Án þess að fjölyrða meira um það þá hefur dagurinn verið stórkostlegur á allan hátt hér á Dalvík í dag. Veðrið, skíðamennskan og félagsskapurinn; allt saman stórkostlegt.
Get tekið undir þetta. Þó að snjór hafi verið með minnsta móti núna, held ég samt að þetta sé svei mér þá skemmtilegasta mótið hingað til. Það sem gerir þetta einnig svona skemmtilegt er þessi fjölbreytni, þ.e. ný staðsetning og brautin aldrei eins. Sem sagt frábær dagur með frábæru fólki.