Áhugaverð grein hjá Örlygi í mogganum í dag og fínt að vensla hana við ísalp, því framkvæmdir sem hafa stórkostleg áhrif á náttúru Íslands koma okkur við. Ekki hægt að segja annað en að formaðurinn svari vel haldlausum samanburði.
Annars man ég eftir einni hugmyndinni sem kom fram hjá annað hvort landsvirkjun eða einhverjum sem var í bjartsýniskasti að reyna að sjá jákvæðar hliðar á stíflunni: Að búa til klifurvegg á henni (þe. setja nokkur tök á steypukápuna), þetta myndi vera hin mesta túrista-atraksjón!
…spurning hvort það standi enn til að framkvæma þetta?
Góða helgi
Halli