Rakst á þessa síðu um hóp stráka sem ætla að ganga á hæsta fjall í hverjum landshluta á einni helgi í júlí. Samtals er um að ræða um 5400 metra hækkun og rúmlega 37 km göngu og svo auðvitað hringferð um landið.
Allt er þetta gert til styrktar Sjónarhól.
Óhætt er að segja að þetta er metnaðarfullt verkefni sérstaklega í ljósi þess að þetta eru ekki reyndir fjallgöngumenn, en eru í stífum undirbúningi þessa dagana.
Datt í hug að þetta vekti áhuga fjallamanna þessa klúbs – meira á http://www.5tindar.is