Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Þurrtólun í RVK
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
8. júní, 2006 at 23:50 #46533Steinar Sig.Meðlimur
Hvert er best að fara til þess að þurrtóla í nágrenni Reykjavíkur?
Augljóslega er illa liðið að drytoola í Valshamri og Stardal, en er eitthvert ,,viðurkennt“ svæði eða annað heppilegt?9. júní, 2006 at 00:35 #50521ABParticipantÞú ættir að prófa Leirvogsgil. Það er fínt að æfa sig þar, traust berg en nokkuð erfiðar leiðir. Einhverjir boltar eru í berginu en þær gætu reynst varasamir enda nokkuð komnir til ára sinna. Hægt er að koma upp ofanvað á þægilegan hátt. Þarna fer enginn lengur til að klettaklifra svo líklega er þetta besti kosturinn í grennd við borgina.
Góða skemmtun!
AB
P.s.
Ef ske kynni að þú vitir ekki hvernig finna á svæðið þá er það í stuttu máli svona. Keyra Vesturlandsveg, beygja til hægri og keyra eftir malarvegi í austurátt meðfram suðurhlið Kistufells, Leirvogsgil er þá á hægri hönd. Eftir um 2 mínútna og 13 sekúnda akstur skal bifreið stöðvuð. Ganga niður gilið og leita að 7 m háu heillegu klettabelti.
Ekki er mögulegt að gefa nákvæmari leiðbeiningar, þessi lýsing er algjörlega fullkomin. Óje.
9. júní, 2006 at 09:42 #505222003793739MeðlimurÉg fór nú einhverntíma bara uppí hraunsprungurnar í Heiðmörk.
Kv
Halli9. júní, 2006 at 17:04 #50523ABParticipantNú, jæja. Mér barst símtal frá einum sem er gamall í hettunni í sportinu. Hann var aldeilis ekki ánægður með að ég væri að vísa mönnum í þurrtólun í Leirvogsgil. Ástæðurnar eru þær að þar eru leiðir sem hafa sögulegt gildi og ísaxir geta skemmt bergið í þeim…
Þannig að kannski er betra að fara eitthvað annað (sá gamli sem hringdi er frekar stór og alveg pottþétt sterkur, borgar sig ekki að gera hann illan:)
AB
9. júní, 2006 at 19:17 #50524Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantGryfjurnar í Öskjuhlíð eru ágætar fyrir dry-tool.
9. júní, 2006 at 20:24 #50525RobbiParticipanttek undir með ága. Auðvelt er að koma fyrir toprope í gryfjunum, og eru ýmsar skemmtilegar drytool leiðir þar að finna.
rob9. júní, 2006 at 20:34 #505262806763069MeðlimurEinhverstaðar verða vondir að vera. Límdu gripin í leirvogsgili eru einmitt frábær til að nota axirnar á. Og hvaða saga, valla nokkur maður komið þarna!
Sportklifrarar og Hnappavallalöggur verða líka að læra á málamiðlanir!
Ekki það að einhver ástæða sé til að bograst með axirnar um mitt sumar.
10. júní, 2006 at 10:07 #50527ÓlafurParticipantÞurrtólun!?? Er einhver með tips um hvar maður kemst í góða þurrskíðun þessa dagana?
órh10. júní, 2006 at 11:29 #50528Páll SveinssonParticipantForðum daga þá notuðum við fjörurnar í þorlákshöfn til að æfa þurrskíðun.
kv.
Palli10. júní, 2006 at 15:30 #505292401754289MeðlimurÞurrtólun er fínt sport í svefnherberginu fyrir einmanna sálir sem eiga ekki sleipiefni
10. júní, 2006 at 18:34 #505300401794539MeðlimurÉg var einmitt búinn að vera veltandi mér upp úr hvað BDSM stæði fyrir,, þarna kom það
Big Drytooling Sex Maniac
Takk Friðjón
11. júní, 2006 at 16:41 #50531KarlParticipant„Ice climbing without ice is like making love without a woman!“
11. júní, 2006 at 18:51 #505320304724629MeðlimurVið Eiríkur Gísla vorum nú að klifra ís fyrir tveimur vikum fyrir vestan. Besta klifur vetrarins á Óshlíðinni. Þurr og þéttur ís og ný 4+ leið í sarpinn. Eiríkur er búinn að lofa mér því að skella myndum á vefinn en eitthvað gengur það hægt því hann er ekki nettengdur þessa stundina.
rok
12. júní, 2006 at 14:11 #505331306795609MeðlimurLeiðin heitir Sónata og var farin 21 maí og hægt er að kynna sér málið nánar á „mínum síðum“
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.