- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
23. febrúar, 2010 at 20:03 #46930Freyr IngiParticipant
Eins og ísölpurum er að fullu kunnt hefur skáli félagsmanna í Tindfjöllum nýlega fengið ýtarlega upplyftingu, svo ekki sé meira sagt.
Eftir að því stórkostlega verkefni var lokið fóru augu ýmissa aðila að beinast til Botnssúlna þar sem annar skáli, annað verkefni, bíður eftir að sér sinnt.Það voru því gleðitíðindi þegar fjallaleiðsögumaðurinn Jökull Bergmann lagði það til að ágóði af myndasýningu sem hann stendur fyrir í samstarfi við ferðafélag Íslands myndi renna í viðhaldssjóð fyrir þennan annars afbrags fjallaskála sem Bratti er.
Fyrirlestur Jökuls hefst klukkan 20:00 í sal ferðafélagsins í Mörkinni 6.
Eins og áður segir mun Jökull sýna myndir frá ævintýrum sínum á fjallaskíðum og auk þess mun Fjallakofinn sýna búnað tengdan þess háttar ferðalögum.Aðgangseyrir að myndasýningunni er frá 500 kr.
kv,
Freyr Ingi24. febrúar, 2010 at 16:22 #55241Björgvin HilmarssonParticipantÞað verður án efa flott að sjá sýninguna hans Jökuls og allur ágóði af sölu aðgangseyris rennur í viðgerð á Bratta. Það er brýnt verkefni og því er vert að hvetja alla til að kíkja og láta skitinn 500 kall af hendi rakna. Ekki mikið fyrir góða skemmtun og gott málefni. Þetta er þægileg og sársaukalaus leið fyrir almennan félagsmann til að leggja aðeins extra til þessa verkefnis.
Held það sé öllum ljóst hvað það er mikil snilld að hafa Tindfjallaskálann núna uppgerðan og fínan. Þegar hafa fjölmargir nýtt sér hann í vetur og hann mun um ókomna framtíð vera mikilvægur í starfsemi ÍSALP enda á frábærum stað.
Sjáumst annakvöld.
24. febrúar, 2010 at 17:01 #552440111823999MeðlimurEr hægt að leggja andvirði sýningarinnar inn á einhvern reikning?
Þar sem ég efast um að ég verði í bænum annað kvöld en langar að styrkja Bratta.kv,
Helgan24. febrúar, 2010 at 21:39 #55248BjörkParticipantJá hægt að styrkja Bratta:
reikn: 0101-26-050509
kt. 5806750509Setja Bratti í skýringu
kv. Björk
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.