Sjö vaskir ísalparar sigruðu eggina í frábæru veðri og góðum aðstæðum á laugardaginn.
Gangan tók 14 tíma í heild en lagt var af stað frá eyðibýlinu Felli í suðursveit. Útsýnið af toppnum var ólýsanlegt!
Góður dagur á fjöllum.
Myndavélin mín var skilin eftir heima að þessu sinni. Það var tryggingin fyrir góðu skyggni. Ég setti hins vegar nokkrar myndir á vefinn sem ferðafélgar mínir þeir Eiríkur og Jón Loftur tóku.