- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
19. janúar, 2010 at 10:41 #47544Björgvin HilmarssonParticipant
Á morgun (20/01/2010) kl. 20, er seinni fyrirlesturinn um snjóflóð og að þessu sinni er það Árni Jónsson (www.snjoflod.is) sem talar.
Það hafa þrír seljendur snjóflóðabúnaðar nú þegar boðað komu sína til að kynna vörur sínar, þ.e. RS-Import (Garmin-búðin) sem eru með ARVA og Garmin, Fjallakofinn sem er með Pieps og fleira og Safalinn sem er með Barryvox.
Ég mun segja frá kynningarafsláttum hér um leið og ég fæ upplýsingar um þá en nú hef ég fengið staðfest að RS-Import verða með 20% afslátt af ARVA og Garmin sem gildir annaðkvöld og tvo næstu daga þar á eftir.
Fylgist vel með þessum þræði…
Sjáumst annaðkvöld!
19. janúar, 2010 at 15:13 #55052Björgvin HilmarssonParticipantDóri í Fjallakofanum mætir með dót til að sýna og hefur framlengt sitt tilboð á snjóflóðabúnaði til 20. jan. Svo það gildir þá enn annakvöld og síðasti séns að nýta sér það. Hann er sem dæmi með 25-30% afslátt af ýlum. Sjá nánar á http://www.fjallakofinn.is
19. janúar, 2010 at 20:59 #55053SkabbiParticipantHæ
Það er ánægjulegt að sjá hvernig þessi fyrirtæki eru tilbúin að koma til móts við félagsmenn Ísalp þegar kemur að grundvallar öryggisbúnaði. Ég tek að ofan fyrir þessum ágætu fyrirtækjum og vonast til að sjá sem flesta á fundinum á morgun.
Allez!
Skabbi
19. janúar, 2010 at 21:59 #55054SkabbiParticipantOg svona rétt til að koma fólki í stemminguna fyrir kvöldið:
…heppinn…
Skabbi
21. janúar, 2010 at 12:00 #550571108755689MeðlimurFrábær fyrirlestur í gær. Nördaskapur á hæsta plani.
Takk fyrir mig
B21. janúar, 2010 at 12:22 #550581908803629ParticipantÉg tek undir það. Alveg merkilegt hvað maður er búinn að læra mikið á tveimur kvöldstundum – lífsnauðsynleg þekking sem maður hefur lítið spáð í til þessa.
Meira af þessu takk fyrir… t.d. first aid á fjöllum, klæðnaður á fjöllum eða eitthvað sniðugt sem stuðlar að auknu öryggi á fjöllum. Nefnið tíma og ég mæti.
21. janúar, 2010 at 17:48 #55060Björgvin HilmarssonParticipantGott að heyra af því að menn séu ánægðir með fyrirlestra sem þessa og frábært að fá ábendingar um hvað menn vilja sjá í framhaldinu. Það er stefna okkar að vera með eitthvað djúsí annan miðvikudag í mánuði hér eftir, hvort sem það er fyrirlestur eða eitthvað annað gagnlegt.
En látið endilega í ykkur heyra ef þið hafið góðar hugmyndir varðandi þessi kvöld. Það er alltaf skemmtilegra ef almennir félagar vilja hafa áhrif á hvað er að gerast í klúbbnum.
21. janúar, 2010 at 18:42 #55061SmáriParticipantég er einmitt alltaf upptekinn annan miðvikudag í mánuði….
21. janúar, 2010 at 18:58 #550620111823999MeðlimurMjög svo sammála fyrri ræðumönnum. Gott framtak hjá stjórninni að standa fyrir flottum og fræðandi fyrirlestrum.
Væri gaman að hafa veður á fjöllum einhvers staðar á listanumTakk fyrir mig,
Helga María21. janúar, 2010 at 20:14 #55063Anna GudbjortMeðlimurÉg mætti á fyrri fyrirlesturinn og var mjög hrifin. Þetta er frábært framtak og vona að við getum átt vona á fleiri svona fyrirlestrum. Það eina sem ég hef út á að setja er það að ég kemst ekki á miðvikudögum klukkan 20.00.
Það væri ekki hægt að rótera þeim dögum sem fyrirlestrarnir eru haldnir þannig að við sem erum alltaf upptekin á þessum tíma kæmumst allavega af og til. Long shot kanski, en maður má láta sig dreyma...er einnig sammála Helgu hvað varðar veður á fjöllum.
21. janúar, 2010 at 23:27 #55064Gummi IngiMeðlimurTek undir þetta hjá síðasta ræðumanni. Frábært ef hægt væri að hafa þetta á mismunandi dögum. Vinn alltaf á miðvikudögum.
22. janúar, 2010 at 19:17 #550670801667969MeðlimurÞakka nafna fyrir fróðlegan fyrirlestur. Gott framtak hjá stjórn að taka rispu í svona fræðslumálum. Skemmtilegt að sjá svona þétt setið. Minnir á ÍSALP kvöldin fyrir þrjátíu árum þegar ég var að byrja. Minni á að ÍSALP kvöld hafa alltaf verið á miðvikudagskvöldum a.m.k. síðan ég byrjaði. Þá var klúbburinn örfárra ára gamall.
Kv. Árni Íhaldsami
24. janúar, 2010 at 22:12 #550711001813049MeðlimurFyrst þetta snýst um snjóflóð þá fell eitt risastórt efst í Dalnum í Hlíðarfjalli fyrir um viku síðan sennilega. Brotstálið er örugglega um 300m langt og á að giska 50cm hátt (hef ekki skoðað nákvæmlega) og flóðið rann langleiðina niður dalinn með risaköggla. Þetta er áminning fyrir alla þá ófáu sem hafa tekið góðar púðurbeygjur á þessum stað.
Kv Kristinn
25. janúar, 2010 at 10:46 #55072SissiModeratorHeitir þetta ekki Suðurdalur? Maður hefur ansi oft séð flóðarusl niður allan þennan dal úr stóru skálinni. Örugglega góð þróun að færri eru að renna sér í þessari skál núorðið, og labba þar upp. Betra að hafa traffíkina úti á hryggnum (Mannshrygg?).
Svo kom nú líka stórt flóð norðan megin við hann fyrir svona 2-3 árum.
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.