Sæl öll,
Hópurinn sem fór í ÍSALP-ferðina á laugardag átti frábæran dag. Við fórum upp NA-hryggin og fengum stórkostlegt útsýni af toppnum. Reyndar nokkuð hvasst þannig að einn bakpoki og allt sem í honum var fauk út í buskann, en sem betur fer tókst að endurheimta mest af dótinu, þar á meða pokann sjálfan. Það var nokkur þoka í byrjun ferðar þannig að litlu munaði að hópurnn tæki stefnuna á vitlaust fjall, lögðum bílunum nefnilega við Indriðastaði en ekki Horn! En menn áttuðu sig fljótlega og í staðinn fengum við bara meira labb og æfingu í að stökkva og vaða yfir ár! Eftir að við komum upp gengum við suður eftir og niður í hvilftina vestan megin við fjallið og þaðan til baka.
Annað, einhver (Örn?) gleymdi rauðri goretex úlpu í bílnum hjá mér. Síminn hjá mér er 896-3152.
kveðja,
Jón Loftur