Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › Stiftamt
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
11. ágúst, 2010 at 21:33 #475161506774169Meðlimur
Samkvæmt leiðarvísi sem ég var að glugga í er búið að setja upp 2 leiðir í Stiftamtinu. Er hægt að nálgast frekari upplýsingar um þessar leiðir?
11. ágúst, 2010 at 22:11 #555401908803629ParticipantÉg veit/man ekki hvort það sé til leiðarvísir en það eru held ég fjórar leiðir bolaðar í Stiftamt, þrjár í austurveggnum og ein á suðurveggnum. Þessar á vesturvegnum eru, að mig minnir 5.9 kannski 5.8 og leiðin á suðurveggnum er 5.7, kannski 5.6. Þetta eru ca. 15-20 metra leiðir.
Ég fór þarna rétt eftir að þetta var boltað fyrir nokkrum árum og man þetta því ekki betur en það er lítið mál að finna leiðirnar og ef einhver er í vafa um að fara upp þær í leiðslu, þ.e. óviss um erfiðleikagráðuna, þá er hægt að arka upp fyrir og skella upp topp ropa, amk í vesturveggnum.
Mig minnir að þetta sé hið fínasta klifur en Stardalurinn er þó mun flottari klettur og mæli ég frekar með honum – held barasta þar leynist flottasta bergið á suðvesturhorninu. Séu menn óöruggir með dótaklifur er alltaf hægt að fara upp og búa til bomber akkeri fyrir toprope.
12. ágúst, 2010 at 23:29 #555411506774169MeðlimurÉg þakka ítarlegt og gott svar. Ætli maður prófi þetta ekki þrátt fyrir hógvær meðmæli með þessum leiðum
13. ágúst, 2010 at 00:22 #555421908803629ParticipantNo probs, um að gera að prófa… Ég man ekki nógu vel eftir gæðum klifursins og eflaust fínasta klifur.
Maður ætti kannski að kíkja á þetta og rifja þetta upp…
16. ágúst, 2010 at 11:00 #555470909862369MeðlimurHvernig er aðkoman í Stiftamt? er löng ganga frá bílum og í veggina?
Spyr sá sem ekki veit
16. ágúst, 2010 at 15:01 #555481506774169MeðlimurMaður fer inn slóðann eins og maður sé að fara í Stardal en keyrir bara svolítið lengra inn eftir honum. En jú, það er smá labb
7. ágúst, 2011 at 17:13 #568570909862369MeðlimurFór ásamt nokkrum fleirum í Stiftamt í gær og fundum við þar tvær boltaðar leiðir hlið við hlið (ca 3-5m á milli). Er ekki klár á hvernig maður skilgreinir staðsetninguna á þeim, en læt mynd fylgja með, til að sérfræðingarnir geti vonandi upplýst mig um nöfn og gráður þessara tveggja leiða. (Getur verið að það hafi verið auka toppakkeri á milli leiðanna?)
—
SLÓ -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.