Vefnefndin er nú óðum að hefja störf fyrir alvöru. Nefndarmennirnir Björn Brynjúlfsson (Björninn), Haraldur Guðmundsson (Halli), Ólafur Ragnar Helgason (Óli Raggi) og Stefán Örn Kristjánsson (Don Stefano) hafa lokið ítarlegri þjálfun í stjórnun Ísalp-vefsins. Eftir að hafa gengið í gegnum ströng próf hafa þeir nú allir CIA-skýrteini upp á vasann (Certified Isalp Administrator). Aukinheldur verður undirritaður í nefndinni til aðstoðar í vélasal.
Nefndin hefur netfangið vefnefnd@isalp.is. Ábendingar sem sendar eru af síðunni (neðst í hægra horni) fara á nefndina, og sömuleiðis póstur á netfangið info@isalp.is.
EKKI HIKA við að senda póst á nefndina með ábendingum, athugasemdum, atyrðum og öðru sem þú vilt koma á framfæri varðandi vefsíðu klúbbsins.
kveðja
Helgi Borg