- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
26. nóvember, 2008 at 17:50 #46851
0506824479
Meðlimurég frétti að það hafi verið hópur gæsa í og við skarðsheiðina s.l. helgi.
Sagan segir að þær hafi lennt í einhverri epík og ekki verið komin til baka fyrr en undir morgun daginn eftir.
Er eitthvað til í þessu??Doddi
26. nóvember, 2008 at 19:07 #53265Sissi
ModeratorVoru þær með kanínueyru og kokteila?
27. nóvember, 2008 at 08:52 #532661108755689
MeðlimurHmm…vonandi voru þær ekki skotnar…er veiðitímbilið ekki liðið?
27. nóvember, 2008 at 09:54 #532670808794749
Meðlimurskrýtið. ég sá bara rjúpur í skarðsheiðinni á sunnudag. engar gæsir!
27. nóvember, 2008 at 10:36 #53268Björk
ParticipantÉg, Sveinborg og Sædís lögðum fórum í Skarðsheiðina á sunnudaginn. Áður en klifrið/bröltið hófst hittum við Ársælinga sem þar voru á vetrarfjallamennskunámskeiði. Við tróðum okkur þar á milli.
Aðstæður hafa verið betri. Það var ekkert allt of mikið af ís og snjó (meira svona snjófrauð og ísskán á klettum) og þ.a.l. voru skrúfur t.d. ekki vel nothæfar en þó stundum hægt að koma einni og einni inn. Meira notast við akkeri, slinga og hnetur.
Þetta tók sinn tíma m.a. vegna þess hve margir voru á ferðinni.
Vorum komin uppá topp eftir myrkur og komið í bælið kl. 02 eftir stopp á Subway á Ártúsnbrekkunni sem er víst opið 24/7.
Setti nokkrar myndir inná mínar síður.
27. nóvember, 2008 at 10:51 #53269Skabbi
ParticipantHæ
Þær eru ekki margar ísskrúfurnar sem ég hef rekið í Skarðsheiðina. Mun meiri not fyrir snjóhæla, snjóakkeri, fleyga og stórar hnetur (sem þið hafið líklega ekki haft með).
Var ekki e-r snillingur sem hamraði títaníum skrúfu inn í sprungu ofarlega í Rifinu? Eða e-ð…
Allez!
Skabbi
27. nóvember, 2008 at 13:58 #53270Sissi
ModeratorTöff stöff!
Skabbi tekur líka með nóg af remúlaði og gott er að hafa eins og einn einskíðung svona upp á lúkkið.
S
27. nóvember, 2008 at 14:28 #532712806763069
MeðlimurFlottur dagur á fjöllum, tær öfund úr þessu horni.
Greinilegt að Skarðsheiðin er kominn í vetrarham – alltaf gott að fá myndir til að sýna aðstæður og kveikja í manni.
kv.
Softarinn -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.