Nú skilst manni að það sé búið að mökksnjóa í Hlíðarfjalli og því aðstæður að verða svakalegar fyrir Telemarkfestivalið sem er á næsta leiti. Eða hvað norðanmenn?
Skráning hefur farið vel af stað en ég veit að það er góður slatti sem á eftir að skrá sig. Koma svo!
Ég býst við að sjá marga í Bláfjöllum á eftir við æfingar, þeas ef fólk er ekki heima upptekið í saumaskap.
Sjálf ætla ég að spara fyrstu telemarksveiflu vetrarins fyrir samhliðasvigið.