tindfjallaskálamálinu þar sem ég, þáverandi formaður, lagði fram tillögu um að koma skálanum yfir á FÍ. Lítill áhugi hafði þá verið fyrir Tindfjallaskála um nokkurn tíma og hann að niðurlotum kominn vegna
viðhaldsleysis. Í kjölfarið fór af stað atburðarrás keimlík þessarri sem endaði á því að hópur fólks tók verkefnið að sér. Sótti skálann, endursmíðaði og kom honum svo aftur á sinn stað í Tindfjöllum þar sem af honum er sómi.Manni finnst svona eins og það ætti í það minnsta að halda þennan kynningarfund, fá öll spilin borðið.
Fréttatilkynning um málið kom svona þónokkuð flatt upp á mann.Að því sögðu þá get ég vel sett mig í spor þeirra sem eru stjórnarmegin við borðið og hafa unnið í þessu máli sem fáir hafa sýnt áhuga fyrr en á þessum tímapunkti. Það kostar þolinmæði.
En eigum við ekki að sjá hvað kemur út úr þessum kynningarfundi og tala saman. Það liggur varla svo mikið á að skrifa undir samninginn er það?Freyr Ingi
Freyr IngiParticipantGóðan dag.
Er ekki tilefni til að ræða þetta aðeins innan klúbbsins.
Mér heyrist að fólk hafi skoðanir á þessum skála sem við fengum að gjöf.Má biðja um fund meðal félagsmanna og stjórnar til upplýsinga um stöðuna.
Freyr Ingi
Freyr IngiParticipantHæ,
ég verð líklega á Eskifirði um páskana með Þórhildi, Nonna og Gilla og Hnetu Mjöll.
Rennslisbúnaður ásamt klifurgír verður með í för.Verðum í bandi.
S:778-1122
Freyr IngiParticipantGott mót!
Átök á öxum og svo skella sér beint í bingó á efri hæðinni.Freyr IngiParticipantpartý eftir klifur er það ekki?
Freyr IngiParticipantÉg skal greiða einn nýpressaðan þúsara fyrir FIFI krókinn þinn.
Freyr IngiParticipantMúlafjall í gær:
Freyr IngiParticipantMúlafjall í gær ..
Freyr IngiParticipantSæll Sævar,
ég hef ekki heyrt af klifri á þessum slóðum fyrr en nú.
Ég legg til að þú og Gnúpverjarnir skráið leiðina sem frumfarna og komist að því hvaða nafn er á gilinu. Hendið svo nafni, gráðu, lengd og upplýsingum um aðkomu með og haldið áfram að klifra. ;o)
Freyr IngiParticipantFlott hjá ykkur og gaman að heyra af mönnum í „alpakletta“ klifri og þá sérstaklega á fáförnum slóðum.
Við Tryggvi Stefáns vorum á ferð þarna í sept. 2006 og ekki veit ég hvort við á „réttri“ leið eða ekki en við snerum við með skottið á milli lappanna eftir að hafa togað út stórt grjót kaus að falla framhjá okkur en ekki á okkur. Ákveðinn mood killer og við ákváðum að koma okkur bara niður. Man heldur ekki í fljótu bragði hvar við vorum á fjallinu miðað við rauðu línuna á myndunum þínum.
Þar af leiðandi vakna upp nokkrar spurningar?
– Þarf fjallið að ykkar mati að vera frosið til að það æskilegt sé að vera á þessum slóðum?
– Er þetta eina klifurleiðin sem hefur verið farin á Þorgeirsfellshyrnu?
– Af því að þú segir að hún hafi dottið úr tísku, þá langar mig líka að vita hvort hún hafi einhverntímann verið í tísku. Þ.e. hafa margir farið þarna upp?
Hvenær kemur svo vídjóið Palli? (maður er farinn að búast við ljós- og hreyfimyndum frá þér í hvert skipti sem þú ferð eitthvað) ;o)
Freyr IngiParticipantVið Tryggvi Stefáns tókum hana niður. Tryggvi skrifaði svo upp úr henni og tók saman í listann sem ég póstaði hérna inn í þennan þráð fyrir nokkrum dögum.
Hvar bókin er niðurkomin núna veit ég ekki en hún var mjög illa farin svo ég gæti best trúað að hún hafi endað í ruslinu eftir að búið var að skrifa upp úr henni.
Tryggvi myndi vita meira um það mál.
Freyr IngiParticipant7. ág. 2001
Undirbúningsferð fyrir fyrirhugaða ferð ISALP þann 11. ágúst þá ætla ISALP félagar að gera hópferð á „Drangann”.
Jón Marínó Sævarman
Sigurður Gunnarsson
Gunnlaugur búi Ólafsson
Ólafur Ólafsson
Anton carrasco11.ágúst 2001
Sumarferð Ísalpara
_stní Irene Valdemarsdóttir
Sigurður Gunnarson (sami og ←)
Helga Björt Möller
_ Örn Kristjánsson
Kári Bjarnason
Hálfdán Ágústsson29. júní 2002
Skemmtiferð á Drangann
Friðjón G. Snorrason
Halldór Nílson
Magnús Skúlason25.júlí ´02
Brrrr… Það er skítakuldi en flott útsýni.
Friðjón G. Snorrason
Hreinn Logi Gunnarsson
Halldór Nilssen (Dorrit)
Ágúst 2002_ólaferð á drangann!
Margrét Valdimarsdóttir ☺
Guðmundur Helgi Gíslason „Á stuttbuxum”
Jón Haukur St.
Jórunn Harðardóttir á bikiní tja og stuttbuxumLogn – Heiðskírt – Bongóblíða
Helsti Böggur → Flugur !!!
Sept ´02 kl 15:30
Komum í Jesúnafni og báðum fyrir landi og þjóð.
Snorri í Belel
Eva Hildur Magnúsdóttir
Snorri Bergsson
Friðjón Guðm snorrason
Halldór Nílsson (Dorit)Föstudagurinn Langi 18.apríl ´03
Komum hér 4 meðlimir úr Björgunarsveit Hafnarfjarðar í blíðskaparveðri. Klifum á toppinn. Héldum svo heim eftir vel heppnaðann dag.
Arnar Þór Ásgrímsson
Jósef Sigurðsson
Bergur Einarsson
Símon HalldórssonP.S. Fylltum á pelann.
Miðvikudagurinn 14. maí ´03
J. Sverrir Friðriksson
Friðjón Guðmundur Snorrason 4x
Laugardagur 24. maí 2003Fullkkomið veður, algjör klikkun , en geggjað engu að síður.
Manchester United Rúla
Pétur Sveinsson
☺Friðjón G. Snorrason 5x
Snorri Bergsson
Hreinn Logi Gunnarsson 2x ☺
Hilmar Baldvinnson
Halldór Nílsen Dorit x416.ágúst 2003
Rigning
_____
Örlygur Steinn Sigurjónsson
ÍÍÍAAAHH….7/9 2003
Heimsmet sett á “Drangann”
10!!! 10 Manns. Friðjón var að guida. Ískallt en sammt skítkalt veður.Bjarni Árdal
Magnús Ágúst Skúlason
Árni Magnússon
Magnús Sm Smárason. Súlur
Arnar Ómarsson (Arnar cam)
Óskar Ingólfsson Súlur
Ari Marteinsson (Javel)
Hilmar þór Sigurjónsson
Friðjón G. Snorrason 6x Súlur
Bjarni Jósep Steindórsson _________
24.04´04
Í dag er gott að vera Íslendingur!
3 félagar í FBSR
-Magnús Aðalmundsson
-Bjarni L. Niculausen ☺
-Hilmar Ingimundsson (Drímer)30.maí 2004
5 skátar að sunnann á toppnum. Mjög gott veður, rífandi stemning.
Ágúst Þór Gunnlaugsson Ds. Fenris
Elmar Orri Gunnarsson Ds. Plútó
Gunnar Magnússon Ds. Sagitarius
Halldóra M. Magnúsdóttir Ds. Fenris
_ _ Þórir Ds. Fenris HSSR _ _7. ágúst 2004
Komum upp í góðu veðri og útsýnið hefur ekkert breyst ☺
J. Sverrir Friðriksson
Magnús Skúlason
Friðjón G. Snorrason2
23. Aug 04
Kev Taylor R.A.F Mountain Rescue
Steve Gratton R.A.F Mountain Rescue
Gimge Williams R.A.F Mountain Rescue
Ergy R.A.F Mountain RescueVery kindly guided up by Súlan. Thank you very much. A good day
J. Sverrir Friðriksson
Friðjón G Snorrason07.ágúst 2005
Sveinn Friðrik Sveinsson (Sissi)
Skarphéðinn Halldórsson (Skabbi)
Þórður (Doddi) Flubbi
Steinar Flubbi
Sigurjón
23.7.06
Komum í snilldarveðri og algjöru logni.
Ógeðslega gaman og ekkert mál!Friðjón G. Snorrason Akureyri
Hólm__ Snædal Akureyri
Sara Benediktsdóttir Akureyri
Magnús Skúlason Ak
____steinn AK
Daan Holland
Jón Sverrir AK
Stefnir Snorrason Reykjavík10. sept 2006
Freyr Ingi
Tryggvi Stefánsson
Helga Björt MöllerFreyr IngiParticipantBúinn að kvitta.
KVITT
Freyr IngiParticipantSkarðsheiði bauð upp á skemmtilegt Skarðsheiðarklifur í dag.
Eitthvað hefur grynnkað á ísnum en hann er langt frá því að vera horfinn.
Dreyri var sýndist t.d eitthvað slappur neðarlega en slatti af fínum ís og frosnum snjó í Jónsgili í Heiðarhorni.Freyr IngiParticipantSetti inn myndir hérna:
https://picasaweb.google.com/106200189876333931784/Paskar2012
Þær eru bæði teknar af mér af Styrmi.
Við vorum líka með GoPro vél en ég ruglaðist eitthvað á tökkunum og á núna svaka mikið af hljóðefni sem er tekið innan úr hettunni minni. Hélt að það væri slökkt en á henni semsagt þannig að minniskortið bara kláraðist eiginlega þar.Freyr IngiParticipantFreyr IngiParticipantTakk fyrir skemmtilegan viðburð í gær félagar.
Verulega gaman að sjá allar ljósmyndirnar sem sendar voru inn í keppnina, 92 stk ef ég taldi rétt en enn skemmtilegra fannst mér að sjá vídjóin sem Ísalparar eru farnir að búa til.
Ritnefnd fær svo nátturlega stóran plús fyrir að koma ársritinu út til okkar hinna.
Takk !!
Freyr IngiParticipantHahahahaaa..
Extreme gönguferð hjá ykkur.Hvað þurfa margir að læka á gönguferðina til að þú póstir klifurkaflanum ?
-
HöfundurSvör