- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
16. janúar, 2012 at 08:05 #45982andrisvParticipant
Mig langaði svona að forvitnast um þessa línu hvort að fólk vilji meina að hún sé nógu góð sem single rope í jöklagöngur? Og hvernig er að prússika sig upp á henni þar sem hún er bara 7,8 mm breið?
Þetta á víst að vera snilldar lína bæði half og twin rope. Nánar um hana hér: http://www.sterlingrope.com/product/0/fp/_/Fusion_Photon
17. janúar, 2012 at 00:54 #573681902784689MeðlimurSælir
Hún er twin og half rope. En ef þú ert að spá í að nota hana staka í göngu á jökli þá er það ok. Gæda iðnaðurinn notar heillínur en Photon er alveg nógu sterk og gott betur. Beal selja jöklalínur í 20-40m lengdum sem eru 8mm og er mjög mikið notað það eru twin línur. Einnig Sterling Ice Thong 7,7mm twin.
Prusikinn virkar best ef hann er um 3mm grennri. Mjúkur 6mm eda bara 5mm ekki nota grennra en það!
Kv. Jón Heiðar
17. janúar, 2012 at 18:01 #57378KonniMeðlimurSælir
Ég hef sjálfur verið að skoða þessa línu og reyndar einnig þessa hérna http://www.mytendon.com/rope-tendon-master-7-8 spurning hvort að prusikinn virki betur á hana þar sem sheath slippage er 0 mm??17. janúar, 2012 at 18:56 #57379RobbiParticipantSeath slippage er skrið á kápu miðað við kjarna og hefur ekkert með prússikinn að gera. Sterling línan er helvíti flott og virkar vel í þetta. Hún er líka snilld í ísklifrið, dregur í sig lítið vatn og er létt.
robbi
18. janúar, 2012 at 00:16 #573861902784689MeðlimurÉg held að það sé sama og enginn framleiðandi á dynamic línum sem er með kápu skrið innifalið En á gríns þá er það ekki á klifurlínum, algengara á statískum. Prussik kemur þar ekkert málinu við heldur.
Þekki ekki gæði Tendon en Beal og Sterling eru og hafa alltaf verið leiðandi á línu markaðinum í evrópu og bandaríkjunum. Pottþétt gæði þar!
19. janúar, 2012 at 18:51 #57397andrisvParticipantTakk fyrir þessar ráðleggingar strákar. Hjálpar mér í ákvarðanatökunni.
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.