Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › Svarti turninn í Búahömrum
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
20. júlí, 2009 at 00:17 #54371ABParticipant
Sagan segir að þetta sé hálfkláruð stigaklifurleið eftir Gvend dúllara.
AB
20. júlí, 2009 at 08:54 #54372gulliParticipantGuðmundur Freyr Jónsson wrote:
Quote:Já varst þú þarna líka í gærkvöldi Freysi, en við vorum 4 félagar þarna á ferð, Ég, Óðinn, Kári og Óli. Myndir koma síðar þar sem ég er tölvulaus til myndvinnslu sem stendur. Frábær leið, miklu skemmtilegri en ég átti von á og þið eruð algjörir heiðursmenn fyrir að setja þetta svona vel upp og græjja fyrir okkur hina, takk kærlega fyrir okkur.Get kannski gefið smá teaser af myndum, en hér er mynd af öðrum „leiðarverðinum“: http://www.flickr.com/photos/gummistori/3733679630/
hendi inn klifurmyndum í vikunni, skal láta ykkur vita.kv. Gummi St.
Þessi mynd af „leiðarverðinum“ er alveg einstök, ótrúlega flott augnablik sem þú fangaðir þarna.
20. júlí, 2009 at 18:29 #54373Gummi StParticipantHæbb, ég dúndraði myndaseríu inná http://www.climbing.is frá ferðinni þarna upp ef þið hafið áhuga. Einnig stærri útgáfa af ungakvikindinu hehe…
geggjuð leið, þrususkemmtileg, vel boltuð og bara thumbs up !
Takk fyrir mig23. júlí, 2009 at 10:48 #54375hordurhalldorssonMeðlimurÉg og Atli félagi minn drösluðum okkur upp í gærkveldi, þurftum að bíða smá meðan að tveir félagar hentu sér upp og svo fórum við af stað. Þetta er mjög skemmtileg leið en ég hef grun um að gráðan gæti hugsanlega verið aðeins of lág á leiðunum.
Allavega miðað við gráður á öðrum svæðum sem ég hef verið að klifra í Munnkaþverá og Valshamar og Boulder í Fountain Bleu (frakkaland er að vísu allt annað kerfiEn ég ÞAkka hrikalega gott framtak og sýnist mér þetta stefna í leið ársinns og um leið framtak ársinns að endurvinna boltana
Spurning: er til einhversstaðar klettaklifursleiðarsvísir fyrir dótaleiðirnar þarna…. sá helling af flottum leiðum, í bakgarði Reykjavíkursþorps
Kv
Dauðarokkarinn27. júlí, 2009 at 15:36 #543781908803629ParticipantFyrir rúmri viku fór ég „misheppnaða“ leið upp „svarta turninn“ með Himma þar sem kom í ljós að við fórum upp rauða turninn, í stað þess svarta… Passlega kjánalegt það en ég græddi þó klifur upp Rauða turnin sem ég hefði annars beðið með.
En nú í morgun tókst mér loks að hitta á réttu leiðina með Ödda og hafði virkilega gaman af turninum svarta. Það kom þó á óvart hvað hún var í raun auðveld þar sem að þessar fimm-áttur eru ívið auðveldari en fimm-átturnar á Hnappavöllum. Þó er 5.7 og 5.8 líklega lýsandi miðað við annað á Íslandi en svo undirgráðuð ef borið saman við útlöndin…
Önnur og fjórða spönn voru prýðisgóð skemmtun og sú fyrsta fín upphitun, hafði þó ekkert sérstakt skemmtanagildi.
Þakka vel fyrir nýja leið og endurboltun á Rauða turninum, báðar leiðir þrælfínar en ef ég ætti að gera upp á milli þá held ég að Rauði turninn sé skemmtilegri, enda ívið erfiðari.
P.S. ég fann BD tvist og sling með tveimur ólæstum karabínum í fyrsta stans. Ef einhver saknar þeirra þá getur eigandinn hringt í 824-5846
27. júlí, 2009 at 16:35 #54379ÖddiParticipantJebbzy þetta var megafreshhh mánudagsmorgun takk fyrir mig !
Kv. Öddi30. júlí, 2009 at 23:18 #54380Gummi StParticipantHæ,
Heyriði, ég fór svarta turninn aftur í kvöld og lagði þá bílnum beint undir leiðinni og sá að það er búið að klippa í sundur girðinguna sem liggur þarna á milli, ég vona að ef þetta er eftir einhvern úr okkar samfélagi að þetta hafi verið gert í samráði við landeigendur en ekki hreint skemmdarverk !
kv. Gummi St.
31. júlí, 2009 at 20:34 #543811908803629ParticipantSammála Gumma. Agalegt að sjá þetta og mun líta illa út fyrir klifurmenninguna, hvort sem klifrari hafi gert þetta eða ekki.
Spurning hvort einhver taki sig til og hnýti girðinguna aftur saman, og jafnvel með sniðugu hnútavirki þannig að hægt sé að losa og herða eftir þörfum?
8. ágúst, 2010 at 22:18 #55536SmáriParticipantLoksins gaf ég mér tíma til að fara í svarta turninn í blíðskaparveðri í dag. Mjög skemmtileg leið, mér fannst 2. spönnin skemmtilegust.
Takk fyrir flotta leið, en er ekki slatta pótensíjónal þarna fyrir fleiri leiðir?kv. Smári
28. ágúst, 2010 at 00:09 #555612808714359MeðlimurÉg og Finni létum okkur hafa það að klifra þann Svarta í gær og skemmtum okkur konunglega. Helvíti gaman að komast loks í boltað fjölspanna klettaklifur.
Miðað við þær 5.7 og 5.8 leiðir sem ég hef klifrað í Munkanum finst mér þetta full hátt gráðað en á hinn bóginn er þetta lágt gráðað miðað við það sem ég var að klifra á Ítalíu fyrir nokkrum dögum.
Annars vill ég bara vara menn við að þó þetta sé boltuð og hreinsuð leið er töluvert af lausu grjóti þarna. Ég fann á nokkrum stöðum álitleg grip og fótsstig sem við nánari athugun reyndust laus og einu sinni molnaði grip í höndunum á mér.
Í það heila stórskemtilegt klifur.
kv
Jón „norðan“ Heiðar -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.