Home › Umræður › Umræður › Keypt & selt › Óska eftir framtönnum á Grivel Rambo brodda
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
11. janúar, 2010 at 21:46 #47497Siggi TommiParticipant
Ó, mig auman!
Er að verða búinn að spæna framtennurnar á Rambo broddunum mínum til ólífis.Hef því áhuga á að kaupa par (eða tvö jafnvel) af einhverjum sem er með nýtt eða lítið notað slíkt stell liggjandi á glámbekk öngvum til gagns.
Held ég geti notað tennur af öllum Rambo broddum nema þessu nýjustu, Evo og Evo Comp (4. kynslóð Rambo). Er sjálfur með 1. kynslóð en veit til þess að menn hafi komið tönnum af millikynslóðunum (2. og 3.) á jálka eins og mína.
Sendið mér línu á hraundrangi(hjá)gmail.com ef áhugi er á slíkum viðskiptum.
11. janúar, 2010 at 23:52 #550272103844569MeðlimurHey Siggi!
I can search if I find some in Italy/Austria/Swiss, maybe somebody still has some left.
I’ll leave for Italy tomorrow.
Been training pretty hard and getting more experienced.
You can read it on my blog: lavinia-marianne.blogspot.com
And hey, you should ask Valdi for a climb, he’s really good in drytooling!
Greetz,
Marianne12. janúar, 2010 at 15:41 #55029Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantEr þetta ekki til í Útilíf í Glæsibæ?
12. janúar, 2010 at 16:07 #55030Siggi TommiParticipantFór þangað um daginn og þeir áttu ekkert svona.
Áttu reyndar hliðartennurnar í Rambo og einhverjar framtennur í BD brodda minnir mig.12. janúar, 2010 at 22:11 #550321506774169MeðlimurÉg var í Útilíf í glæsó fyrir nokkrum dögum og þá var búið að smekkfylla allar hillur af grivel dóti, náði að versla varahluti í báða broddana mína allavega
13. janúar, 2010 at 00:17 #55034Siggi TommiParticipantHmm, athyglisvert. Ég var þarna um miðja síðustu viku og gaurinn sagðist ekki eiga von á neinu svona dóti á næstunni.
Hvað varstu annars að kaupa í broddana (og hvaða týpu af broddum)?
13. janúar, 2010 at 22:39 #55038Siggi TommiParticipantAnnað hvort hef ég ekki leitað nógu vel um daginn eða Útilíf hefur bætt á hillurnar, því í dag fann ég tvö pör af Rambo tönnum og fjárfesti í öðrum þeirra á tæplega 4 kúlur.
Mæli með að menn sem vantar slík stell drífi í að kaupa því þetta er torfundið. Er búinn að vera að leita að þessu á netinu undanfarið. Kostar bæði slatta og fæst óvíða.13. janúar, 2010 at 23:19 #550391506774169MeðlimurÉg var nú bara að ná í snjóvarnargúmmi og nýjar ólar í þá
14. janúar, 2010 at 09:12 #55042SmáriParticipantTalandi um snjóvarnargúmmí, hvar gæti maður nælt sér í svoleiðis fyrir charlet moser (petzl) M10
14. janúar, 2010 at 09:37 #550430304724629MeðlimurHringdi í Útilíf í gær og talaði við einhverja gelgju sem vissi ekki neitt, síðan einhvern gæja og svo annan gæja. Kom í ljós að það voru til einhverjir varahlutir í gömlu BD Switchblade broddana mína. Einnig eitthvað fyrir M10 brodda. Straujaði kortið og vona það besta. Býst samt alveg eins við að fá bleikar barnalúffur með póstinum.
rok
15. janúar, 2010 at 08:53 #55047ÓlafurParticipantÞú ert nú maður sem ætti ekki að vera í vandræðum með að koma bleikum barnalúffum í notkun.
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.