Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Veit einhver um ísaðstæður?
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
1. janúar, 2003 at 21:56 #462570405614209Participant
Veit einhver hvernig aðstæður eru t.d. í Múlafjalli eða Glymsgili núna???
1. janúar, 2003 at 22:12 #47652JokullMeðlimurFullt af ís fyrir norðan, (sjá nýskráningar ísleiða) og svo er veðrið náttúrlega alltaf gott líka. Kveðjur að Norðann
Bergmann og Ísfeld
2. janúar, 2003 at 10:47 #47653AnonymousInactiveÞað má gleyma Glymsgili núna en einu ísaðstæður sem eru í nágrenni Reykjavíkur eru sennilega í Eilífsdal. Eins og hann er rosalega skemmtilegur uppgöngu.
Olli2. janúar, 2003 at 18:36 #476540405614209ParticipantSælir.
Ég fór í dag í Glymsgil og það var akkúrat enginn ís þar, ekki einu sinni hrat á ánni. Sömu sögu er að segja úr Múlafjallinu – þar er örþunnt skæni syðst í hamrabeltinu.
Úr þessum hörmungum héldum við (ég og C.Smith jöklabani) beina leið í Valshamar og opnuðum þar formlega klettaklifurvertíðina 2003. Fínar aðstæður – kletturinn skraufaþurr og alls ekki svo kaldur. Eiginlega stórfínar aðstæður og blankalogn. Skrattans hliðin voru harðlokuð, bæði tvö, en það er hægt að fara hjáleiðina sem endar neðan við bústaðina beint fyrir neðan hamarinn.
Ég gjóaði svo aðeins augunum upp í Eilífsdal á leiðinni til baka og það var ekki mikið að sjá þar heldur.
Ísaxir til sölu – kosta eina tölu!
3. janúar, 2003 at 10:18 #47655AnonymousInactiveSæll aftur Halldór!
Þar sem aðstæður hér á landi (veðurfarslega) hafa verið eins og á slöku hausti þá má allt eins leiða líkum af því að það séu klifuraðstæður í Þórisjökli.3. janúar, 2003 at 10:30 #476560405614209ParticipantBlessaður.
Enn og aftur hittir skrattinn ömmu sína.
Þegar jöklarnir verða horfnir líka þá geri ég alvöru úr því að selja græjurnar fyrir eina tölu og sný mér að rúsínu og plómurækt. Landsvæðið undir Bárðarbungu kemur til með að henta ágætlega – miðsvæðis og nóg af jarðhita.
6. janúar, 2003 at 11:35 #476571810774769MeðlimurJæja, ég er nú grænn í þessu öllu saman, því ég ætlaði að fara að læra þetta, finna kikið. En mér heyrist að ísklifur sé deyjandi grein!!!
6. janúar, 2003 at 13:01 #476580405614209ParticipantBlessaður Eiríkur.
Núna varstu heppinn. Ég var einmitt í sambandi við almættið í gærkvöldi og hef í höndunum áræðanlegar heimildir fyrir því að nú fari kólnandi. Heimildir mínar eru eftirfarandi:
1) Núna á næstu dögum fer að frysta og í vetur verða ísklifuraðstæður með allra besta móti.
2) Ný og áður óþekkt ísklifursvæði finnast á Suðurlandi í lok janúar.
3) Verð á klifurbúnaði kemur til með að lækka stórkostlega í verslunum.
4) Ísklifurfestival Alpaklúbbsins verður fjölsóttara en nokkru sinni fyrr og menn munu horfast í augu og stynja „frábært, frábært“ í gríð og erg.
5) Þú tekur ákvörðun um að smella þér í ísklifur og sérð ekki eftir því. -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.