Stöðu hugmyndarinnar Stækka Klifurhúsið ! sem þú styður hefur verið breytt á Betri Reykjavík.
09.03.2012
Þessi tillaga hefur verið afgreidd af íþrótta- og tómstundaráði.
Úr bókun íþrótta- og tómstundaráðs:
,,Ár 2012, föstudaginn 9. mars var haldinn 158. fundur íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Höfðatorgi og hófst kl. 11:10.
9. Lögð fram ábending af samráðsvefnum Betri Reykjavík – ” Stækka Klifurhúsið!”
Stjórn íþrótta- og tómstundaráðs hefur á sínum fundum rætt húsnæðismál Klifurfélagisns og hefur falið Framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar að finna hentugt húsnæði fyrir klifuríþróttina. Vonir standa til að tillögur liggi fyrir mjög fljótlega. Þess ber að geta að ÍTR hefur þegar veitt styrki til Klifurfélagsins sem nýst hefur núverandi starfsemi félagsins.”
Vefumsjónarmaður
betrireykjavik@ibuar.is
http://betrireykjavik.is