Home › Umræður › Umræður › Skíði og bretti › Takk fyrir frábæra helgi
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
14. mars, 2005 at 09:22 #465383103763299Meðlimur
Þökkum norðanmönnum og konum kærlega fyrir frábæra telemarkhelgi. Vel að þessu staðið hjá ykkur í alla staði og sérstaklega að skella þessari snjókomu á okkur í lokin..
Hlynur og Brynja
14. mars, 2005 at 09:58 #49552Stefán ÖrnParticipantJá takk kærlega fyrir mig! Þetta var hin glæsilegasta helgi. Held ég hafi aldrei lent í öðru eins púðri eins og á sunnudaginn….og samt er ég að sunnan.
Steppo
14. mars, 2005 at 13:48 #49553GoliMeðlimurTeam Garðabær þakkar fyrir sig og minnir á mikilvægi snyrtimennsku í fjallinu! Þetta var snilldin ein hjá ykkur og maður er strax byrjaður að hlakka til næsta árs…. og þá verða titlarnir okkar…. eða eitthvað…. kannski….
14. mars, 2005 at 23:40 #495541709703309MeðlimurÞökkum fyrir okkur.
Stebbi og Erna
15. mars, 2005 at 09:22 #495552802693959MeðlimurÚtivera þakkar skipuleggjendum Telemarkmótsins samstarfið og sigurvegurum árangurinn.
Bendi áhugasömum á nokkrar myndir sem Jón Haukur tók (augljóslega allar nema eina) á heimasíðu Útiveru http://www.utivera.is.
Mæti að ári með sænskan stíl sem þykir líklegur er til sigurs.
Jón Gauti17. mars, 2005 at 07:12 #495560801667969MeðlimurTakk innilega fyrir mig. Sjáumst að ári.
Hað er það eiginlega sem gerir svona skemmtilegan félagsskap svona enn skemmtilegri?
Kv, Árni Alf.
17. mars, 2005 at 08:49 #49557ÓlafurParticipantSvar við spurningu Árna: Tónlistin – 20 zentimeter gerði stormandi lukku um helgina.
órh17. mars, 2005 at 12:13 #495580801667969MeðlimurÓli Raggi, …..er til grúppa sem heitir 20 zentimeter eða ertu að vitna til 20 cm. af snjó sem gerði á Dalvík seinni partinn á laugardeginum?
Kv. Árni Alf.
Hlusta nú aðallega á „Lúdó og Stefán“ (sbr. „Fáðu þér nú sæti, tökum slag“ ÓlZen ÓLZEN , og ég gef fyrst o.s.fr) lagið sem kom DC hans Kjarra út að Þelamörk í fyrra.
Kv. Árni Alf.17. mars, 2005 at 12:59 #495593008774949MeðlimurUss Zwanzig zentimeter er náttúrulega e-ð sem allir eiga að þekkja
Þetta er helsti slagarinn í aprés ski í Österreich
Lagið sem DJ Greenhorn gerði heimsfrægt í Ischgl veturinn 2002!!!!!
S17. mars, 2005 at 14:50 #495600801667969MeðlimurVar nú búin að þakka ykkur fyrir frábæra helgi hér að neðan.
Vil bæta við:
Vantar myndir frá festivalinu. Ekki má eigna Útiveru mótið frekar en einhverjum öðrum. Óska eftir myndum af öllum „quality- stigum“ á veg isalp eða útiveru og síðast en ekki síst Telemarkklúbbsins (Valli eða Wally eins og bandaríkjamenn kalla Valla) er frumkvöðull þessa einstaklegu vel heppnuðu samkomu. Koma svo. Skellið myndum á netið. ((Óska ekki sérlega eftir myndum eftir kvöldmat)).
Kv. Árni Alf.
17. mars, 2005 at 15:57 #495610704685149MeðlimurÞað mun koma samantekt um helgina, þegar tími vinnst til.
Ég veit að Jón Haukur er að kúra upp á hálendinu við að sortera myndir.
Nú páskar að nálgast og allir í undirbúningi fyrir það.
Vonandi koma myndir fljótlega.Veit að Siggi Skarp tók eitthvað og Hlynur Stefáns líka, Steppo.
Þetta hlýtur að koma með kaldavatningu.Kv Bassi og Böbbi.
Og takk fyrir okkur kærlega…þetta var gaman eins og æfinlega að hitta ykkur öll sömul. -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.